Má þetta í október?? Hlusta á jólalag? Skreyta? Borða piparkökur?? Já stórt er spurt! Við stálumst til að kíkja aðeins í pakkann, jólapakkann. Rýnum í refinn hjá sannri þjóðargersemi, hversu iconic?! Allt hitt í þættinum er smá aukaatriði, biðjum að heilsa öllum og ef þið viljið stelast til að hlusta á eitt jólalag í október látið það þá vera lokalagið hennar Snæju okkar bestu. Healthy nasty true self októjól.
15 Oct 2026
Spúkístjórnin
BÚ! Nýr þáttur mættur, fáránlega spooky í tilefni hrekkjavökunnar sem er á næsta leyti. Fastir liðir á sínum stað, bestu staðirnir fyrir speglaselfie teknir fyrir, búningahugmyndir, spooky aðstæður í hversdeginum OG, kæru hlustendur, engin önnur en Snæfríður Sól aka Snæja sound musicgenius director drolla er mætt aftur til leiks og hún endar þáttinn á mögulega besta spooky sexy halloween lagi allra tíma!!! Þvílík rúsína fyrir þá sem hlusta á þáttinn til enda.
21 Sept 2026
Kósíbankinn
Í þriðja þætti haustsins ræðum við kósýheitin í hversdeginum, hvort sem það er að opna eina crémant eða taka stutta skák, já eða bæði. Við svörum svo stóru spurningunni er þetta grænmeti eða? og einhver (sunna) fær lítið heilablóðfall. Við Rýnum í Refinn hjá Völu Kristínu stórleikkonu og grínista og kynnum inn TVO nýja fasta liði!
Rvkfoodie hornið, þar sem Sunna fer yfir nýjustu fregnir í veitingageiranum, og Thelmadund kemur sterk inn með sérlega uppskriftaúttekt, þar sem demantahrísgrjón og fimm sítrónur koma við sögu. Njótið elskurnar, biðjum að heilsa öllum ❤
7 Sept 2026
Súpur og Skipulag
Já annar þátturinn í röð þar sem súpan er rædd í þaula, þykkar súpur, tærar súpur, beikonsúpur.. svo reynum við að kenna hvorri annarri eitt og annað um skipulag og kíkjum í heimsþekktan bragðaref!
24 Aug 2026
Haust Naglasúpa
Það er útlit fyrir pumpkin spice latte season og við í stjórninni hentum í einn kósí naglasúpuþátt í tilefni þess. Sannkallaður haustbragur er yfir þættinum, hvað er svona gott við haustið? Kunna allir að klæða sig eftir veðri?? EN það var ekki bara rætt um haust heldur hefur hulunni verið svipt af HOT FLOKKUN KARLA eftir ítrekaðar beiðnir frá sponsornum okkar Stefáni í ekkert að frétta pod og það eru ekki einu stórfréttirnar í þættinum heldur verður skoðað ofan í bragðarefinn hjá engum öðrum en PÁLI ÓSKARI!!! hinum eina sanna og .. you won't believe your ears.
Biðjum að heilsa öllum 😘
9 Aug 2026
Íslenskt Sumar pt.2
Hvað er það besta við íslenska sumarið?
Hvernig er hægt að vera sniðugur með nesti og mat í ævintýrum sumarsins?
Er hægt að vera hot i útilegu??
Nýtt þemalag ADLsins?
Er krúttlegra að vera loðinn einhversstaðar?
Verður eitthvað partý sumarsins?
Þurfum við kannski bara logn og einn bol til að sumarið sé gott?
Hefuru strunsað út úr ísbúð?😤
22 Jul 2026
Íslenskt Sumar pt.1
Er Vigdís svo tveggja flokka kona eftir allt saman?
Myndiru drekka baðvatnsbrúnan Collab? Hvernig gerir maður ávaxtasýróp án hita?
Hvernig eldar maður með hráefnum úr íslenskri náttúru? Er sumarkokteillinn Viðey spritz?
Dagsferðir á Íslandi, sólarlanda ADL, gubbusögur og besta gosið í hita.
10 Jun 2026
Morgunstund
Góðan dag elskurnar! Þema þáttarins er hin heilaga morgunstund, hvað gerir morgunstund góða?
Við reynum að svara stóru spurningum lífsins; hvað þýðir stillingin á ristavélinni eiginlega, er hægt að eiga hugmyndir utan samfélagsmiðla, hvað er best að borða í morgunmat og hvað er super marmeladda? Andri Fannar Ottósson dregur okkur svo upp úr drullusvaðinu með ljóði sínu og við fáum hugljúfa innsenda kveðju frá Heru, mannfræðingi, macramé hönnuði og stofnanda Flóðs & fjöru, en hún er sérlegur sérfræðingur í morgunstundinni.
Hellið uppá og njótið ❤
1 Jun 2026
Sósa og (reyndar ekkert) salat
Allt fyrir sósuna! Það er sumar í lofti og því lá beinast við að hafa þema þáttarins sumarlegt og hvað er sumarlegra en sósa og salat? Nema við gleymdum að tala um salat. Hins vegar ræðum við Subway sósur, bestu og verstu sósuna, hvernig Gagga smók gerir góða brúna sósu og auðvitað getum við ekki haldið kjafti með hotflokkunina okkar - hvaða sósa ert þú?
Glænýr sponsor og vinkonudrama?
7 May 2026
Brúðkaupsþátturinn Já
Í þættinum verður farið yfir brúðkaups tips & tricks & do’s & don’ts & kiss me nots & tie the knots. Ekki skilja okkur eftir á altarinu < 3
27 Apr 2026
Allt er vænt sem vel er dænt
Þátturinn fjallar um allt sem tengist því að fara út að borða. Í gæðastjórninni fyrirfinnast nefninlega tveir sérfræðingar í veitingastaðamálum og ein kona sem finnur fyrir vanmætti sínum (og staðsetur sig á óvæntu bæjarstæði á Suðurlandi). Í þættinum verður eftirfarandi spurningum svarað; hvar færðu besta forréttinn? Kokteilinn? Aðalréttinn? Eftirréttinn? Post djamm bitann? Er kál mjög æðislegt? Hraðaspurningar staðsetja okkur svo á forvitnilegum ás hámenningar og lámenningar og þroskasaga sósunnar er kynnt til leiks. Rapparinn Ó Sól-e-mic-o lýkur þættinum með þéttu rími og sjóðheitum takti.
17 Apr 2026
Einfalt og gott
Í þættinum er farið yfir allt þetta einfalda og góða (aðallega matarkyns). Óvænt og ódýrt, skilvirkar uppskriftir, foreldra hacks, besta nammið og óvænt !hot take! (og eitt sögulega basic take reyndar). Kimchi partý, náttföt við kertaljós, saffran perrinn og allir kjammsa Conga! Setjið hvítan dúk á borðið, mundið hníf og gaffal, setjið servéttu í kjöltuna og gúffið svo þennan þátt. Og nenni þér plís að verða að góðu!!! Ath, Snæfríður Sól toppar sig í lokin með eitt stk power ballöðu.
10 Apr 2026
Vinkonur (saumaklúbbs möns og karíókíkvarðinn)
Þema þáttarins er vinátta! hversu cute? Við förum um víðan völl og ræðum m.a. bústaðaferðir og saumaklúbbinn, veitingarnarnar sem því fylgja (algjört aðalatriði), fáum innslag frá vinkonumálaráðherra Íslands Ellu Bjö og kynnum til leiks KARÍÓKÍ KVARÐANN! Ekki gleyma að hlusta í gegn því, eins og vanalega, gæti þar leynst eitt óvænt lítið lag úr smiðju Snæfríðar Sólar!
2 Apr 2026
Lof mér að skvísast
Umræðuefni þáttarins er skvísan. Hotvaktin, skvísuvaktin, óbærilegur skvísuleiki tilverunnar, skvísland ögrum skorið, skvísland er land þitt, skvísa í blíðu og stríðu, á barmi skvísuáfalls, all things skvísa, skvísan - alvarlegt mál, þín innri skvísa.
26 Mar 2026
Hot Food Takes
Í þessum þætti ræðum við okkar allra heitustu skoðanir á öllu matartengdu og svörum spurningum á borð við: getur ís verið heitur? Er í lagi að drekka hvítvín með tælenskum mat? Hvað er boðlegt að setja í bragðaref? Forréttur eða eftirréttur?
20 Mar 2026
Sund (og pullur)
Í fyrsta þætti Gæðastjórnarinnar kryfjum við hið heilaga sund sem allir þekkja og elska. En er hægt að tala um sund án þess að tala um eftir-sunds pulluna? Nei ég bara spyr. Talandi um pylsur, í þessum þætti er rúsínan svo sannarlega í pylsuendanum.
Reach and audience
Public platform figures. Ratings count people who left a rating, not total listeners.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine