Samtal við konur um heilsu og lífið sjálft.
Konur búa yfir mikilli visku og við ætlum læra af hvor annarri með því að deila sögum og reynslu af því sem lífið hefur boðið uppá. Ekki halda þetta verði allt voða formlegt því það er ekki minn stíll.
Auk verða heilsuráð og slökunaræfingar frá Gurrý.
Í þessum stutta þætti fer ég yfir 5 einföld atriði sem geta hjálpað þér að borða betur.
Ekki flókið mataræði eða reglur sem er erfitt að fylgja – heldur hlutir sem ég hef séð virka aftur og aftur hjá konum sem vilja líða betur í líkamanum sínum.
Við förum yfir hvernig litlar breytingar, eins og að borða reglulega, fá nægilegt prótein og undirbúa sig aðeins fram í tímann, geta haft meiri áhrif en við höldum.
15 Mar 2026
þegar heilbrigður lífstíll býr til streitu
Í þessum þætti langar mig að tala um eitthvað sem ég sé stundum hjá konum í dag.
Við vitum meira um heilsu en nokkru sinni fyrr. Við vitum hvað við eigum að borða, við vitum að við eigum að hreyfa okkur og passa svefninn – en stundum verður heilbrigður lífsstíll líka að pressu.
Hvernig gerðist það að eitthvað sem átti að láta okkur líða betur varð stundum að öðru verkefni á to-do listanum?
Í þættinum tala ég um hvernig líkaminn bregst við streitu, af hverju einfaldara kerfi virkar oft betur til lengri tíma og hvers vegna stöðugleiki skiptir meira máli en fullkomnun.
Ég deili líka minni reynslu sem þjálfari og hvernig ég set upp æfingar fyrir konur inni á gurry.is, þar sem áherslan er á raunhæfan lífsstíl sem styður lífið – ekki tekur það yfir.
Stundum er lausnin ekki að gera meira.
Stundum er lausnin einfaldlega að gera hlutina aðeins einfaldari.
7 Mar 2026
líkaminn fer ekki í uppnám af ástæðulausu.
Við reynum oft að halda áfram þó líkaminn sé að senda merki.
Við vinnum meira.
Hugsum um aðra.
Reynum að vera sterkar.
En líkaminn safnar öllu sem við upplifum – streitu, álagi og tilfinningum sem fá ekki rými.
Í þessum þætti ræðum við hvernig líkaminn talar við okkur þegar eitthvað þarf að breytast, og hvernig heilun byrjar oft ekki í huganum heldur í líkamanum sjálfum.
Við getum hjálpað líkamanum með leiðum sem eru rólegar og það þarf ekki að setja allt á hvolf.
Reach and audience
Public platform figures. Ratings count people who left a rating, not total listeners.
Apple Podcasts (US)
5.0 / 5
1 ratings
Podcast Authority Score: 9 / 100
A composite of feed quality, social presence, YouTube performance and engagement. Read the methodology.
Quality
19
Social presence
0
YouTube
0
Engagement
0
Contact Fyrir konur- Hlaðvarp með Gurrý Torfa
Guest appearances
Books guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Host of Fyrir konur- Hlaðvarp með Gurrý Torfa?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine