Hjúpurinn er ný hlaðvarpsþáttaröð sem sviptir hulunni af loftslagsmál í leit að aðgengilegum, óhefðbundnum en umfram allt SKEMMTILEGUM lausnum við loftslagsvandanum ― svo þú getir andað léttar!
Þáttastjórnendur: Patricia Anna Þormar & Silja Elvarsdóttir
Grafík: Aron Freyr Heimisson
Ljósmyndir: Sonja Margrét Ólafsdóttir
Íslensk villiblóm: Pastel blómastúdíó
Tónlistarstef: Kjartan Baldursson
Hvað á að kjósa? Hvernig metum við hvaða stjórnmálaflokkur/ar ætla að taka almennilega til í umhverfismálum og leggja metnað í þennan málaflokk?
Svarið við því er varla augljóst og því létu Ungir umhverfissinnar vinna svonefndan Sólarkvarða og mátuðu hann við stefnur stjórnmálaflokkana fyrir komandi kosningar. Kvarðinn kemur til með að nýtast öllum sem vilja nýta atkvæði sitt í þágu loftslagsmála, náttúruverndar og uppbyggingu hringrásarsamfélags.
Við bendum á að niðurstöður einkunnagjafar í heild sinni verða kynntar á sérstökum fundi í Norræna húsinu næstkomandi föstudag, 3. sept kl 12.15, og jafnframt verða þær birtar á vef Sólarinnar, www.umhverfissinnar.is/solin.
15 Mar 2020
Reykjavík Tool Library
Fyrir þá sem vilja heyra eitthvað annað en kórónufréttir þá er Hjúpurinn kominn aftur eftir laaaaangt hlé! Við ræddum við frumkvöðulinn á bak við Reykjavík Tool Library, Anna Worthington de Matos, um munum á deilihagkerfi🤝 og hringhrásarhagkerfi♻️, DIY vinnustofur og Repair Café 🔧☕️, um aðgengi, frumkvöðlastarfið og fyrstu ljósaperu sögunnar💡 og margt fleiri en ekki síst um samfélagið og hugsjónina á bak við þetta frábæra framtak.
Ath. upptakan fer fram að mestu leyti á ensku.
23 Oct 2019
Borgin og grasrótin
Í nýjasta þætti Hjúpsins ræddum við um menningarlega fjölbreytni, hagsmunagæslu, nýsköpunarhakk, og þá fjölþættu vettvanga þar sem borgin og grasrótin koma saman til að knýja fram breytingar til batnaðar á sviði loftslagsmála. Gestir okkar þessu sinni voru þau Hrönn Hrafnsdóttir sérfræðingur hjá Reykjavíkburborg og Pétur Halldórsson, formaður Ungra umhverfissinna.
Við hvetjum hlustendur eindregið til þátttöku í Climathon nýsköpunarhakkið sem fer fram föstudaginn 25. október 2019! Frekari upplýsingar má finna á https://climathon.climate-kic.org/en/reykjavik (https://climathon.climate-kic.org/en/reykjavik).
13 Oct 2019
Extinction Rebellion
Hvað er Extinction Rebellion og hvernig vilja þau breyta því hvernig við hugsum um loftslagsmál?
Við fengum til okkar þá Gísla Sigurgeirsson og Guðmund Ragnar Guðmundsson og ræddum um listina að láta handtaka sig, að finna gleðina í baráttunni og hvað það merkir í raun að vera róttækur (og hvernig það tengist—óbeint —rótargrænmeti)!
Verði ykkur að góðu...
12 Sept 2019
Grænar fjárfestingar
Hvernig getum við látum peningana vinna fyrir okkur OG margfaldað ávinningin fyrir umhverfið í leiðinni? Hvaða kostir eru í boði fyrir þá sem vilja fjárfesta í grænni framtíð? Við vildum vita svarið og fengum því til okkar Kristínu Jónu Kristjánsdóttur og Brynjólf Stefánsson, starfsmenn Íslandssjóða, til að útskýra hvernig svokölluð græn skuldabréf virka og ræða hvort sjálfbærar, ábyrgar fjárfestingar séu að verða nýju trendin í fjármálaheiminum!
5 Sept 2019
Ungmenni og umhverfisfræðsla
Við skyggnumst inn í starf Silju Elvarsdóttur sem er nýr meðstjórnandi Hjúpsins, en hún hefur ýmsa reynslu að miðlun umhverfismála til ungmenna ásamt því að stunda nám í umhverfisstjórnun og -miðlun í Svíþjóð. Við ræðum um hnattrænt jafnrétti, "ecosystem services" og kynnumst því hvaða hlutverki lýðræði og fræðsla spilar við miðlun hugmynda um náttúruvernd.
29 Aug 2019
Hvað er svona hræðilegt við hamfarahlýnun?
Getur húmor hjálpað okkur að nálgast ógnvænleg vandamál eins og hamfarahlýnun? Hvaða hlutverki gegnir grín þegar kemur að því að breyta samfélögum? Við fengum til liðs við okkur leikkonuna og grínistann Sögu Garðarsdóttur og baráttukonuna og húmoristann Katrínu Oddsdóttur til að varpa ljósi á þetta. Við ræddum allt frá sjálfsfróun til stjórnarskrár, frá borgaralaunum til bókasafna, kaffimál og keppni (og allt á háalvarlegum nótum, að sjálfsögðu...)
Njótið vel - Takk fyrir okkur Saga og Kata!
23 May 2019
Til hvers að lýsa yfir neyðarástandi?
Til hvers að lýsa yfir neyðarárstandi og hvers vegna getum við ekki beðið? Halldór Reynisson, verkefnisstjóri umhverfismála kirkjunnar, er gestur Hjúpsins þessa vikuna og við ræðum um nýlega ákvörðun preststefnu um að lýsa yfir neyðarástandi, um forystusauði og ráðsmennsku yfir jörðinni, kirkjur og vísindi.
Ættu íslensk stjórnvöld að lýsa yfir neyðarástandi vegna loftslagsmála? Skiljið eftir athugasemdir ykkar í komment!
11 Apr 2019
Hjúpurinn - Fimmti þáttur: 11 leiðir að betra loftslagi fyrir lata umhverfissinna
Hjúpurinn veitir áheyrundum ráð um hvernig megi stemma stigu við loftslagsbreytingum og minnka umhverfissporið sitt. Þátturinn er einkum ætlaður lötum umhverfissinnum eða þeim sem eiga erfitt með að taka af skarið og ráðast í umfangsmiklar lífsstílsbreytingar!
5 Apr 2019
Hjúpurinn - Fjórði þáttur: Forvitni er fyrsta skrefið
Gestur Hjúpsins þessa vikuna er Dr. Snjólaugu Ólafsdóttur sjálfbærniráðgjafi en hún hefur nokkur óvænt en skemmtileg ráð til að takast á við loftslagsvandann.
1 Apr 2019
Hjúpurinn - Þriðji þáttur: Loftslagskvíði
Gestur Hjúpsins þetta skiptið er Daðey Albertsdóttir, en hún meistaranemi í klínískri sálfræði og skrifaði grein sem ber heitið Með loftslagsáhyggur heimsins á herðum mér (aðgengilegt á Vísi). Hér ræðum við um loftslagskvíða og hvaða ráð eru við honum.
Umsjón: Patricia Anna Þormar
Tónlistarstef: Kjartan Baldursson
21 Mar 2019
Hjúpurinn - Annar þáttur: Samgöngur og lífsgæði
Sigurborg Ósk Haraldsdóttir formaður skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkur og borgarfulltrúi Pírata spjallar um draumaborgarskipulagið, vistvænar samgöngur, lífsgæði og gatnamótatónleika.
14 Mar 2019
Hjúpurinn - Fyrsti þáttur: Loftslagsverkfall!
Hjúpurinn er nýr hlaðvarpsþáttur sem fjallar um lausnir við loftslagsvandanum. Fyrstu gestir þáttarins eru Elsa María Guðlaugs og Drífudóttir, formaður Landssamtaka Íslenskra stúdenta og Sigurður Loftur Thorlacius, ritari Ungra umhverfissinna, sem ræða um loftslagsverkföll stúdenta og hvaða aðgerðir þau telja nauðsynlegar til að stemma stigu við auknum útblæstri.
Reach and audience
Public platform figures. Ratings count people who left a rating, not total listeners.
Apple Podcasts (US)
4.0 / 5
3 ratings
Contact Hjúpurinn
Guest appearances
Books guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Host of Hjúpurinn?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine