Hvað er fóstur? Í þessari hlaðvarpsseríu ræða nokkrir fósturforeldrar um þær gjafir og áskoranir sem fylgja því að taka barn í fóstur. Þau einsetja sér að svara spurningum sem fæstir þora að spyrja og gera það með einlægni og heiðarleika að leiðarljósi. Hvað langar þig að vita?
Í sjötta og síðasta þætti fyrstu seríu hlaðvarpsins Fósturfjölskyldur ræða þau Guðlaugur og Anna Steinunn um Félag fósturforeldra. Þau sitja bæði í stjórn félagsins og þekkja félagið orðið vel. Nýverið fór félagið í stefnumótunarvinnu í takt við ákall meðlimi félagsins og breyttar aðstæður fósturbarna. Þar er framtíðarsýn félagsmanna björt og margt sem vilji er til að breyta og bæta sem styður enn betur við fósturfjölskyldur. Jafningjafræðsla og kaffihúsahittingar eru mikilvægir liðir í fræðs...
24 Mar 2022
Fósturbarnið og kynfjölskyldan
Í þessum fimmta þætti hlaðvarpsins Fósturfjölskyldur ræða þau Guðlaugur, Maja og Hildur um fósturbarnið og kynfjölskylduna. Þau ræða fyrstu kynni við fósturbarnið og það hvenær barnið flytur svo inn. Einnig velta þau fyrir sér hvenær og hvernig má tilkynna að nýtt barn sé komið inn á heimilið. Þá velta þau upp spurningunni hvort allir fósturforeldrar passi við öll fósturbörn? Félagsráðgjafar spila stórt hlutverk í lífi fósturbarna og oft í lífi fósturfjölskyldunnar. Félagsráðgjafinn er ...
17 Mar 2022
Áskoranir
Í þætti dagsins spjalla Maja, Gulli og Hildur um áskoranirnar sem fylgja því að taka barn í fóstur. Áskoranirnar geta verið margar og í þættinum velta þau fyrir sér nokkrum sem eru oft áberandi. Þau ræða m.a. um fordóma sem fósturfjölskyldur og fósturbörn geta orðið fyrir. Fordóma varðandi það sem börnin hafa gengið í gegnum sem einhvers konar stimpil á þau eða þeirra hegðun. Fordóma gagnvart fjölskyldu samsetningu fósturfjölskyldna og margt fleira. Þau ræða hvaða stuðning Félag fósturf...
10 Mar 2022
Daglega lífið
Guðlaugur, Hildur Björk og Maja ræða móttöku fósturbarna en staðreyndin er sú að ekkert fósturbarn kemur án einhvers konars áfalls í fóstur. Hvernig fæðist fósturbarn á heimili? Hvernig er aðlögunin? Það eru ótal mörg horn að líta í þegar barn er tekið í fóstur og margt sem erfitt er að tímasetja eða skipuleggja fyrirfram. Í þættinum ræða þau t.d. þá staðreynd að ekki er fæðingarorlof fyrir fósturforeldra en hvernig er þá aðlögunarferlið? Einnig ræða þau hvað barnið kemur með á nýja ...
3 Mar 2022
Hvernig gerist maður fósturforeldri?
Hildur Björk, Guðlaugur og Anna Steinunn sitja í stjórn Félags Fósturforeldra. Í þessum þætti ræða þau hvernig er hægt að gerast fósturforeldri. Þau segja frá sínum sögum og deila ferlinu með hlustendum. Hvernig er að fá félagsráðgjafa heim til að meta heimilið þitt? Þarf meðmælabréf frá vinum og vandamönnum fyrir foreldrahlutverkið? Hvað er pride námskeið? Eða lífsbók? Einlægt og fræðandi samtal sem svarar mörgum mikilvægum spurningum um það að gerast fósturforeldri. Hér getur þú...
20 Feb 2022
Hvað er fóstur?
Í þessum fyrsta þætti hlaðvarpsins Fósturfjölskyldur ræða þau Guðlaugur Kristmundsson og Hildur Björk Hörpudóttir spurninguna Hvað er fóstur? Þau sitja bæði í stjórn Félags fósturforeldra og eru fósturforeldrar. Spurningar um fóstur sem vakna í kjölfarið eru mýmargar og þau ræða nokkrar, t.d.: Hvað er fósturbarn? Hvað er fósturforeldri? Hvers vegna fer barn í fóstur? Hver er munurinn á skammtíma fóstri, langtíma fóstri og styrktu fóstri? Fylgist með og gerist áskrifendur að hlaðvarp...
Contact Fósturfjölskyldur
Guest appearances
Books guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Host of Fósturfjölskyldur?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine