Góð íþrótt-Gulli betri: Jón Þór Hauksson rekinn frá Stjörnunni
Jón Þór Hauksson var rekinn sem þjálfari knattspyrnuliðs Stjörnunnar í lok síðustu viku eftir aðeins rétt rúma tvo mánuði í starfi. Jón Þór er annar þjálfari liðsins sem er látinn fara frá liðinu á þessu tímabili.
Alls konar sögusagnir hafa gengið eftir brottreksturinn. Í þessu viðtali fer hann yfir tíma sinn sem þjálfari liðsins og hvað gerðist á bak við tjöldin.
21 Jun 2026
Aron Jóhanns fer á HM í Brasilíu 2014
Aron Jóhannsson varð fyrstur Íslendinga til að spila á heimsmeistaramóti í knattspyrnu. Það gerðist 2014 þegar mótið var haldið í Brasilíu. Aron fæddist í Bandaríkjunum 1990 þegar foreldrar hans voru þar í námi. Það olli nokkru fjaðrafoki að hann skyldi velja að spila fyrir bandaríska landsliðið sumarið 2013. Í þessum þætti rifjum við upp ótrúlegt ævintýri um hvernig strákur úr Grafarvogi, sem þráði að verða atvinnumaður í knattspyrnu, komst á samning í Danmörku og sló þar í gegn vorið 2012. Jürgen Klinsmann, landsliðsþjálfari Bandaríkjanna, hafði þá reglulega samband við hann til að fá hann liðið sitt. Í þessum þætti verður öll sagan sögð.
15 Jun 2026
Sportrásin: HM umræða nördanna
HM í knattspyrnu er hafið í Bandaríkjunum.
Stefán Pálsson sagnfræðingur og fjármálaspekúlantinn Björn Berg Gunnarsson eru ótrúlega fróðir um sögu keppninnar. Þeir fara á kostum þegar þeir fjalla um HM í Bandaríkjunum og segja margar skemmtilegar sögur frá fyrri keppnum.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.