

- 12
- Episodes
- 2020
- First episode
About Byggðalínan
Hlaðvarp Byggðastofnunar
- Publisher
- Byggðastofnun
- Category
- society & culture
- Language
- is
- Explicit
- No
- First episode
- 28 Dec 2020
- Latest episode
- 22 Oct 2021
Latest episodes
12 episodes in the feed.

22 Oct 2021
Byggðalínan: Ellefti þáttur / Agnes Arnardóttir
Guðbjörg og Anna Lilja ræddu við Agnesi Arnardóttur verkefnastjóra Brothættra byggða á Þingeyri. Þingeyri og nærsveitir við Dýrafjörð hófu göngu sína í Brothættum byggðum á árinu 2018 og hlaut verkefnið heitið Öll vötn til Dýrafjarðar. Fjallað var um hvernig verkefnið hefur gengið og á hvaða hátt það hjálpar til við uppbyggingu. "Þetta er langhlaup en ekki spretthlaup og við erum að reyna að sá fræjum og reyna að hlúa að þeim sprotum sem koma þar upp"

7 Oct 2021
Byggðalínan: Tíundi þáttur / Auður Vala Gunnarsdóttir
Í þessum þætti sem og næstu þáttum ætlum við að kynnast mannlífi í brothættum byggðum sem er verkefni á vegum Byggðastofnunar. Nýir þáttastjórnendur Byggðalínunnar, þær Anna Lilja og Guðbjörg ræða við Auði Völu Gunnarsdóttur, eigandi gistihússins Blábjarga á Borgarfirði Eystri. Auður Vala segir frá þeirri uppbyggingu sem átt hefur sér stað á Borgarfirði Eystra og því sem framundan er hjá þeim. Þær ræða líka um kraftinn sem hægt er að virkja í litlum samfélögum og fræðast um löglegt landabrugg. „Landinn er kannski bara okkar vískí eins og við segjum alltaf hér og það er mikil saga í kringum landann. Þetta er sá drykkur sem allir hafa drukkið og allir vitað af en samt verið leyndarmál í öllum kjöllurunum.“

8 Jun 2021
Byggðalínan: Níundi þáttur / Sara Elísabet Svansdóttir
Alfa og Laufey settust niður með Söru Elísabetu Svansdóttur, sveitarstjóra Vopnafjarðarhrepps, sem flutti til Vopnafjarðar frá Reykjavík fyrir tveimur árum. Þær ræddu allt á milli himins og jarðar, en Sara Elísabet kom meðan annars inn á áskoranir þess að taka við sem sveitarstjóri í miðjum kórónuveirufaraldri. Sérstaklega ræddu þær þó lífið í landsbyggðunum, uppganginn á Vopnafirði, tækifærin í kjölfar COVID-19 og ósk Vopnfirðinga um samgöngubætur í formi ganga. „Svo er auðvitað maðurinn minn héðan og allir vinir hans búa hér enn, og svo er bara allt að yngjast upp hérna, fólk er að flytja aftur hingað með börnin sín. Mér finnst það einmitt svo jákvætt. Það hefur margt breyst frá árganginum sem er barnlaus, núna eru stórir árgangar í skólanum og margir óléttir. Fólk er að kaupa sér hús og fasteignamat að hækka.“ „Þetta er alveg erfitt á veturna, mig langar ekkert að keyra í tvo tíma í óveðri á veturna, á einn fund. Mér finnst bara ágætt að geta bara verið hérna heima, og fundir og svona í boði í fjar. Það er bara jafnræði í því.“

7 May 2021
Byggðalínan: Áttundi þáttur / Kári Viðarsson
Laufey og Alfa settust niður með Kára Viðarssyni, eiganda og listræns stjórnanda Frystiklefans á Rifi. Þau spjölluðu saman um Frystiklefann, lífið og listina á Snæfellsnesi. Kári stofnaði Frystiklefinn á Rifi árið 2010 en Frystiklefinn er leikhús, samfélags- og menningarmiðstöð, listamannaaðsetur og farfuglaheimili þar sem haldnir eru menningar- og sögutengdir viðburðir allt árið. Frystiklefinn fékk Eyrarrósina árið 2015 fyrir að vera framúrskarandi menningarverkefni í landsbyggðunum. "Þetta er allt leiksýningunum að þakka að húsið þróaðist og hugmyndirnar fór að breiða úr sér. Urðu stærri og öðruvísi og fóru út í aðrar listgreinar. Þegar ég byrjaði að gera leikhús hérna þá var þetta bara frystihús. Þá byrjaði ég á að breyta einu rými í leikhús. Svo gekk sú sýning mjög vel og þá ákvað ég að gera aðra sýningu og þá langaði mig að vera í öðru rými. Þá breytti ég því rými í leikhús. Svo fór ég að hugsa að það þyrfti kannski að vera bar til að taka á móti fólki, smá móttöku eða þannig. Svo héldum við listahátíð, Æringur hét hún, sem var alþjóðleg listahátíð og þá var fólk að vinna í öllum rýmunum og öllum herbergjum að skapa. Þannig að þetta er listin sem kveikir þessa hugmynd hjá mér að þróa allt húsið og gera allt húsið að „funktional“ skapandi listrænni upplifun.“ Kári hvatti alla til að heimsækja Snæfellsnes í sumar og koma við í Frystiklefanum.

23 Apr 2021
Byggðalínan: Sjöundi þáttur / Berglind Kristinsdóttir
Laufey og Alfa settust niður með Berglindi Kristinsdóttur framkvæmdastjóra Heklunnar. Þær spjölluðu saman um lífið á Suðurnesjunum, jarðskjálfta og eldgos, áskoranir í atvinnumálum og margt fleira. Íbúar á Suðurnesjum eru um 28 þúsund og aðstæðurnar sem þessir íbúar standa frami fyrir núna eru hvorki einfaldar né auðveldar. Þar hefur verið mikil fjölgun íbúa og hátt hlutfall íbúa af erlendu bergi brotnu, miklar sveiflur í atvinnulífinu og mjög hátt atvinnuleysi, jarðskjálftar og svo núna síðast eldgos. "Við ætlum að fara af stað með verkefni sem gengur út á að kanna og kortleggja íbúana sem búa á okkar svæði. Það var einu sinni orðað við Suðurnesin að hérna væri lágt menntunarstig, það átti kannski einhvern tíman við en það á ekki við lengur. Við höfum líka grun um að þessir nýju íbúar okkar sem flutt hafa frá öðrum löndum lumi á einhverju dásamlegu. Við höfum bara ekki spurt þau að því, þannig að við ætlum að gera það." Berglind notaði svo tækifærið og bauð alla velkomna á Reykjanesið í sumar!

2 Apr 2021
Byggðalínan: Sjötti þáttur / Svavar Knútur
Laufey og Alfa settust niður með tónlistarmanninum Svavari Knúti og spjölluðu um landið og listina, litlu samfélögin og aðgengi að menningu. Svavar Knútur hefur sterkar tengingar til landsbyggðanna, er alinn upp í sveit og hefur verið á sjó þó hann búi í borginni. Svavar Knútur fékk nýverið listamannalaun sem hann ætlar að nýta til að heimsækja Brothættar byggðir og spila fyrir fólkið þar. Verkefnið kallar hann Fámennt en góðmennt. „Pælum bara í 100-300 manna samfélagi, Breiðdalsvík eða Raufarhöfn t.d., fólk hefur staðið af sér ótrúlegustu storma. Og hefur með þrjósku og þrautseigju náð að halda lífi í litlu samfélagi. Bara það sem hver og einn leggur fram í þessu samfélagi er svo svakalegt. Í svona litlu samfélagi á Ströndum eða Vestfjörðum þá er hver og einn einstaklingur svo svakalega mikilvægur fyrir allt. Þú ert i leikfélaginu og líka í slökkviliðinu, þú ert í björgunarsveitinni og svo ertu líka trésmiðurinn eða kennarinn. Hver og einn einstaklingur er svo mikilvægur.“

19 Mar 2021
Byggðalínan: Fimmti þáttur / Unnur Valborg Hilmarsdóttir
Laufey og Alfa settust niður með Unni Valborgu Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóra Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Unnur er uppalin á Hvammstanga og flutti aftur þangað eftir um 30 ár í höfuðborginni og býr þar nú ásamt fjölskyldu sinni. Í skemmtilegu kaffispjalli voru mörg málefni landsbyggðanna rædd. Mikilvægi samstöðu og ímyndar sveitarfélaga, virði tímans, mikilvægi innviða og uppbyggingar, sóknaráætlanir landshluta og margt fleira. „Það eru í rauninni hérna allir innviðir sem skipta fólk mestu máli. Það fann ég þegar ég flutti aftur heim. Það er betra aðgengi að leikskóla og í rauninni fæ ég líka betri læknisþjónustu. Það er styttra í allt og það er allt miklu auðveldara... Ímynd sveitarfélaga og byggðarlaga skiptir miklu máli. Þú vilt ekki flytja í sveitarfélag þar sem allt er, allavega út á við, í kalda koli. Þess vegna skiptir svo miklu máli að við séum að tala svæðin okkar upp en ekki niður.“

5 Mar 2021
Byggðalínan: Fjórði þáttur / Íris Arngrímsdóttir
Alfa og Laufey settust niður með Írisi Arngrímsdóttur, vélfræðingi, sem er búsett í Laxárvirkjun og starfar hjá Landsvirkjun. Þær ræddu allt milli himins og jarðar og komu meðal annars inná mikilvægi kvenfyrirmynda og námsval. Sérstaklega ræddu þær lífið í landsbyggðunum, möguleikana þar og tækifærin. “Það eru svo margir fluttir heim! Það er rosalega mikill uppgangur hérna. Það er alveg að verða endurnýjun hérna í sveitinni. Maður sér fram á það að það á eftir að verða enn meiri aukning hérna, því það er til dæmis alltaf verið að auglýsa störf án staðsetninga.”

19 Feb 2021
Byggðalínan: Þriðji þáttur / Arnar Már Elíasson
Arnar Már Elíasson spjallar við Ölfu og Laufeyju um lífið í landsbyggðunum, mikilvægi þess að jafna aðstöðumun landsbyggðanna og ýmis tækifæri til þess. „Ég var ekki eins meðvitaður um þann aðstöðumun sem landsbyggðin býr við, með tilliti til höfuðborgarsvæðisins, sérstaklega í dreifðari byggðunum og þeim sem eru fjærst stærstu byggðakjörnunum. Það er mjög mikilvægt að byggð haldist í landinu öllu, af svo mörgum ástæðum, og til að svo megi verða þá verðum við að reyna að jafna þennan aðstöðumun eins og við getum með einhverjum leiðum. Ein af þeim leiðum eru til dæmis þær lánveitingar sem Byggðastofnun er að veita.“

8 Feb 2021
Byggðalínan: Annar þáttur / Kristján Þ. Halldórsson
Kristján Þ. Halldórsson spjallar við Ölfu og Laufeyju um lífið á landsbyggðunum og verkefnið Brothættar byggðir. „Atvinnutækifærin hafa horfið án þess íbúar hafi fengið rönd við reist og án þess að þeim hafi verið bætt það tjón sem felst í hnignun þessara byggðarlaga. Eignarverð hrynur og atvinnan hrynur og menn sitja eftir með frekar þrönga stöðu. Hinsvegar felast mikil verðmæti í að viðhalda þessum byggðum, til dæmis í ferðaþjónustu eða framtíðarnýtingu auðlinda, og til dæmis í menningunni og fjölbreytninni sem við höfum í byggðum um allt land. Stjórnvöldum ber skylda til að rétta þessum byggðum hjálparhönd og gera allt sem hægt er að gera til að stuðla að áframhaldandi blómlegri byggð.“

20 Jan 2021
Byggðalínan: Fyrsti þáttur / Laufey Kristín Skúladóttir
Fyrsti þáttur hlaðvarpsins. Alfa og Laufey ræða málin og velta fyrir sér mikilvægi grunnþjónustu á landsbyggðunum. Eiga allir landsmenn rétt á sömu grunnþjónustu, óháð búsetu? Hefur grunnþjónusta áhrif á búsetuval einstaklinga? Búa allir landsmenn við jöfn lífsgæði og grunnþjónustu? Grunnþarfir okkar hafa breyst með árunum og það sem við töldum gerviþarfir fyrir einhverjum árum síðan telst til nauðsynja í dag. Nú til dags gerum við kröfum um góðar samgöngur, góð fjarskipti og gott aðgengi að menntun og annarri grunnþjónustu. Sitja allir landsmenn við sama borð í þeim efnum?

28 Dec 2020
Byggðalínan: Kynning
Byggðastofnun kynnir nýtt hlaðvarp stofnunarinnar: Byggðalínuna. Í kynningarþættinum ræða þær Alfa Dröfn Jóhannsdóttir, Eva Pandora Baldursdóttir og Laufey Kristín Skúladóttir, sérfræðingar á þróunarsviði stofnunarinnar, aðeins saman um tildrög hlaðvarpsins og hvers megi vænta á næstunni.
Contact Byggðalínan
- Guest appearances
- Books guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Host of Byggðalínan?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show
Podcast research with Pod Engine