Hriflan er nýtt Hlaðvarp sem félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst gefur út og snýr að þeim stóru áskorunum sem blasa við heiminum í dag. Stjórnandi Hriflunnar er dr. Magnús Magnús Skjöld, dósent.
https://www.bifrost.is/
Stríðsbjarmar – viðtal við Val Gunnarsson, rithöfund um ástandið í Úkraínu og stríðið við Rússa
Á næstu dögum kemur út ný bók eftir Val Gunnarsson, rithöfund, um Úkraínustríðið og bakgrunn þess, en Valur hefur áður skrifað um Austurveg í bók sinni Bjarmalönd, sem kom út 2021. Í þessum fimmta þætti Hriflunnar ræðir Dr. Magnús Skjöld við Val um nýju bókina, um stríðið og andrúmsloftið í Úkraínu
6 May 2022
Siðferði í stjórnmálum og staða lýðræðis
Í fjórða þætti Hriflunnar eru gestir okkar þau Alexandra Briem, forseti borgarstjórnar Reykjavíkur, Páll Rafnar Þorsteinsson, verkefnisstjóri við Siðfræðistofnun Háskóla Íslands og Sævar Ari Finnbogason, aðjúnkt í heimspeki við Háskólann á Bifröst. Við ræðum stöðu lýðræðisins, en einnig málefni líðandi stundar, sérstaklega söluna á Íslandsbanka, sem hefur sætt mikilli gagnrýni og ýft upp sár frá því í fjármálahruninu 2008.
22 Apr 2022
Vaxandi ójöfnuður og efnahagsmál
Í þessum þætti fáum við til okkar Kristrúnu Frostadóttur, alþingismann, Gunnar Haraldsson, hagfræðing og framkvæmdastjóra Intellicon og Hönnu Kristínu Skaptadóttur, lektor við Háskólann á Bifröst og ræðum hagmálin í stóru samhengi. Við tölum um vaxandi ójöfnuð, framtíðina, nýja tækni, fasteignamarkaðinn, gervigreind og “fjórðu iðnbyltinguna” svokölluðu.
7 Apr 2022
Fjölbreytileikinn í íslensku samfélagi og áskoranir samtímans
Við Íslendingar erum að vakna upp við það að rasismi viðgengst hér rétt eins og annarsstaðar og á sér ýmsar birtingarmyndir eins og fréttir síðustu daga sýna okkur fram á. Er þetta kynslóðamál? Af hverju halda Íslendingar að rasismi sé ekki vandamál hér? Til að ræða þetta mikilvæga mál og önnur sem eru ofarlega á döfinni koma til okkar í Hrifluna Lenya Rún Taha Karim, varaþingmaður, Andri Snær Magnason, rithöfundur og Njörður Sigurjónsson, prófessor við Háskólann á Bifröst.
29 Mar 2022
Stríð í Evrópu: Innrás Rússa í Úkraínu, ástæður, afleiðingar, áhrif
Hriflan er nýtt Hlaðvarp sem félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst gefur út og snýr að þeim stóru áskorunum sem blasa við heiminum í dag. Stjórnandi Hriflunnar er dr. Magnús Magnús Skjöld, dósent.
Í þessum fyrsta þætti Hriflunnar er innrás Rússa í Úkraínu í deiglunni, atburður sem hefur þegar breytt gangi heimsögunnar. Valur Gunnarsson rithöfundur, Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi og dr. Eiríkur Bergmann, prófessor við Háskólann á Bifröst, ræða innrásina mánuði eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu, við dr. Magnús Skjöld. Hvers vegna skyldu spár um skjótan sigur Rússa í Úkraínu ekki hafa gengið eftir?
Contact Hriflan
Guest appearances
Books guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Host of Hriflan?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine