Þáttur um drauma, túlkun þeirra og merkingu. Ég fæ góða gesti í heimsókn og við spjöllum um draumana þeirra og hvaða áhrif þeir hafa á lífið og tilveruna.
Albert Eiríksson sagði mér frá nýjum, gömlum og gegnumgangandi draumum í lífi sínu.
17 Apr 2021
Draumar ófrískra kvenna
Hólmfríður Frostadóttir, mamma, sem á von á öðru barni sínu, segir frá draumum á meðgöngunni, og því sem þriggja ára dóttur hennar dreymir.
8 Apr 2021
Hildur Eir - Skömmin, reiðin og impostor syndromið
Við Hildur Eir spjölluðum um gegnumgangandi þemu í draumalífinu hennar, hvernig skömmin og reiðin birtast í draumum og tilfinningunni fyrir því að vera ,,feik"
25 Mar 2021
Gyðjan og jötunninn
Valgerður H. Bjarnadóttir sagði frá mikilvægum draumi og við ræddum um íslenska draumamenningu, draumarækt og alheimsvitundina.
18 Mar 2021
Líkamsmyndin í draumum
Erna Kristín Stefánsdóttir, ,,Ernuland" segir okkur frá draumum sem endurspegla líkamsmyndina, og draumum um hindranir og baráttu.
11 Mar 2021
Martraðir og draumahús
Grímkell Arnljótsson segir frá martröðum og draumahúsinu sínu
4 Mar 2021
Draumabörn
Bylgja Dís Gunnarsdóttir, söngkona og æskulýðsfulltrúi segir okkur frá öllum börnunum sem hana hefur dreymt. Svo koma líka við sögu köngulóarvefur og tíðablóð.
25 Feb 2021
Allt er þegar þrennt er - Merkingarbærar tilviljanir
Guðmundur Karl Brynjarsson, prestur í Lindakirkju segir frá því hvaða áhrif draumar hafa haft á líf hans.
19 Feb 2021
Vatnið, húsið og bíllinn. Viðtal við Margréti Elíasdóttur.
Margrét Elíasdóttir, leikskólastjóri kom til mín í viðtal og sagði mér frá ýmsum draumatímabilum og gegnumgangandi táknum í draumunum sínum. Hún sagði mér líka frá Kristbjörgu Kjeld, sem hún geymdi á kaffistofunni í vinnunni sinni.
16 Feb 2021
Draumavegferðin mín
Fyrsti þátturinn! Hér segi ég frá því hvernig mín vegferð í draumavinnu hefur verið, hvernig hún byrjaði og hvar ég er stödd núna.
Contact Draumalíf
Guest appearances
Books guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Host of Draumalíf?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine