Gestur minn í þessum þætti heitir Guðmundur Jónsson. Hann er arkitekt sem hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir störf sín. Guðmundur sem er búsettur í Noregi útskrifaðist frá Oslo School of Architecture and Design. Árið 1987 stofnaði hann eigin arkitektstofu sem hann hefur leitt síðan.
Meðal verka hans er húsið á Hólum á Snæfellsnesi, sem við fylgdumst með í sjónvarpsþáttunum Gulli byggir.
23 Jan 2026
Að grafa fyrir húsum og pöllum.
Gestur minn í þessum þætti heitir Leifur Guðjónsson. Hann rekur jarðvinnu- og verktakafyrirtækið VGH í Mosfellsbæ og býr yfir mikilli reynslu þegar kemur að jarðvinnu. Við félagarnir fórum víða í þessu skemmtilega spjalli.
23 Jan 2026
Fasteignir og flugvöllur.
Gestur minn að þessu sinni heitir Páll Pálsson. Hann er fasteignasali og mig langaði að ræða við hann um ýmislegt sem tengist lagfæringum á fasteignum, hvernig þær eru verðmetnar og margt fleira á fasteignamarkaði. Hér er framundan virkilega fróðlegt spjall, meðal annars þegar hann og bræður hans könnuðu möguleika á að byggja millilandaflugvöll fyrir utan Selfoss.
12 Feb 2025
Umræða um gler og spegla.
Hér ræði ég við tvo snillinga um gler og spegla. Þeir heita Þórhallur Viðar Atlason og Sigurdór Haraldsson, þeir starfa báðir hjá Íspan á Smiðjuvegi.
24 Jan 2025
Garðurinn, gróðurinn, pallurinn og potturinn.
Gestur minn að þessu sinni heitir Björn Jóhannsson landslagsarkitekt eigandi Urban Beat teiknistofunnar, hann hefur áratuga reynslu af hönnun á görðum, pöllum og skjólveggjum í öllum stærðum og gerðum.
17 Jan 2025
Vinnuföt sem bjarga mannslífum.
Gestur minn í þessu hlaðvarpi er Þórhallur Matthíasson sölustjóri hjá Haga. Þórhallur er mjög fróður um vinnuföt, þróun þeirra og öryggi.
6 Jan 2025
Ævintýrið að Refsstöðum í Hálsasveit.
Gestir mín í þessu hlaðvarpi eru hjónin Anna Lísa Hilmarsdóttir og Brynjar Bergsson. Þau bjuggu um tíma á Refsstöðum. Þau hafa nokkrum sinnum komið fyrir í þáttunum Gulli byggir, þau gerðu upp 70 ára gamalt fjós og fluttu gömlu Bátasmiðjuna í tvennu lagi frá Akureyri niður í Borgarfjörð á sínum tíma. Þessir sjónvarpsþættir eru aðgengilegir á Stöð 2+.
2 Jan 2025
Sparaðu peninga í framkvæmdum.
Gestur minn í þessu hlaðvarpi er Friðrik Guðni Óskarsson pípulagningameistari hjá Bládropa. Hérna förum við yfir nokkur atriði sem geta sparað fólki mikinn pening þegar kemur að framkvæmdum á baðherbergjum. Einnig ræðum við um gólfhita, hitastýringar fyrir ofna og gólfhita svo eitthvað sé nefnt.
20 Nov 2024
Sagan af Kleifakór 8 .
Jóhanna og Þorgils keyptu sér einbýlishús við Kleifakór fyrir nokkrum árum og lentu í miklum vandræðum þegar í ljós kom að húsið hélt ekki vatni. Húsið þeirra var umfjöllunarefni í 8. þáttaröðinni af Gulli byggir á Stöð 2, þáttinn er hægt að nálgast inni á Stöð2+.
21 Jun 2024
Af hverju leka gluggar?
Hér er á ferðinni áhugavert viðtal við Þóri Rúnarsson um ísetningu á gluggum í ný og gömul hús, af hverju leka sumir gluggar en ekki aðrir. Þórir hefur áratugareynslu þegar kemur að þessum verkþáttum.
25 May 2024
Lolla leikkona og húsasmiður.
Gestur minn að þessu sinni er þjóðþekkt leikkona sem ákvað fyrir nokkrum árum að fara að læra húsasmíði. Fram undan er stórskemmtilegt spjall við Ólafíu Hrönn Jónsdóttir eða Lollu.
24 May 2024
Margrét rafvirki og verðandi múrari.
Gestur minn í þessu hlaðvarpi heitir Margrét Arnarsdóttir rafvirkjameistari, kennari og verðandi múrari, hún gerði upp íbúð í Álalind Kópavogi og við fylgdumst með í Gulli byggir fyrir nokkrum árum. Hún var einnig um tíma formaður félags fagkvenna. Hún er kona sem brennur fyrir að vekja athygli á iðngreinum og hvetur ungar konur óspart til að skoða þann valmöguleika. Það er skemmtilegt spjall hér fram undan við hana Margréti.
3 May 2024
Bera á pallinn, veggina, mála hús og þak.
Í þessu hlaðvarpi ræði ég við Gylfa Má Ágústsson málarameistara og sölumann hjá Málningu um hvenær og hvernig við eigum að bera á pallinn og skjólveggina. Einnig um málningu á þök og veggi utandyra. Virkilega áhugavert spjall um alls konar tegundir af olíu og málningu.
1 May 2024
Hulda og Jón Óskar í Básenda.
Gestir mínir í þessu spjalli eru þau Hulda Viktorsdóttir hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir og Jón Óskar Karlsson fasteignasali sem voru í þáttaröð hjá mér árið 2021.
Þau keyptu hús í Básenda í Reykjavík og ætluðu svona rétt að laga eldhúsið, mála og flytja svo inn eins og svo margir ætla að gera, en raunin varð önnur að allar þrjár hæðirnar voru teknar í gegn og rúmlega það.
30 Apr 2024
Lán eða ó-lán.
Hér ræðum við um lánamöguleika þegar kemur að breytingum á húsnæði, nýbyggingum og skuldbreytingum á lánum. Þetta er kannski ekki mest "sexy" umræðuefni sem til er, því lána frumskógur getur verið flókinn. Ég fékk hins vegar til mín mann sem getur útskýrt þetta á mannamáli, hann heitir Jónas R Stefánsson og er sérfræðingur á einstaklingssviði hjá Landsbankanum. Ég skora á ykkur að hlusta á þetta spjall, þið gætuð grætt á því.
29 Apr 2024
Þórhalla og Dr. leður
Þá er komið að því að ræða við tvo frábæra bólstrara, þau Þórhöllu Sólveigu Sigmarsdóttur sem rekur Bólstrun Þórhöllu á Smiðjuvegi og Ólaf Geir Magnússon eða Dr. leður. Það er skemmtilegt spjall hér fram undan, ég get lofað ykkur því.
23 Apr 2024
Jón Axel & JAX handverk.
Æsku vinur minn Jón Axel Ólafsson byrjaði fyrir nokkrum árum að framleiða garðhúsgögn undir nafninu JAX handverk og það fyrir algera tilviljun.
22 Apr 2024
Kristján málari
Gestur minn að þessu sinni heitir Kristján Arnar Sveinsson, hann er málarameistari sem rak fyrirtækið Litbrigði í mörg ár. Hann hefur nokkrum sinnum komið við sögu í þáttunum Gulli byggir bæði sem ráðgjafi og málari. Við ræddum um breytingar á starfinu í gegnum árin bæði þegar kemur að efnum og vinnuaðferðum.
21 Apr 2024
Jónína og Fannar
Gestir mínir að þessu sinni heita Jónína Björg Benjamínsdóttir og Fannar Óli Ólafsson Þau voru í sjónvarpsþætti hjá mér árið 2019 eftir að hafa keypt einbýlishús í Árbænum, ætluðu þau rétt að mála og flytja svo inn en sú varð ekki raunin, því húsið var í aðeins verra standi en þau héldu. það gerist stundum.
Reach and audience
Public platform figures. Ratings count people who left a rating, not total listeners.
Apple Podcasts (US)
5.0 / 5
1 ratings
Contact Gulli byggir
Guest appearances
Books guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Host of Gulli byggir?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine