Peptíð virðast vera á allra vörum nú um stundir, umtal um þessi efni sem ganga kaupum og sölum eftir óhefðbundnum leiðum og eru sögð bæta heilsu og útlit með ýmsu móti. En hvað eru peptíð ?
Hjalti Kristinsson er doktor í lyfjafræði, sérfræðingur hjá Lyfjastofnun, og hann útskýrir hvað peptíð eru. Þetta séu efnakeðjur sem finnast í líkamanum en hafi líka verið nýtt í lyfjagerð um árabil, í meira mæli þó á síðari tímum. Og skyndilega jókst áhugi almennings svo um munaði, og margir virðast óhræddir við þá áhættu sem fylgir því að verða sér úti um það sem selt er sem peptíð utan löglegra leiða, og sprauta efnunum í líkamann.
Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
5 Nov 2024
34. Hugtakið "lyf" - Viðar Guðjohnsen
Viðar Guðjohnsen lyfjafræðingur og sérfræðingur hjá Lyfjastofnun skrifaði í vor ritgerð til ML gráðu í lögfræði við Háskólann á Bifröst. Viðfangsefnið var lagaleg greining lyfjahugtaksins nú til dags en það er einnig skoðað á sögulegum grunni. -Í þættinum skýrir Viðar mikilvægi þess að hafa skýra skilgreiningu á hugtakinu "lyf" og nefnir dæmi um hvernig hún nýtist til að aðgreina lyf frá annars konar vörum, t.d. fæðubótarefnum og snyrtivörum.
-Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
27 May 2024
33. ADHD lyf í stórum skömmtum - Vilhjálmur Hjálmarsson; sérfræðingar Lyfjastofnunar í lyfjagát
Umræða um lyfjameðferð við ADHD kemur nokkuð reglulega upp, nú síðast með þeim upplýsingum að um fimmtungur ávísana á ADHD lyf sé upp á stærri skammta en ráðlagðir eru samkvæmt þeim rannsóknum sem markaðsleyfi byggja á. Í þessum þætti í hlaðvarpi Lyfjastofnunar er rætt um þessi mál við Vilhjálm Hjálmarsson, formann ADHD samtakanna, og Guðrúnu Stefánsdóttur og Guðrúnu Selmu Steinarsdóttur, sérfræðinga hjá Lyfjastofnun sem m.a. sinna vinnslu aukaverkanatilkynninga.
-Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
Contact Hlaðvarp Lyfjastofnunar
Guest appearances
Books guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Host of Hlaðvarp Lyfjastofnunar?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine