Fjölskyldusögur er hlaðvarp þar sem góðir gestir segja valdar sögur af sinni fjölskyldu.
Umsjón með þáttunum hefur Guðrún Katrín Jóhannesdóttir félags- og fjölskyldufræðingur.
Stef: Einar Snorri
Einar Már Guðmundsson rithöfundur og skáld deilir með okkur fjölskyldusögu sinni og því hvernig fjölskyldumeðlimir hafa margir hverjir verið fyrirmyndir að persónum í bókum hans. Hann segir meðal annars frá uppvexti sínum í Reykjavík, æsku föður síns og föðursystkina sem ólust upp í mikilli fátækt og því hvernig föðuramma hans og börnin hennar sameinuðust öll að lokum og áttu góð tengsl á seinni árum þrátt fyrir aðskilnað á æskuárum systkinanna. Hann segir okkur frá bróður sínum sem han...
1 Feb 2025
Alma D. Möller
Alma D. Möller er svæfinga- og gjörgæslulæknir og núverandi heilbrigðisráðherra okkar Íslendinga. Hún fæddist á Siglufirði og deilir hér með okkur sögum af fjölskyldunni sinni. Við fáum að heyra af móður og móðurömmu hennar sem upplifðu síldarárin, farsóttir og krefjandi tíma. Þær mæðgur áttu það meðal annars sameiginlegt að lifa löngu lífi og búa yfir mikilli seiglu. https://www.instagram.com/fjolskyldusogur?igsh=N3N1Y3MxbmEzendm
5 Jan 2025
Helgi Gunnlaugsson
Helgi Gunnlaugsson er prófessor í félags- og afbrotafræði við Háskóla Íslands. Hann ólst upp á tveimur heimilum í Reykjavík, annars vegar hjá foreldrum sínum og hins vegar hjá móðurömmu sinni. Í þættinum fáum við að heyra einlæga sögu Helga af fjölskyldu hans, sem spannar fjórar kynslóðir, allt aftur til Geirs Zoëga sem var umsvifamikill kaup- og útgerðarmaður á 19. öld. Þetta er áhugaverð frásögn þar sem sögusviðið er reykvískt samfélag hér á árum áður.
31 Dec 2024
Ólafur Þór Ævarsson
Ólafur Þór Ævarsson er doktor í geðlækningum sem ólst upp á Akureyri. Hann segir okkur frá fjölskyldu sinni og hvernig veikindi ömmu og afa gætu hafa haft áhrif á að hann lagði fyrir sig læknisfræði. Hann kemur einnig inn á nýjar rannsóknir sem benda til þess að fleira erfist á milli kynslóða en talið var, eins og hugsanir og tilfinningar. Við komum einnig aðeins inn á streituna enda ekki annað hægt þegar einn fremsti sérfræðingur okkar á sviði streitu kemur í viðtal.
28 Dec 2024
Kristín Berta Guðnadóttir
Kristínu Bertu Guðnadóttur er ýmislegt til lista lagt. Hún er félagsráðgjafi, fjölskyldufræðingur, myndlistarkona og jógakennari, ásamt því að reka Sálarlist. Hún deilir sögu af sinni fjölskyldu sem óhætt er að segja að láti engan ósnortinn.
28 Dec 2024
Katla Margrét Þorgeirsdóttir
Katla Margrét Þorgeirsdóttir er ein af okkar ástsælustu leikkonum. Í þessum fyrsta þætti, af Fjölskyldusögum, deilir hún með okkur fjölskyldusögu sinni þar sem líf og saga móðurömmu hennar, sem ólst upp á Jökuldal, fær sérstakan sess. Við ræðum meðal annars þungar áskoranir í lífi ömmu hennar og hvernig hún tókst á við þær.
Reach and audience
Public platform figures. Ratings count people who left a rating, not total listeners.
Spotify
5.0 / 5
10 ratings
Contact Fjölskyldusögur
Guest appearances
Books guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Host of Fjölskyldusögur?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine