Þáttur 5 - Systurnar Ásdís og Nína Margrét Valtýsdætur komu í heimsókn
Systurnar Ásdís og Nína Margrét Valtýsdætur komu í heimsókn. Þrátt fyrir ungan aldur hafa þær stundað golf í 14 ár, æft og keppt við þær bestu. Líkar en samt svo ólíkar að það er yndislegt. Þær voru 9 og 11 ára þegar þær byrjuðu í golfi og segja frá hvernig það var. Systurnar segja sína skoðun á æfingum og keppni og hvað er kannski hægt að bæta. Heilbrigt spjall við frábæra kylfinga og ungar konur þar sem neistinn fyrir lífinu er heldur betur til staðar.
2 Oct 2026
Þáttur 4 - Ólafur Þór Ágústsson framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Keilis er gesturinn.
Ólafur Þór Ágústsson framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Keilis er gesturinn. Óli golf eins og hann var kallaður sem ungur drengur talar um gamla tíma og nýja. Hvernig Hraunið eða fyrri níu varð að veruleika og pælinguna bakvið breytingarnar á Hvaleyrinni. Ný verkefni og margt fleira. Ólafur er maður í fremstu víglínu í íslensku golfi og ástríðan leynir sér ekki.
23 Sept 2026
Þáttur 3 - Hólmar Freyr Christiansson vallarstjóri Korpu. Fór 8 ára uppá golfvöll og er enn ekki kominn heim
Hólmar Freyr Christiansson vallarstjóri Korpu. Fór 8 ára uppá golfvöll og er enn ekki kominn heim. Hólmar segir frá uppvaxtarárum, náminu, starfinu og svarar spurningum frá kylfingum varðandi ástand vallar. Hin hliðin á peningnum er alltaf áhugaverð. Hérna komumst við að rót vandans í orðsins fyllstu.
8 Sept 2026
Þáttur 2 - Ragnar Ólafsson Íslandsmeistari 1981 fer yfir ferilinn.
Ragnar Ólafsson Íslandsmeistari 1981. Lifandi goðsögn í íslensku golfi. Sögur sagðar og ráð gefin. Viðtal sem allir kylfingar hafa vonandi gott og gaman af - ungir sem aldnir. Raggi var sjötugur 1. september því tilvalið að renna yfir ferilinn.
26 Aug 2026
Þáttur 1 - Jón Kristbjörn Jónsson. Jón er sjómaður og stundum kallaður Jón sjóari eða Jón góði
Jón Kristbjörn Jónsson. Jón er sjómaður og stundum kallaður Jón sjóari eða Jón góði. Hýreygur en með vott af eftirsjá, reglubundinn í andlitsfalli, krumlur sterkar og faðmur stór. Brúnt andlitið segir þér að þessi maður hefur séð hafið og horft í sól. Jón segir frá lífinu og golfi - einsog honum er einum lagið.
Contact Golf með Bödda Bergs
Guest appearances
Books guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine