Kjartan Long er einn af öflugustu íþróttaútivistarmonnum landsins og veit því sitt hvað um æfingar, hvernig er best að komast í form og undirbúning fyrir þátttöku í mótum og útivistarviðburðum. Kjartan er svo sannarlega fyrirmynd fyrir marga sem taka þátt í almenningsíþróttamótum og hefur hann verið mér ómældur innblástur þegar kemur þjálfun, úthaldi og undirbúningstímabilum. Kjartan er jafnframt einn af landvættaþjálfurunum hjá Ferðafélaginu og er auk þess leiðsegir hann í fjallahjólaferðum og á tinda landsins. Það þarf varla að taka það fram að hann er gríðarlega vinsæll á samfélagsmiðli íþróttafólks, Strava. Það er óhætt að segja að hann búi yfir mikilli þekkingu og við komum víða við í þessum áttunda þætti af Fjallaspjallinu.
26 Mar 2021
#7 Fjallaspjallið - Anna Svavars
Gesturinn okkar að þessu sinni á sér magnaða sögu. Anna Svavarsdóttir er svo sannarlega brautryðjandi þar sem hún tyllir niður fæti. Hún byrjaði ferilinn sinn sem raft guide en endaði í fjallamennskunni fyrir slysni og varð í kjölfarið fyrsta íslenska konan til þess að klífa yfir 8000 metra er hún lagði á fjallið Cho Oyu árið 2003. Hún lét ekki þar við sitja heldur árið 2014 kleif hún fyrst Íslendinga áttunda hæsta fjall jarðar, Manaslu í annari tilraun. Hún hefur einnig verið að ryðja brautina í húsasmíðinni en hún er ein af fáum konum sem hefur meistarapróf í þeirri iðn. Hreint út sagt mögnuð frásögn.
9 Mar 2021
#6 Fjallaspjallið - Helgi Ben
Helgi Ben er sannkallaður reynslubolti í útivist og fjallamennsku. Hann var einn af þeim fyrstu til þess að sækja sér þjálfun út fyrir landssteinana og takast á við tinda á erlendri grund. Hann hefur verið ötull leiðsögumaður og leiðbeinandi á hinum ýmsu námskeiðum og stóð lengi vaktina í helstu útivistarverslunum landsins. Helgi átti hæðarmet Íslendinga á háfjöllunum í 10 ár eftir að hann kleif fjallið Diran í Pakistan en hann var á ferðinni með einum af þekktustu fjallamönnum heims og Íslandsvininum Doug Scott.
23 Jan 2021
#5 Fjallaspjallið - Brynhildur Ólafs og vetrarfjallamennska
Brynhildur Ólafs hefur komið víða við á útivistarferili sínum bæði sem leiðsögumaður og fjallgöngukona. Hún er mikil fyrirmynd og hefur leitt fjölmarga íþróttamenn í gengum Landvættaprógramið, byggt upp Ferðafélag barnanna og ferðast nú á spennandi slóðir með Landkönnuðunum. Brynka er ófeimin við að deila reynslunni sinni og segir okkur frá því hvernig hún lærði að elska hlaup, vegferðinni að því að öðlast reynslu og verða leiðsögumaður sem og stundum sem fara beint inn á reynslubankann. Hún hefur einnig synt yfir Ermasundið, stýrt leiðangri yfir Vatnajökul og komið víða við. Skemmtileg og hvetjandi frásögn hér á ferð.
Í seinni hluta þáttarins svörum við spurningum um vetrarferðamennsku sem við fengum sendar í gegnum samfélagsmiðla. Okkur bárust margar skemmtilegar spurningar og vetrarferðir hafa aldrei verið jafn vinsælar og nú.
23 Dec 2020
#4 Fjallaspjallið - Sigga Ragna
Sigga Ragna er svo sannarlega mikil ævintýrakona og á að baki marga magnaða leiðangra. Hún hefur siglt um heimsins höf og frumfarið leiðir á fjöll í Patagoniu. Hún hefur verið leitt vetursetu á tréskútu sem var frosin inn í ísinn norður í Scoresbysundi þar sem dagurinn er enn styttri en á Íslandi yfir háveturinn og ýmsar áskoranir. Sigga Ragna er líka ein af fáum í heiminum sem hefur siglt í kjölfar Shackleton leiðangursins á samskonar björgunarbát notaður var árið 1914/7 og gengið í fótspor hans yfir Suður Georgíu.
Mögnuð frásögn sem tendrar ævintýraneistann!
9 Dec 2020
#3 Fjallaspjallið - Félagatal með Helga Jó
Hann er alltaf kallaður Helgi Jó og það er óhætt að segja að hann hafi verið ötull útivistarmaður síðustu ár. Helgi kemur víða við og hefur lokið Landvættaþrautinni, arkað um óbyggðir með Landkönnuðum og svo fer hann upp um fjöll og firnindi á fjallaskíðum. Það er hvetjandi og skemmtilegt að hlusta á Helga og við mælum eindregið með viðtalinu fyrir þá sem hugsa sér gott til glóðarinnar og stefna á að taka þátt í dagskrá Ferðafélagsins á nýju ári því það má læra margt af Helga og hans reynslu.
26 Nov 2020
# 2 Fjallaspjallið - Anna Lára
Við spjöllum við frumkvöðulinn og fjallakonuna Önnu Láru sem hefur svo sannarlega lagt sitt af mörkum til íslenskrar fjallamennsku og útivistar. Hún segir okkur söguna af því þegar Suðurhlíðin af Hrútfjallstindum var klifin í fyrsta skipti, af leiðngrinum á Alpamayo sem og fyrsta íslenska leiðangrinum í Himalaya fjöllin.
20 Nov 2020
Kvöldstund með Arlene Blum
Fjalla og vísindakonan Arlene Blum fræðir okkur um líf og störf sín innan vísindageirans.
Contact Fjallaspjallið
Guest appearances
Books guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Host of Fjallaspjallið?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine