Linzi er sálfræðingur sem sér einnig um svefnráðgjöf. Hún heldur uppi heimasíðunni svefnro.is þar sem hún veitir einstaklingsmiðaða svefnráðgjöf fyrir börn frá 0-6 ára. Einnig er hún með @svefnro á instagram þar sem hún miðlar ýmsum fróðleik. Hún talar um greinina sem hún skrifaði um svefn fjölbura og einning tölum við um ýmislegt sem tengist svefni ungabarna yfir höfuð.
7 Feb 2022
10. Drífa Hrund
Drífa Hrund á 4 börn. 15 og 17 ára stelpur og 10 mánaða tvíbura. Hún segir okkur frá meðgöngu og fæðingu og talar um muninn á að eignast barn 21 árs og 38 ára.
5 Dec 2021
9. Helga og Bergur
Þegar hjónin Helga og Bergur kynntust áttuðu þau sig á því að þau ættu margt sameiginlegt. Eitt af því var að þau eiga bæði tvíbura. Þau segja okkur frá því hvernig er að vera tvíburaforeldri með líkamlega fötlun og einnig kemur Helga með mörg góð ráð.
18 Oct 2021
8. Katrín Björk
Katrín Björk er fyrrverandi formaður Tilveru - sem eru samtök um ófrjósemi. Katrín og eiginmaður hennar, Eyþór Máni eru þríbura- og tvíburaforeldrar. Hjónin hafa gengið í gegnum ófá áföllin eins og ófrjósemi, barnsmissi á meðgöngu, brjóstakrabbamein og mótorhjólaslys. Katrín studdist við möntruna „Ég tek því sem höndum ber” til að hjálpa sér í gegnum erfiða tíma. Þau hjónin eru sannkallað ofurfólk!
6 Oct 2021
7. Kjaftatörn.2
Stutt spjall eftir smá pásu þar sem við tölum um sögur af fjölburum sem eru sumar ótrúlegar en mjög skemmtilegar.
15 Sept 2021
6. Angelien Schalk
Angelien eignaðist tvíbura eftir 30 vikna meðgöngu. Hún segir okkur frá TTTS (Twin-to-twin transfusion syndrome) og ferð þeirra hjóna til Belgíu þar sem annar tvíburinn fer í blóðgjöf í móðurkviði, aðgerðir sem hann fór í eftir fæðingu, lífið með 5 börn og kulnun.
8 Sept 2021
5. Erla Reynisdóttir
Erla hafði farið í 9 uppsetningar á fósturvísum hjá Art Medica (sem hét þá) og upplifað fósturmissi þegar þau hjón ákváðu að gerast fósturforeldrar. Daginn eftir símhringingu frá barnaverndarnefnd fóru þau á fund og voru komin heim með strákinn sinn sama dag. Þau ákváðu að fara í eina uppsetningu þar sem þau áttu fósturvísi í frysti og voru komin með jákvætt óléttupróf þegar strákurinn þeirra var nýorðinn 1 árs. Þau eignast þá stelpuna sína og þegar hún er 6 mánaða verður hún ólétt af tvíburum sem kom þeim virkilega mikið á óvart. Þau urðu því 4 barna foreldrar á minna en 3 árum.
1 Sept 2021
4. Kjaftatörn.1
Í kjaftatörn ætlum við að ræða allt og ekkert. Í þessum þætti förum við yfir nokkrar spurningar sem við höfum fengið sendar og spjöllum út frá þeim.
25 Aug 2021
3. Lilja og Grétar
Lilja Dögg fæddist með cystu æxli á eggjastokk og þegar hún var þriggja daga gömul var hann fjarlægður og hún því alltaf verið með einn eggjastokk. Þess vegna var við því búist að barneignir gætu tekið lengri tíma og áttu þau sko heldur betur ekki von á að eignast tvíbura.
19 Aug 2021
2. Valborg Rut
Valborg Rut kom til okkar og ræddi sitt barneignarferli sem hún fór af stað í ein. Hún fór í nokkrar tæknisæðingar ásamt glasafrjógvunum. Það sem kom henni mest á óvart var þegar þríburar komu upp á skjáinn eftir að hafa aðeins séð eitt fóstur í tveimur snemmsónurum.
6 Aug 2021
1. Hanna og Arnar
Í þessum þætti kynnum við okkur og segjum okkar sögu. Við eignuðumst 4 börn á 21 mánuði. Förum yfir erfiðleika ásamt gleðinni og öllu sem fylgir.
Reach and audience
Public platform figures. Ratings count people who left a rating, not total listeners.
Apple Podcasts (US)
5.0 / 5
5 ratings
Contact Fjölburafjör
Guest appearances
Books guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Host of Fjölburafjör?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine