Gleðileg jól!
Þetta er með steiktari Glaðvarpsþáttum en meðal umfjöllunarefna eru útilegur, dúnsængur, ást á Veru Illuga og jólatónleikar Geirs Ólafs.
Þátturinn er í boði Reykjavík Jólabrugg <3
28 Nov 2025
7. Glaðvarpið - Einræðisherra
Í þætti vikunnar setja þáttastjórnendur sig í spor einræðisherra.
Hlustendum er frjálst að ímynda sér hvaða mál yrðu sett í forgang ef þær kæmust til valda, og hvor yrði strangari einræðisherra. Meðal þess sem bar á góma voru galdrakarlar, kjötfars í sumarbústað, dónaskapur á internetinu, löðrungar sem refsiaðgerð, badminton og lausnin við stóra þvottavandanum.
Takk fyrir að hlusta á Glaðvarpið <3
19 Nov 2025
6. Glaðvarpið - Æskan
Símtal við mömmu, álftir, Tussunes, Brandur Enni, Galtalækur, Landmannalaugar og Hitler eru meðal umræðuefna í þessum þætti, þú verður bara að hlusta til að skilja... <3
13 Nov 2025
5. Glaðvarpið - Vandræðalegt
Vandræðaleg augnablik geta verið ansi eftirminnileg.
Í þætti dagsins rifja Glaðverplur (Má segja það? Það er skelfilegt orð en við látum það slæda) upp fyndin, vandræðaleg og jafnvel alveg hryllilega neyðarleg atvik sem þær og fleiri hafa upplifað.
Þátturinn er styrktur af Blush og gefst hlustendum kostur á að giska á hjálpartæki út frá hljóðinu einu. Giski þeir rétt, eiga þeir möguleika á að vinna samskonar tæki, beint frá (Blush)býli!
Takk fyrir að hlusta <3
11 Nov 2025
4. Glaðvarpið - Fyndið
Glaðvarpið er komið með styrktaraðila, og það engan smá!
Afhverju kann Helga ekki að hlæja?
Afhverju segir fólk að Júlíana sé sjúk í Adam Sandler?
Hver var þessi gestur sem mætti upp úr þurru OG HVAÐA SNILLINGUR ER AÐ STYRKJA GLAÐVARPIÐ???
Svörin við öllum þessum spurningum og fleiri er að finna í fjórða þætti Glaðvarpsins.
Afsakið munnræpurnar kæru hlustendur og takk fyrir að hlusta <3
2 Nov 2025
3. Glaðvarpið - Skrýtið
Hvað er í raun og veru skrýtið? Er það að gera pakkasósur? Að fara af stað með Glaðvarp? Eða er kannski skrýtið að vera sérfræðingur í skrýtnu að ræða hvað manni þykir skrýtið?
Í þriðja þætti Glaðvarpsins fá Helga og Júlíana til sín Katrínu Þrastardóttur, sjálfskipaðan og ekkert svo yfirvegaðan „sérfræðing í skrýtnu“, til að reyna að skilgreina hvað fellur undir það hugtak og hvað þeim þykir skrýtið að framkvæma, upplifa og segja. Að sjálfsögðu þróast umræðan yfir í hugleiðingar um maísbaunir, flugeldasýningar, samgöngustofu og lífið sjálft, í allri sinni dýrð.
Það er kannski skrýtið en það var svosem ekki við öðru að búast af þessum þáttastjórnendum.
Takk fyrir að hlusta 💛
1 Nov 2025
2. Glaðvarpið - Miðaldra
Hvað þykir ykkur góð dæmi um að fólk sé orðið miðaldra?
Er það áskrift að prjónablaði, skert geta til að kalla tækninýjungar sínum réttu nöfnum, skert tískuvitund eða eitthvað allt annað?
„Kannski fáum við einhvern tímann gest sem prumpar“, kvartlífskrísa, botox og búkonuhár eru meðal þess sem um var rætt í öðrum þætti Glaðvarpsins, þar sem rauði þráðurinn snerist um hver skilgreiningin á því að vera miðaldra sé og hvort kornungar stúlkurnar sem stýra Glaðvarpinu séu nokkuð flokkaðar undir þann víðfeðma hatt.
Takk fyrir að hlusta á Glaðvarpið <3
31 Oct 2025
1. Glaðvarpið - Hæhæ!
Eftir þrjár misheppnaðar tilraunir við gerð kynningarþáttar gera Glaðvarpsstýrur heiðarlega tilraun til þess að kynna sig án þess að byrja að blaðra um allt nema það sem þátturinn átti að fjalla um, á 15 mínútum. Eitt stórt klapp por favor!
Takk fyrir að hlusta <3
Reach and audience
Public platform figures. Ratings count people who left a rating, not total listeners.
Apple Podcasts (US)
5.0 / 5
1 ratings
Host of Glaðvarpið?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine