Hlaðvarp Gímaldsins 🧡 Gímaldið er fréttatengdur fjölmiðill í áskrift. Við birtum greiningar og fréttaskýringar og gefum út þætti um samfélag, stjórnmál og menningu. Vertu með okkur í að lýsa upp samfélagið. Þú getur gerst áskrifandi hér: https://gimaldid.is/askrift/
Hallgrímur Helgason rithöfundur hefur átt gott ár erlendis og er orðin stórstjarna í Noregi með sextíu kílóa þríleikinn sinn. Hann hefur verið lengst allra höfunda á topp tíu metsölulistum þar í landi allt frá því í byrjun þessa árs. Hann segist aldrei hafa búist við þessum viðtökum en hann hafi alltaf dreymt um að loka hringnum með útgáfu þríleiksins í Noregi einkum í ljósi þess hversu mikið er fjallað um samskipti Norðmanna og Íslendinga í bókunum. Þrátt fyrir miklar annir og veru erlendis vegna kynningarstarfs náði hann engu að síður að skrifa sína nýjustu bók fyrir jólin sem ber þann óvenjulega titil ENGINN DEYR Í IKEA. Þetta er samtímasaga um Alvar, eldri föður sem lokast inni í IKEA með þriggja ára dóttur sinni yfir nótt og eftir það breytist heimurinn í einhvers konar and -veruleika eins og sögupersónan lýsir sjálf. Bókin er reyfarakennd táknsaga um samtímann, helskrun, ofbeldi, valdasýki stórfyrirtækjanna og doðann sem við finnum öll fyrir í vímukenndu stjórnlausu skruni og stingum höfðinu í sandinn þegar við horfum á stríðsátök, sveltandi fólk og börn í sárri neyð í gegnum litla símtækið okkar. Helga Arnardóttir ræddi við Hallgrím meðal annars um nýju bókina, þríleikinn og ævintýrið í Noregi, hakkavélina í athugasemdakerfinu, einsleitt fjölmiðlaumhverfi hér á landi og föðurhlutverkið en Hallgrímur sem er 67 ára á fjögur börn af ólíkum kynslóðum það elsta er 42 ára og yngsta er 8 ára.
Skáldsögurnar Sextíu kíló af sólskini og kjaftshöggum komu báðar út í Noregi á þessu ári og hafa verið á topp tíu metsölulistanum frá því í byrjun janúar.
30 ára eru frá því skáldsaga Hallgríms 101 Reykjavík kom út og í tilefni af vinsældum hans í Noregi verða hún og aðrar eldri bækur hans endurútgefnar þar í landi.
Vinsældir Hallgríms hafa haft áhrif á sölu bókanna út um allan heim og hefur rétturinn af þeim verið seldur til tíu svæða þar á meðal Bandaríkjanna.
Ný bók Hallgríms Enginn deyr í IKEA sem kemur út fyrir þessi jól er táknræn samtímasaga sem fjallar um Alvar, eldri föður sem lokast inni í IKEA með þriggja ára dóttur sinni yfir nótt og eftir það breytist söguheimurinn í einhvers konar and-veruleika.
5 Nov 2026
Hetjur kosninganæturinnar og síðustu tvö ár Trumps
Demókratar stýra senn báðum deildum Bandaríkjaþings eftir sigur í þingkosningunum 3. nóvember. Sigurinn var mun stærri en spáð hafði verið og repúblikanar eru í sárum. Hvað þýðir þetta fyrir síðustu tvö ár Donalds Trump í embætti, og breytir það einhverju hérna megin við Atlantshafið? Eyrún Magnúsdóttir ræðir við Karen Kjartansdóttur um niðurstöðurnar, hetjur kosninganæturinnar og stöðu Trumps. Aðalheiður Ámundadóttir fer yfir hvað demókratar geta gert með nýfenginn meirihluta á meðan repúblikani situr í Hvíta húsinu.
Meðal þess sem rætt er um:
Bláa bylgjan: Af hverju vanmátu kannanir sigur demókrata og hvers vegna skiluðu kjósendur repúblikana sér illa á kjörstað?
Abdul El-Sayed, nýr öldungadeildarþingmaður Michigan og fyrsti múslíminn í öldungadeildinni, og baráttumál hans: „Money out of politics, money into your pocket, Medicare for all“
James Talarico, sem sigraði Ken Paxton í Texas þrátt fyrir milljónir Elons Musk
Peningar í pólitík og hvers vegna þeir dugðu ekki í þetta sinn
Rannsóknarvald þingsins, embættismissismál og neitunarvald forsetans: Hvað geta demókratar raunverulega gert?
Innbyrðis átök milli vinstri arms Demókrataflokksins og flokksforystunnar
Stríðið í Íran og hvort það skýri ósigur repúblikana
Framtíð MAGA-hreyfingarinnar og hverjum repúblikanar kenna um
Möguleg forsetaefni fyrir 2028: Jon Ossoff, J.D. Vance, Marco Rubio, og hvers vegna Zohran Mamdani getur ekki orðið forseti
Hvaða áhrif niðurstöðurnar gætu haft á Evrópu og Ísland
Viðmælandi: Karen Kjartansdóttir
Innslag: Aðalheiður Ámundadóttir
Umsjón: Eyrún Magnúsdóttir
Gímaldið er áskriftarmiðill. Þú getur gerst áskrifandi á gimaldid.is/askrift (https://gimaldid.is/askrift/) eða lagt til frjálst framlag.
2 Nov 2026
Demókratarnir sem geta breytt öllu
Þingkosningar standa fyrir dyrum í Bandaríkjunum. Úrslit þeirra munu ráða miklu um valdsvið Donalds Trump á síðari hluta kjörtímabils hans. Stríðsrekstur forsetans og tollastefna hefur komið verst niður í fylkjum sem venjulega styðja Repúblikana og í mörgum þeirra ríkir nú mikil spenna. Líklegt er talið að Demókratar gætu náð yfirhöndinni í báðum deildum Bandaríkjaþings. Eyrún Magnúsdóttir ræðir við Aðalheiði Ámundadóttur um þýðingu kosninganna, hvað brennur helst á kjósendum og í hvaða fylkjum baráttan um öldungadeildina gæti ráðist.
Óvinsælir ráðherrar gætu átt embættismissi yfir höfði sér vinni demókratar meirihluta í þinginu.
Tapi Repúblikanar þinginu gæti áhersla forsetans á utanríkismál stóraukist.
Hækkað verð á olíu og áburði bítur í helstu vígjum Repúblikana og gagnaver eru orðin kosningamál.
Demókrati sem tapaði forkosningum í Michigan lýsir stuðningi við Repúblikana.
Hófsemdarframbjóðandinn Jon Ossoff slær í gegn og er orðaður við forsetaframboð eftir óvænt flug í Georgíu.
Forsetinn gagnrýnir útlit og klæðaburð eigin frambjóðanda í Texas en dáist að líkamsvexti flokksbróður síns í Ohio.
Læknir sem stóð í málaferlum við 700 sjúklinga mætir presti í Kansas.
Tveir Dan Sullivan eru á kjörseðlinum í Alaska.
Systir Lindsey Graham berst fyrir sæti bróður síns í Suður-Karólínu.
Norður-Karólína er líklegust til að falla til Demókrata.
Fjallað er um kosningabaráttuna og hvað er í húfi í tveimur greinum á vef Gímaldsins (https://gimaldid.is/bjortustu-vonir-demokrata/).
Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu (https://gimaldid.is/askrift) og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag (https://gimaldid.is/studningsmannalid/).
Reach and audience
Public platform figures. Ratings count people who left a rating, not total listeners.
Spotify
4.3 / 5
6 ratings
Contact Gímaldið
Guest appearances
Books guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine