Podcast thumbnail for Hjallastefnan heima

Hjallastefnan heima

Claim This Podcast

by Hjallastefnan

5.0(4 reviews)
10 episodes
Updated Daily
Accepts GuestsHas SponsorsLocation 🇮🇸

Podcast Overview

Hjallastefnan heima er ætlað að vera stuðningur við barnafjölskyldur og gera fjölskyldulífið og uppeldið ánægjulegra. Við deilum lykilþáttum í hugmyndafræði Hjallastefnunnar sem við vitum að virkar vel í öllum aðstæðum. Í þáttunum er rætt við skólastýrur, kennara, foreldra og aðra góða gesti sem veita góð ráð sem nýtast heima fyrir.

Language

🇮🇸

Publishing Since

4/14/2020

1 verified contact email on file for Hjallastefnan heima

Pitch yourself as a guest, propose sponsorships, or reach out directly to the host.

Recent Episodes

Episode thumbnail for #10 Jólin: Að velja einfaldleikann

December 7, 2020

#10 Jólin: Að velja einfaldleikann

Jólin eru að nálgast og öll viljum við skapa gleðileg jól. Í þessum þætti fylgjum við eftir hugvekjunni okkar, Að velja einfaldleikann, og hvernig við getum skapað aðstæður til að líða vel á þessum tímum. Við ræðum galdurinn í einfaldleikanum og valdeflinguna sem felst í því að við höfum alltaf val. Þó valið sé stundum einungis um viðbrögð okkar. Þær Arna og Jensa á Laufásborg eru vinkonur þáttarins. Þær ræða gamlar og nýjar hefðir og mikilvægi þess að leyfa jólunum að þróast með kynslóðum. Nú er tíminn til þess að æfa sig í að taka meðvitað val um það sem við veljum inn í líf okkar og spyrja áleitinna spurninga. „Er þetta að þjóna mér og minni fjölskyldu?“ Markmið okkar í Hjallastefnunni er ávallt að valdefla foreldra í uppeldinu og að vera stuðiningur svo að þeim gangi betur í sínu mikilvæga hlutverki. Þú ert sérfræðingur í þínu barni og veist hvað er best fyrir þig og þína fjölskyldu. Nú sem aldrei fyrr dynja ráðleggingar úr öllum áttum sem segir okkur að við erum öll að leita jafnvægis. Þar liggur svarið hjá hverju og einu okkar, hvernig við finnum leið til að skapa vellíðan, sátt og gleði. Kæru hlustendur við vonum að þið njótið þáttarins og gleðilega hátíð.

Episode thumbnail for #9 Bónusþáttur: Kynjabreytan sem þarf að ræða

October 28, 2020

#9 Bónusþáttur: Kynjabreytan sem þarf að ræða

„Á meðan fólk viðurkennir ekki mikilvægi kynjabreytunnar, að hún sé grundvallaratriði fyrir börn þá gerist ekki neitt,“ segir vinkona þáttarins og höfundur Hjallastefnunnar Margrét Pála Ólafsdóttir. Í þessum mikilvæga þætti ræðum við hvernig börn upplifa kyn og kynhlutverk sitt frá fæðingu. Einnig um þau börn með kynvitund sem samræmist ekki því kyni sem því var úthlutað við fæðingu. Þegar komið er á skólastig hefst kynjaspeglunin svokallaða, þegar stúlkna- og drengjahópar sjá hegðun hvors annars og „af-læra“ hana. Við ræðum hvernig má stíga inn í þessar aðstæður og kenna samvinnu, virðingu og kærleik. „Á meðan við sjáum þessa ólíku hegðun kynjanna og fáum ólíkar niðurstöður í hendurnar á borð við námsárangur drengja og sjálfsmynd stúlkna þá er argað á okkur: hvað ætlum við að gera?“ Eiga þá allir skólar að innleiða Hjallastefnuna? „Vitaskuld ekki,“ svara Magga Pála „Finnum eins fjölbreyttar leiðir og hægt er, en allir verða að ávarpa kynjabreytuna á einhvern hátt. “

Episode thumbnail for #8 Magga Pála svarar spurningum hlustenda

October 5, 2020

#8 Magga Pála svarar spurningum hlustenda

Höfundur Hjallastefnunnar, Margrét Pála Ólafsdóttir, er vinkona þáttarins. Magga Pála svarar spurningum hlustenda, hvernig sé hægt að komast fram hjá bannorðinu ekki, hugmyndir að kjarkæfingum og svo margt fleira í þessum stútfulla þætti. Hjallastefnan mætti mikilli mótstöðu þegar hún var stofnuð fyrir 31 ári síðan: kynjaskipting, opinn efniviður, náttúrulegt útisvæði og ólíkar kennsluaðferðir fyrir drengi og stúlkur. Magga Pála segir okkur frá upphafinu og hvernig hún öðlaðist kjarkinn í að feta nýja leið í skóla- og uppeldismálum. Síðan þá hefur Hjallastefnan náð mælanlegum árangri og ræðum við sérstaklega drengi innan skólakerfisins. Hvernig þarf að nálgast þá með nýjum hætti til að snúa við þróuninni þegar kemur að lestri og brottfalli drengja úr skóla.

10 total episodes available

Deep-dive analytics for Hjallastefnan heima

Frequently asked questions

Have a different question and can't find the answer you're looking for? Reach out to our support team by sending us an email and we'll get back to you as soon as we can.

What is Hjallastefnan heima?

Hjallastefnan heima er ætlað að vera stuðningur við barnafjölskyldur og gera fjölskyldulífið og uppeldið ánægjulegra. Við deilum lykilþáttum í hugmyndafræði Hjallastefnunnar sem við vitum að virkar vel í öllum aðstæðum.

Í þáttunum er rætt við skólastýrur, kennara, foreldra og aðra góða gesti sem veita góð ráð sem nýtast heima fyrir.

How often does this podcast release new episodes?

This podcast updates daily.

Where can I listen to this podcast?

This podcast is available on 4 platforms including Apple Podcasts, Spotify, and more. You can also use the RSS feed directly.

Does this podcast accept guests?

Yes, this podcast regularly features guests.

Legal Disclaimer

Pod Engine is not affiliated with, endorsed by, or officially connected with any of the podcasts displayed on this platform. We operate independently as a podcast discovery and analytics service.

All podcast artwork, thumbnails, and content displayed on this page are the property of their respective owners and are protected by applicable copyright laws. This includes, but is not limited to, podcast cover art, episode artwork, show descriptions, episode titles, transcripts, audio snippets, and any other content originating from the podcast creators or their licensors.

We display this content under fair use principles and/or implied license for the purpose of podcast discovery, information, and commentary. We make no claim of ownership over any podcast content, artwork, or related materials shown on this platform. All trademarks, service marks, and trade names are the property of their respective owners.

While we strive to ensure all content usage is properly authorized, if you are a rights holder and believe your content is being used inappropriately or without proper authorization, please contact us immediately at hey@podengine.ai for prompt review and appropriate action, which may include content removal or proper attribution.

By accessing and using this platform, you acknowledge and agree to respect all applicable copyright laws and intellectual property rights of content owners. Any unauthorized reproduction, distribution, or commercial use of the content displayed on this platform is strictly prohibited.