Laugardaginn 14. maí fara fram sveitarstjórnakosningar um land allt í 69 sveitarfélögum. Í Dagmálum Morgunblaðsins er fjallað sérstaklega um aðdraganda kosninganna, skipun framboðslista og stöðu í einstökum sveitarfélögum. Umsjón með kosningaumfjöllun Dagmála hafa blaðamennirnir Andrés Magnússon, Stefán Einar Stefánsson og Karítas Ríkharðsdóttir, sem fara um landið og taka stjórnmálamenn og álitsgjafa tali fyrir hlaðvarpið, auk þess sem góðir gestir koma í streymisþætti Dagmála.
Rykið er að setjast eftir sveitarstjórnakosningarnar um helgina, en víða er eftirleikurinn við meirihlutamyndun eftir. Þar beinast augu manna sérstaklega að borginni. Blaðamennirnir Gísli Freyr Valdórsson og Andrés Magnússon fara yfir flókna stöðu og spá í spilin.
12 May 2022
#27 Niðurtalningin er hafin
Nú eru innan við tveir sólarhringar í að kjörstaðir opni og fólk fær tækifæri til að velja fólk í sveitarstjórnir um land allt. Dagmál Morgunblaðsins hafa gert víðreist um landið og tekið púlsinn á pólitíkusum og kjósendum, allt frá Patreksfirði til Eskifjarðar og frá Húsavík til Vestmannaeyja. Andrés Magnússon, Karítas Ríkharðsdóttir og Stefán Einar Stefánsson, gera upp ferðalagið og ræða um það sem hæst bar á ferð þeirra um landið. Einnig ræða þau horfurnar í þeim sveitarfélögum þar sem spennan er hvað mest fyrir úrslitum laugardagsins. Hver verður næsti borgarstjóri, er Sjálfstæðisflokkurinn líklegur til að halda meirihluta í Hafnarfirði og hver er staða Írisar Róbertsdóttur í hjaðningavígum í Eyjum. Svörin fást í þessum þætti.
5 May 2022
#26 Ótal tækifæri en atvinnustigið hátt
Ómar Garðarsson hefur lengi haft puttann á púlsinum í Eyjum. Hann segir forvitnilegt að fylgjast með pólitíkinni og að harkan sé mikil og persónuleg á þeim vettvangi. Honum kemur á óvart hversu mikil áhrif orrahríðin í tengslum við sölu á eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka virðist hafa.
Hann segir mörg tækifæri blasa við atvinnulífinu í Eyjum, sem í sögulegu tilliti hefur byggt að langstærstum hluta á sjávarútvegi. Ferðaþjónustan eigi mikið inni, ekki síst með bættum samgöngum og þá sé fiskeldi einnig að skjóta rótum á svæðinu.
Contact Dagmál - Kosningar 2022
Guest appearances
Books guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Host of Dagmál - Kosningar 2022?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine