Spjall um allt það sem viðkemur krabbameini á mannamáli, bæði frá sjónarhorni þeirra sem greinst hafa með krabbamein, aðstandenda og annarra. Við tölum um hlutina eins og þeir eru. Þáttastjórnandi er Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir en þættirnir eru framleiddir af Krafti í samstarfi við Vísi.
Höfundur stefs Björn Þorleifsson.
3.10. What to do when diagnosed with cancer in Iceland?
In this last episode of the third series, Anna María Milosz sits down with Thora and tells us about her experience with cancer and the healthcare system in Iceland as a foreigner. Anna Maria is Polish and was diagnosed with a rare blood cancer in 2007. She tells us about the cancer and her overall experience being a foreigner with cancer, what can be done better and what is already good. She recommends that cancer patients take family and/or friends with them to doctors appointments and reminds us that everyone has a right to an interpreter. She also encourages people to contact Kraftur or Ljósið to get the support they need.
24 Jun 2022
3.9. Er brjóstaheilsa á tímamótum?
Að þessu sinni koma þær Svanheiður Lóa Rafnsdóttir brjóstaskurðlæknir og yfirmaður brjóstamiðstöðvar Landspítalans og Ólöf Kristbjörg Bjarnadóttir brjóstakrabbameinslæknir og setjast niður með Sigríði Þóru. Þær fræða okkur um brjóstakrabbamein, meðferðir og úrræði sem í boði eru í baráttunni við slík krabbamein, hvað er gott í þeim efnum hér á landi og hvað má betur fara. Þær hvetja allar konur að mæta strax í brjóstaskimun þegar bréfið berst en benda einnig á hversu mikilvægt það er fyrir allar konur að þekkja líkama sinn vel, þreifa brjóst sín reglulega og leita til læknis ef eitthvað virðist óeðlilegt.
9 Jun 2022
3.8. Ég syrgi eiginmanninn og lífið sem hefði getað orðið
Árið 2017 blasti framtíðin við hjónunum Írisi og Kolbeini, þau voru nýbúin að gifta sig, kaupa ættaróðal út á landi og áttu von á sínu fyrsta barni þegar Kolbeinn veikist skyndilega með lungnakrabbamein. Á tveim árum tók lífið stakkaskiptum en hann lést eftir erfiða baráttu sumarið 2019. Íris fer yfir sögu þeirra hjóna, þeim ákvörðunum sem þau stóðu frammi fyrir varðandi kynfrumur Kolbeins og upplýsingagjöfinni sem þeim var ekki veitt varðandi eyðingu kynfrumnanna eftir lát hans. Í lok þáttarins kemur svo Magnús Norðdahl lögfræðingur og segir okkur frá lögunum um tæknifrjóvgun sem meðal annars fjalla um varðveislu og eyðingu kynfrumna.
Contact Fokk ég er með krabbamein
Guest appearances
Books guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Host of Fokk ég er með krabbamein?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine