Tveir vitleysingar ræða málefni líðandi stundar og einnig málefni sem eru alls ekki á vörum fólks.
Dalvíkingarnir Dóri og Jón Þór drekka bjór og spjalla saman um allt milli himins og jarðar, en aðallega einhverja vitleysu. Hver þáttur er sjálfstæður og því er hægt að byrja á hvaða þætti sem er.
Afmælisþáttur afmælisþáttur afmælisþáttur!
Við hér með tilkynnum það, að þessi þáttur er afmælisþáttur!
Já, hlustendur góður, þessi þáttur er sannarlega afmælisþáttur!
Og hvað þýðir það? Jú, að hlaðvarpsþátturinn Alls ekki á ykkar vörum á afmæli!
En hvað þýðir það?
Jú, við drukkum freyðivín og svo voru allir hinir hefðbundu dagskrárliðir á sínum stað og vinur okkar Claudio kíkti í heimsókn! Þannig að það var engin breyting frá hefðbundum þætti, nema að það var afmælisþáttur og freyðivín!
Missið ekki af tuttugasta og sjöunda þætti af Alls ekki á ykkar vörum!
20 Mar 2022
Þáttur 26
Þátturinn var að þessu sinni með nokkuð óhefðbundu sniði, þar sem langt var um liði frá síðasta þætti, þá ákváðum við að fjölga efnisatriðum nokkurra dagskrárliða.
Í öðrum fréttum, teljum við okkur hafa afgreitt stóra hurða vs hjóla málið í eitt skipti fyrir öll.
Jón Þór kom með hugmynd og var með splunkunýja stjörnuspá og allir hefðbundu dagskrárliðirnir voru á sínum stað.
Missið ekki af tuttugasta og sjötta þætti Alls ekki á ykkar vörum!
27 Feb 2022
Þáttur 25
Við tilkynntum að við hefðum loksins staðið við eitthvað af því sem við segjumst ætla að gera í þáttunum!
Við ræddum einnig aðeins snjómokstur í borginni, fórum aðeins yfir stríðið í Úkraínu, við kynntum okkur eilítið hugtakið "andarafl", kíktum aðeins í kommentakerfið og allir föstu dagskrárliðirnir voru á sínum stað.
Missið ekki af tuttugasta og fimmta þætti af Alls ekki á ykkar vörum!
Reach and audience
Public platform figures. Ratings count people who left a rating, not total listeners.
Apple Podcasts (US)
5.0 / 5
1 ratings
Host of Alls ekki á ykkar vörum?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine