Saga - Menning - Samhengi - Trú
Biblían á mannamáli er hlaðvarp, þar sem við lesum saman í Nýja testamentinu og ræðum textann á einföldu, skýru og lifandi máli. Við tengjum Gamla og Nýja testamentið; rýnum í Biblíuna með kærleikann að leiðarljósi; eigum viðtal við alls konar fólk og hressum upp á sálartetrið með góðum gullmola. Markmiðið er að gera þennan forna texta, sem hefur mótað menningu okkar og sögu, aðgengilegan fyrir alla.
Tónlist: Enginn elskar eins og þú - höf. Hjalti Gunnlaugsson
www.halldorlar.is (http://www.halldorlar.is)
biblianam@outlook.com (mailto:biblianam@outlook.com)
Velkomin í Biblían á mannamáli. Í þessum þætti er fjallað um Apollós, hinn mælskumikla lærisvein frá Alexandríu sem kom til Efesus og síðar Korintu. Prískila og Akvílas fræddu hann nánar, og var honum loks boðið til Korintu að þjóna - það átti hins vegar eftir að leiða til flokkadrátta.
Sjónum er einnig beint að Páli sem kemur til Efesus, þjálfar sex samstarfsmenn og undirbýr áframhaldandi útbreiðslu fagnaðarerindisins — með sterka áminningu um mikilvægi einingar og að forðast sundrung innan safnaðarins.
Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson
Heimildir: Frank Viola, The Untold Story of the New Testament Church
www.halldorlar.is
10 Nov 2026
Dagur 72 - Óvenjuleg kraftaverk
Velkomin í Biblían á mannamáli: Við fylgjum Páli á þriðju trúboðsferðinni (um 53–57 e.Kr.), þegar hann stofnar og styrkir kirkjur víða í Asíu og tekur mikilvægar ákvarðanir fyrir framtíð boðunarinnar.
Þátturinn fjallar um þrjár lykilákvarðanir Páls — fjáröflun fyrir fátæka í Jerúsalem, þjálfun nýrra starfsmanna og áform um að fara til Rómar og áfram til Spánar. Auk þess skoðum við aðeins starfið í Efesus; óvenjuleg kraftaverk og síð'ast en ekki síst, átök við andasæringar(sjö synir Skeva).
Sagan sýnir hvernig kraftaverk, trúaruppbygging og sameining kirkjunnar breyttu samfélaginu og undirstrikar mikilvægi bænar, einingar og þjónustu innan kirkjunnar.
6 Nov 2026
Dagur 71 - Sjálfshyggjan þvælist fyrir
Velkomin í Biblían á mannamáli. Þessi þáttur fjallar um Pál postula og för hans frá Korintu; samstarf við Prískilu, Akvílas, Tímóteus og Sílas; vinnu þeirra og þrautir við að stofna söfnuði Guðs ríkis. Við sjáum hvernig gyðingar ásaka Pál fyrir að brjóta lögmál þeirra en landstjórinn Gallíon neitar að taka málið og stöðvar réttarhöldin.
Söfnuðurinn í Korintu er ungur og óþroskaður. Páll gagnrýnir sundrungu þeirra og sjálfshyggju, sem gerir það að verkum að þau skilja ekki dýpri hluti fagnaðarerindisins. Þættinum lýkur með för fjórmenninga til Efesus og lokum annarrar trúboðsferðar Páls.
Reach and audience
Public platform figures. Ratings count people who left a rating, not total listeners.
Spotify
5.0 / 5
5 ratings
Host of Biblían á mannamáli - Hlaðvarp fyrir lífið?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine