Skattaskjól gera sterkefnuðum einstaklingum og fyrirtækjum kleift að komast hjá sanngjörnum greiðslum í sameiginlega sjóði. Alex Cobham, hagfræðingur og framkvæmdastjóri Tax Justice Network fjallar um skattaskjól og áhrif þeirra. Tax Justice Network sem eru sjálfstæð alþjóðleg samtök sem berjast fyrir sanngjörnum skattkerfum og fyrir alþjóðlegu regluverki sem kemur í veg fyrir skattaundanskot.
Erindið er hluti af hádegisfundaröð Vörðu – rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins, ASÍ og BSRB þar sem fjallað er um réttu leiðina út úr kreppunni. Á fundunum er fræðileg umfjöllun fléttuð saman við reynslu af skipulögðu starfi verkalýðshreyfingarinnar og annarra almannasamtaka.
Hægt er að horfa á upptöku á erindinu, með texta, á heimasíðu Vörðu rannvinn.is og á Youtube (https://www.youtube.com/watch?v=V2_xdpzrmps&t=47s (https://www.youtube.com/watch?v=V2_xdpzrmps&t=47s))
24 Aug 2020
Græna leiðin út úr kreppunni
Loftslagskrísan er enn eitt helsta viðfangsefni samfélagsins og nú er tækifæri til breytingar þegar hagkerfið er endurreist. Ann Pettifor, hagfræðingur og höfundur „The Case for the Green New Deal“ er ein af upphafshugsuðum um grænan nýjan samfélagssáttmála sem hefur verið í þróun beggja vegna Atlantshafsins. Hún fjallar um hvernig við getum breytt hagkerfinu þannig að það verndi og vinni fyrir umhverfið.
Erindið er hluti af hádegisfundaröð Vörðu - rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins, ASÍ og BSRB þar sem fjallað er um réttu leiðina út úr kreppunni. Á fundunum er fræðileg umfjöllun fléttuð saman við reynslu af skipulögðu starfi verkalýðshreyfingarinnar og annarra almannasamtaka.
Hægt er að horfa á upptöku af erindinu, með texta, á heimasíðu Vörðu rannvinn.is og á Youtube (https://www.youtube.com/watch?v=MaWbh7uClqY&feature=emb_logo (https://www.youtube.com/watch?v=MaWbh7uClqY&feature=emb_logo))
4 Aug 2020
Rétta leiðin gegn spillingu
Verkalýðshreyfingin hefur kallað eftir að skilyrði séu sett við aðgerðir stjórnvalda í kjölfar Covid-faraldursins og að eftirlit verði með því að þeim verði framfylgt. Guðrún Johnsen, hagfræðingur og formaður stjórnar Gagnsæis – samtaka gegn spillingu fjallar um hvernig má fyrirbyggja spillingu og efla traust.
Erindið er hluti af hádegisfundaröð Vörðu – rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins, ASÍ og BSRB þar sem fjallað er um réttu leiðina út úr kreppunni. Á fundunum er fræðileg umfjöllun fléttuð saman við reynslu af skipulögðu starfi verkalýðshreyfingarinnar og annarra almannasamtaka.
Hægt er að horfa á upptöku á erindinu, með texta, á heimasíðu Vörðu rannvinn.is og á Youtube (https://www.youtube.com/watch?v=umYi1HnOdH8 (https://www.youtube.com/watch?v=umYi1HnOdH8))
31 Jul 2020
Rétta leiðin gegn niðurbroti stéttarfélaganna
Hvað er niðurbrot stéttarfélaga og hvernig er hægt að verjast því? Hér segir Christian Sweeney frá AFL-CIO, sem er stærsta verkalýðssamband Bandaríkjanna, frá þekktum leiðum til að grafa undan skipulögðu starfi stéttarfélaganna. AFL-CIO hefur áralanga reynslu af að fást við fyrirtæki sem beita slíkum aðferðum og við ráðgjafafyrirtæki sem bjóða fram þjónustu til að brjóta niður stéttarfélög.
Sigurður Pétursson, sagnfræðingur, fjallar um reynslu Íslendinga af niðurbroti verkalýðsbaráttunnar. Sigurður ritaði bækurnar Vindur í seglum I-III, sem fjalla um sögu verkalýðshreyfingar á Vestfjörðum 1890-1970. Hann er nú kennari við Menntaskólann að Laugarvatni.
Erindið er hluti af hádegisfundaröð Vörðu - rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins, ASÍ og BSRB þar sem fjallað er um réttu leiðina út úr kreppunni. Á fundunum er fræðileg umfjöllun fléttuð saman við reynslu af skipulögðu starfi verkalýðshreyfina og annarra almannasamtaka.
Hægt er að horfa á upptöku af erindinu, með texta, á heimasíðu Vörðu rannvinn.is og á Youtube (https://www.youtube.com/watch?time_continue=107&v=dz2_-oFZYpc&feature=emb_logo (https://www.youtube.com/watch?time_continue=107&v=dz2_-oFZYpc&feature=emb_logo))
Contact Hlaðvarp Vörðu
Guest appearances
Books guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Host of Hlaðvarp Vörðu?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine