Jóna Dóra, Dale Carnegie þjálfari fær til sín fólk í létt spjall, allt frá því að segja frá því hvernig þau setja sér markmið yfir í hvaða ávinning það hefur þegar maður framkvæmir og nær að vaxa.
Allar ábendingar um hvað þig langar til þess að heyra í Dale Carnegie podcastinu er varðar efni eða viðmælendur má beina á tölvupóstfangið jonadora@dale.is
023. UNGT FÓLK | 20-25 ára | „Ég hugsa vinasambönd eins og ég sé að taka fólk í atvinnuviðtöl“ | Nína Dögg
Í þessum þætti kom Nína Dögg í heimsókn til mín í skemmtilegt, einlægt og persónulegt spjall. Nína er 22 ára nemi í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands og hefur mikinn áhuga á mannlegum samskiptum, persónulegum þroska og velferð fólks. Hún brennur fyrir því að hjálpa öðrum og stefnir á að gera það að lífsstarfi sínu. Meðfram náminu starfar hún einnig á elliheimili þar sem hún fær tækifæri til að sýna umhyggju sína og hjálpa eldri borgurum.
Við ræddum meðal annars hvernig hún tókst á við félagskvíða sinn þegar hún flutti frá Höfn í Hornafirði til Hafnarfjarðar og hóf nám í Flensborg aðeins 17 ára gömul. Nína segir frá þeim áskorunum sem fylgdu þessari miklu breytingu og hvernig hún lærði smám saman að stíga út fyrir þægindahringinn og treysta sjálfri sér betur.
Við fórum einnig inn á mikilvægi fyrirmynda í lífi okkar, hvernig sterk gildi geta mótað okkur sem einstaklinga og hvernig við getum nýtt okkur hrós og jákvæð samskipti til að efla bæði sjálfstraust og samskipti við fólkið í kringum okkur. Nína leggur áherslu á að umkringja sig vinum sem lyfta henni upp, styðja hana og hafa jákvæð áhrif á hana. Hún lýsir því sjálf að hún nálgist vinasambönd nánast eins og hún sé að taka fólk í atvinnuviðtal, þar sem hún velur vandlega hverja hún hleypir nálægt sér.
Hlökkum til að heyra hvað þér finnst um þáttinn!
6 Mar 2025
022. UNGT FÓLK | 20-25 ára | „Ég ætla að gefa mér tækifæri og setja bensín á draumana mína.“ | Brynja Ploy
Brynja Ploy er sálfræðinemi sem hóf vegferð sína í sálfræði með það markmið að lækna sjálfa sig. Hún er ótrúlega fyndin og það væri algjörlega þess virði að sjá hana á uppistandi!
Brynja hefur sótt Dale Carnegie námskeiðið tvisvar sinnum og verið aðstoðarmaður þrisvar sinnum. Áður vildi hún klára kynningar eins fljótt og auðið var, en í dag nýtur hún þess að tala fyrir framan fólk. Með þjálfun og réttu hugarfari hefur hún umbreytt kvíða í styrkleika.
Í þættinum ræðum við hvernig hún nýtir verkfæri úr Dale Carnegie námskeiðinu í daglegu lífi sínu og námi. Hún leggur mikla áherslu á að hlusta af einlægni og muna það sem fólk segir – þar með talið nöfn. Að muna nöfn er lykilatriði í góðum samskiptum, og Brynja deilir frábærum aðferðum til að þjálfa sig í því. Að gefa sér tíma til að læra og nota nöfn annarra getur styrkt tengsl og byggt traust í samskiptum.
Brynja setur sér markmið á einstakan hátt, sem ég sjálf ætla að nýta mér. Það er ótrúlega hvetjandi að heyra hana tala um hvernig hún skapar sér skýra framtíðarsýn og leggur sig fram um að gefa sér sjálfri tækifæri.
Hvet þig, kæri hlustandi, til að prófa þetta sjálf(ur) – gefðu þér tækifæri!
5 Mar 2025
021. Fullorðins | „Hver er munurinn á stjórnanda og leiðtoga?“ | Arnar Páll
Hvernig breytir maður lífi sínu með því að opna sig fyrir nýjum áskorunum? Arnar Páll, Keflvíkingur og viðskiptafræðingur, fór í gegnum spennandi þróunarferli sem hann deilir með okkur í þessum þætti. Hann starfaði lengi á sama vinnustað, þar til Covid breytti öllu. Það var vendipunktur – en hvað tók við?
Arnar leitaði til vinar síns um ráð og í kjölfarið sótti hann bæði Dale Carnegie námskeiðið og Leiðtogafærni, þar sem hann varð síðar aðstoðarmaður þrisvar sinnum. Í dag starfar hann hjá Hópbílum og hefur dýrmæta reynslu af því hvernig menningarmunur getur haft áhrif á vinnustaði. En hvernig berum við okkur að í fjölbreyttu starfsumhverfi?
Arnar er með bráðaofnæmi fyrir óheiðarleika og ræðum við hversu mikilvægt það er fyrir stjórnendur að mynda traust.
Einnig ræðum við um það að hugsa standandi – hvernig það nýtist í starfi og einkalífi. Að geta verið fljótur að hugsa og bregðast við er lykilatriði, en hvernig þjálfar maður sig í því?
🎧 Ekki láta þennan þátt fram hjá þér fara! Uppgötvaðu hvernig þú getur byggt upp traust, orðið hraðari í hugsun og þróað þig sem leiðtoga – bæði í starfi og einkalífi.
Reach and audience
Public platform figures. Ratings count people who left a rating, not total listeners.
Spotify
5.0 / 5
4 ratings
Contact Dale Carnegie podcastið
Guest appearances
Does not typically book guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Host of Dale Carnegie podcastið?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine