“Hvað ertu að gera?” “Er það ekki augljóst? Ég er að reyna að draga þig á tálar.”
Bound er lesbískur glæpatryllir úr smiðju Wachowski systranna víðfrægu. Þar verður sjóðheit ástarsaga tveggja kvenna að æsispennandi bardaga upp á líf eða dauða þegar þær reyna að stela peningum af mafíósakærasta annarrar þeirra.
Þetta var fyrsta mynd þeirra systra og athyglisvert er að sjá stílbrögð í fæðingu sem við þekkjum úr þeirra þekktari verkum, til að mynd Matrix-seríunni. Hún var einstök á sínum tíma af því að hinsegin myndir voru sjaldgæf sjón og hinsegin glæpamynd óhugsandi. En Wachowski systurnar börðust fyrir þeirra sýn og þeim erum við ævinlega þakklát.
Íris fær Svanhvíti Ödu Sif Björnsdóttur til sín í stúdíóið og þær ræða um þessa mynd frá mörgum vinklum: Hvaða stílbrögð eru það sem einkenna þessa mynd, hvaða máli skiptir að segja lesbískar sögur, hvað einkennir feril Wachowski systranna, er réttlætanlegt að gaslýsa gæja ef hann er í mafíunni og hvor er heitar, Corky eða Violet?
Best er að njóta þáttarins uppi í sófa eða inni í bíl með góðri “vinkonu”.
Efnisyfirlit:
00:00 - Bound á sviði!
06:18 - Þema og litaskema
11:21 - Veldi Sesars
19:19 - Warhammer pælingar
27:47 - Tilly og Gershon
34:17 - Matrix-teik Lönu
48:38 - Ógn mafíunnar
57:28 - Samantekt
6 Nov 2026
Event Horizon (1997)
Event Horizon (1997)Þegar Event Horizon leit fyrst dagsins ljós voru viðtökur volgar ef ekki dræmar, þá sérstaklega á meðal gagnrýnenda. Aðsóknin var heldur ekki upp á marga fiska en í gegnum árin hafa vinsældir þessarar sci-fi hryllingsmyndar stórlega aukist. Margir vilja jafnvel meina að hún sé besta/skásta myndin frá Paul W.S. Anderson. Þetta veltur reyndar á því hvað viðkomandi finnst um Mortal Kombat myndina hans frá 1995.
Allavega, á meðal dyggra aðdáenda Event Horizon eru (fasta)gestirnir Einar Michaelsson og Hafsteinn Laxdal. Þeir eru saman sestir niður með Atla (og síðar meir Tomma) til að dásama þessa fullkomlega ófullkomnu og pönkuðu ræmu þar sem meistarar eins og Sam Neill heitinn og Laurence Fishburne leika listir sínar af bestu lyst.
Myndin hefur líka merkilega sögu að baki í tengslum við skammarlegan mæli af glötuðu myndefni. Sökum þess að filmunegatífurnar glötuðust mun Anderson aldrei geta gefið út upprunalegu sýn sinni á Event Horizon. En meira um það í spjallinu, þannig að...
Upp með blöðin, brjótið þau saman og hlerið súmmeringu bíófíklana. Athugið að skoðanir verða verulega skiptar!
Efnisyfirlit:
00:00 - Hverjir og hvers vegna?
03:52 - Költ-risið
06:06 - "Mjög mikið Alien"
13:13 - Ónýtt efni
20:13 - Lúkk og djammlag
26:48 - "Fullkomna millibilið"
36:36 - Tími og tölvuleikjamyndir
47:28 - (Tommi sestur) 'Heitt teik'?
57:37 - Anderson sarpurinn
30 Oct 2026
The Batman (2022)
Enn ein Batman endurræsingin eða kannski bara 'útskriftarmyndin'? Á þessum tímapunkti mætti léttilega halda að meira eða minna allt hafi verið sagt og gert hvað Leðurblökumanninn á hvíta tjaldinu varðar. Að vísu er um að ræða eina vinsælustu hetjuna í sögu dægurmenningar í allri sinni mynd, sem hefur verið sundurtekin, sett saman og tækluð á allan mögulegan máta í myndasögum, sjónvarpsþáttum og tölvuleikjum.
Hafsjórinn er gífurlegur en nýir vinklar eru alltaf velkomnir. Gömlu túlkanirnar hverfa ekki og það telst til hins besta máls ef eitthvað getur verið í boði fyrir alla, hvort sem áhorfandinn vill sinn LEGO-Batman, ýktari Batman, kjánalegri Batman, stílískari Batman, reiðari Batman í túlkun Zacks Snyder eða raunsærri Batman-sögu í anda Heat, svo dæmi séu nefnd.
Hér er allavega kvikmynd sem hefur vel unnið fyrir því að vera með greini í titlinum. The Batman er satt að segja fyrsta kvikmyndin um þessa fígúru sem hefur eitthvað fyrir stafni og almennilegt að segja um sjálfan Batman! Ekki bara Bruce Wayne; markmiðið, óttann, sorgina, græjurnar eða illmennin, heldur hvað kryddar mótiveringuna, geðshræringuna, hvað lætur kuldalega einstaklinginn tifa og hvernig Batman sem fígúra er í sjálfu sér flótti hjá tilfinningalega lokuðum Bruce Wayne til að hefna sín á krimmahyski borgarinnar, og þá miskunnarlaust með óttastjórnun sem útrás fyrir áfallið að hafa misst foreldra sína.
Það er ekkert hetjulegt við Batman á hans upphafsstað í þessari sögu, þrátt fyrir að hafa gegnt markmiði sínu í tvö ár. Innkoma hans í augum andstæðingana og vegfarenda er líkari hryllingsfígúru en hetju með siðgæðisreglurnar eða prinsippin á hreinu.
Ýmist er til þess að skoða við þessa hundlöngu en stórlega athyglisverðu endurræsingu. Bíófíklarnir Kjartan, Atli og Tommi fengu DC-prófessorinn Magnús Frey Magnússon aftur i sttúdíóið til að rannsaka og rökræða betur allt sem Matt Reeves, Robert Pattinson og stærra teymið hafa fram að færa með þessum 'Se7en/Zodiac' vinkli á Batman-sögu.
Smellum á okkur grímurnar, upp með hafnarboltakylfurnar og blöstum hljóðkerfinu í Batman-bílnum; þetta verður djöfulsins fjör!
Efnisyfirlit:
00:00 - Slasher-Batman!
17:29 - Pattinson og Bruce
27:21 - Ráðgátan og spillarnir
36:24 - Hasar og ofbeldi
48:44 - "Útskriftarverk"
56:21 - Hvað veit Riddler?
01:08:41 - Hvað framundan er...
Who has been a guest on Bíófíklar
Names identified in recent episode analyses. Showing up to five guests.
Pall Kristinn Jakobsson
Heimir Bjarnason
Ragnar Aðalsteinn Guðjónsson
Hildur Evlalía Unnarsdóttir
Þorsteinn Valdimarsson
Reach and audience
Public platform figures. Ratings count people who left a rating, not total listeners.
Spotify
5.0 / 5
25 ratings
Contact Bíófíklar
Guest appearances
Books guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine