Dýravarpið er hlaðvarp fyrir alla dýravini. Við tökum viðtöl við áhugaverða dýraeigendur, fræðifólk og dýralækna en skjótum líka inn skemmtilegri fræðslu og staðreyndum um dýr. Þáttastjórnendur eru Eva María og Berglind.
Slökkviliðsmaðurinn Guðjón S. Guðjónsson kom til okkar og ræddi brunavarnir fyrir gæludýr. Þetta er seinni þáttur okkar um eldvarnir en í þætti #11 kom Erna og sagði okkur frá skelfilegum atburði sem hún lenti í. Hvað ber helst að varast? Hvernig tryggjum við öryggi dýranna okkar ef eldur kemur upp? Þessum spurningum og mörgum fleiri er svarað í þætti dagsins.
27 Nov 2021
#11 Martröð dýraeigandans - Húsbruni
Erna Christiansen upplifði martröð allra dýraeigenda þegar eldur kviknaði á heimli hennar þar sem hundarnir hennar voru inni. Hún segir okkur frá þessum örlagaríka degi og lífinu eftir brunann.
27 Jul 2021
#10 Andleg örvun, hundasálfræði og þefleikir
Í þættinum í dag ræða Eva María og Berglind andlega örvun eða heilaleikfimi hunda. Þær fara yfir nýlegar rannsóknir um hundasálfræði og fara svo yfir nokkra skemmtilega þefleiki sem allir geta gert með hundunum sínum.
13 Jul 2021
#9 Hjálparhundar og merkileg dýr
Í þættinum ræða Eva María og Berglind við Ragnheiði Lilju Maríudóttur um Lunu, hjálpar hundinn hennar. Einnig var farið yfir dýr sem hafa gert merkilega hluti, eins og að þefa uppi krabbamein.
22 Jun 2021
#8 Umönnun öldunga og regnbogabrúin
Eva María og Berglind ræða við Hönnu Arnórsdóttur, dýralækni, um umönnun öldunga. Hvað er hægt að gera fyrirbyggjandi til að gera ellina betri fyrir dýrin? Hvað þarf að hafa í huga þegar dýrin byrja að eldast? Við ræðum einnig síðustu kveðjuna og hvernig það ferli fer fram.
15 Jun 2021
#7 Tilfinningar og merkjamál katta
Eva María og Berglind ræða tilfinningar og merkjamál katta. Farið er yfir jákvæðar og neikvæðar tilfinningar katta og hvernig hægt er að lesa í hegðun þeirra.
8 Jun 2021
#6 Hundaeftirlitið: Í hvað fara hundaleyfisgjöldin?
Guðfinna Kristinsdóttir ræddi við okkur um hundaeftirlitið, nýja dýraþjónustu hjá Reykjavíkurborg og Dýrfinnu.
1 Jun 2021
#5 Meðganga og fyrstu vikur eftir fæðingu
Eva María og Berglind ræða við Tönju um meðgöngu og fyrstu vikur eftir fæðingu. Berglind og Tanja gengu báðar í gegnum erfitt tímabil þegar barn kom á heimilið.
Styrktaraðili: www.betrimedganga.is
25 May 2021
#4 Hundasvæði
Eva María og Berglind ræða hundasvæði á Íslandi og hvað er gott að hafa í huga þegar farið er á slík svæði.
18 May 2021
#3 Inni- og útikisur
Kolbrún Sara og Anna Margrét ræddu við okkur um inni- og útikisur. Er hægt að gera útikisu að innikisu? Hvað þarf að hafa í huga til að innikisum líði vel? Hverjir eru kostir og gallar við að vera útiköttur? Þessum spurningum og mörgum fleiri er svarað í þættinum.
10 May 2021
#2 Dýraathvörf og götudýr
Eva María og Berglind ræða við Örnu og Dóru um dýraathvörf og götudýr. Arna bjó í Slóvakíu og bjargaði þar hundi og ketti af götunni, sem hún svo flutti með sér heim. Dóra er ein af stofnendum dýraathvarfsins Líflukku.
3 May 2021
#1 Áhrif gæludýra á andlega heilsu
Eva María og Berglind taka viðtal við Braga sem á hundinn Kófú. Bragi segir okkur frá hvernig hann hefur tekist á við djúpt þunglyndi og hvernig Kófú hefur hjálpað honum.
Trigger warning: Sjálfsvígstilraun, þunglyndi, andlegir erfiðleikar
1 May 2021
Kynning
Eva María og Berglind kynna til leiks Dýravarpið og segja stuttlega frá komandi þáttum.
Contact Dýravarpið
Guest appearances
Books guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Host of Dýravarpið?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine