Fjallakastið fjallar um allt tengt útivst og fjallamennsku. Tölum við áhugaverða viðmælendur með fjölbreyttan bakgrunn í útivist og fjallamennsku. Erum á facebook @fjallakastid og instagram @localicelander

Fjallakastið
Claim This Podcastby Solla Sveinbjörns
Podcast Overview
Fjallakastið fjallar um allt tengt útivst og fjallamennsku. Tölum við áhugaverða viðmælendur með fjölbreyttan bakgrunn í útivist og fjallamennsku. Erum á facebook @fjallakastid og instagram @localicelander
Language
🇮🇸
Publishing Since
11/9/2020
Reach the team behind Fjallakastið
Verified contact details for this show aren't on file yet — sign up to get notified when they land.
Recent Episodes

July 7, 2021
10. Siggi Bjarni og Heimir - Everest 2021
Í þessum tíunda þætti af Fjallakastinu, ræddi ég við þá Sigga Bjarna og Heimir um leiðangur þeirra á Everest. Við fáum að kynnast strákunum aðeins og heyra þeirra leið inní fjallamennskuna, hún er mjög ólík hjá þeim félögum og skemmtilega tilviljunar kennd að þeirra leiðir liggja saman. Þrátt fyrir stutt kynni ákvaðu þeir að fara saman í leiðangur, ekki bara stuttan og þægilegan, heldur alla leið á topp veraldar. Það kostaði skipulag og mikið samtal, sem og mikla fjárfestingu í bæðu tíma og pening. Skipulagið og undirbúningurinn skilaði þeim árangri að þeir stóðu á toppi veraldar og voru þar með 10. og 11. íslendingur til að standa á toppi Everest 8.849m. Ekki nóg með að þeir hafi komist á toppinn, þá gekk á ýmsu í leiðangrinum. Það eru ekki margir sem leggja af stað í leiðangur hvað þá á tímum heimsfaraldurs. Meiðsli og veikindi settu strik í reikninginn og fleira. Þrátt fyrir allt gekk leiðangurinn heilt yfir mjög vel og voru þeir að vonum mjög ánægðir með afrekið. Við ræðum mjög ítarlega um veru þeirra á fjallinu og líðan í gegnum leiðangurinn. Mæli með að hlusta!

April 1, 2021
9. Sigurður Ragnarsson - spjall um gönguskíðaleiðangra
Í þessum níunda þætti af Fjallakastinu ræddum ég og Sigurður Ragnarsson, stórvinur minn og samferðamaður í fjallamennsku um gönguskíðaferðir og leiðangra. Siggi er sveitastrákur í húð og hár og eftir að hann kynntist fjallamennskunni fór hann frá því að ætla sér að verða bóndi yfir í fjallaleiðsögumenn á svipstundu. Sigurður uppgötvaði gönguskíði sem ferðatól ungur að aldri og langir leiðangrar fóru snemma að heilla hann. Siggi hefur ekki einungis verið að ferðast á gönguskíðum en hann hefur mikla ánægju af hvers kyns fjallabrölti hvort sem það er ís eða klettaklifur eða fjallgöngur að elta kindur eða ekki. Siggi hefur einnig starfað sem fjallamennskukennari og leiðbeinandi ásamt fjallaleiðsögn um nokkuð langt skeið og en hann er nú í mastersnámi í Jarðeðlisfræði. Siggi hefur meðal annars lagt í leiðangur yfir Vatnajökul þar sem ég og Tómas Eldjárn félagi okkar vorum með í för. Ásamt því hafa hann og Tómas farið í leiðangur yfir Sprengisand árið 2017. Þið getið lesið meira um ferðasögur úr þessum leiðöngrum á www.fjallanetid.is Við ræðum allskonar tips og tricks sem er gott að hafa í huga þegar maður fer í leiðangra sem þessa. Athugið að við erum einungis að tala út frá eigin reynslu og mjög líklegt að fólk sé að gera allskonar öðruvísi en við höfum gert.

March 19, 2021
8. Kristján Bergmann (Mummi) - Mannlegi þátturinn í snjóflóðum
Kristján Bergmann Tómasson (Mummi) er 42 ára gamall, giftur, þriggja barna faðir og mikið náttúrubarn. Hann starfar sem kennari í Verkmenntaskólanum á Akureyri. Mummi er einnig leiðbeinandi hjá Björgunarskólanum og hefur hann meðal annars unnið að gerð kennsluefnis fyrir skólann og er einn höfunda nýrrar snjóflóðabókar sem var að koma út og fjallar m.a. um ferðahegðun, mat og björgun. Þá má þess geta að Mummi er líka þjálfari hjá brettadeild Skíðafélags Akureyrar. Mummi býr yfir persónulegri reynslu af snjóflóðum og í kjölfarið þróaði hann með sér mikla löngun til að læra meira um snjóflóð. Eitt af hans áhugamálum og sérsvið er mannlegi þátturinn þegar það kemur að snjóflóðum. Í þessum þætti ræddum við Mummi mannalega þáttinn í snjóflóðum. Vert er að taka það fram að þessi þáttur er ekki á nein hátt ígildi námskeiðis eða þjálfunar í snjóflóðum. Mikilvægt er að fólk þekki sín eigin takmörk og styrkleika þegar kemur að ferðalögum í snæviþökktu umhverfi og sæki sér viðeigandi þjálfun og þekkingu.
11 total episodes available
Deep-dive analytics for Fjallakastið
Frequently asked questions
Have a different question and can't find the answer you're looking for? Reach out to our support team by sending us an email and we'll get back to you as soon as we can.
- What is Fjallakastið?
- How often does this podcast release new episodes?
This podcast updates daily.
- Where can I listen to this podcast?
This podcast is available on 4 platforms including Apple Podcasts, Spotify, and more. You can also use the RSS feed directly.
- Does this podcast accept guests?
Yes, this podcast regularly features guests.
Legal Disclaimer
Pod Engine is not affiliated with, endorsed by, or officially connected with any of the podcasts displayed on this platform. We operate independently as a podcast discovery and analytics service.
All podcast artwork, thumbnails, and content displayed on this page are the property of their respective owners and are protected by applicable copyright laws. This includes, but is not limited to, podcast cover art, episode artwork, show descriptions, episode titles, transcripts, audio snippets, and any other content originating from the podcast creators or their licensors.
We display this content under fair use principles and/or implied license for the purpose of podcast discovery, information, and commentary. We make no claim of ownership over any podcast content, artwork, or related materials shown on this platform. All trademarks, service marks, and trade names are the property of their respective owners.
While we strive to ensure all content usage is properly authorized, if you are a rights holder and believe your content is being used inappropriately or without proper authorization, please contact us immediately at hey@podengine.ai for prompt review and appropriate action, which may include content removal or proper attribution.
By accessing and using this platform, you acknowledge and agree to respect all applicable copyright laws and intellectual property rights of content owners. Any unauthorized reproduction, distribution, or commercial use of the content displayed on this platform is strictly prohibited.
