Oddvitar stærstu framboðanna í Reykjavík tókust á um meirihlutamyndun, rekstur borgarinnar, samgöngur, húsnæðismál og skóla í oddvitakappræðum Morgunblaðsins og mbl.is. Mikill hiti var í oddvitakappræðum Morgunblaðsins og mbl.is þegar oddvitar sex stærstu framboðanna í Reykjavík mættust í Hádegismóum á lokametrum kosningabaráttunnar.
Þar sátu fyrir svörum Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins, Björg, oddviti Viðreisnar, Ari, oddviti Miðflokksins, Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar, og Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Vinstrisins.
15 May 2026
X26 - Reykjavík: Baráttuframboðin takast á
Oddvitar fimm framboða sem berjast um sæti í borgarstjórn Reykjavíkur tókust á um rekstur borgarinnar, húsnæðismál, samgöngur, leikskóla og Evrópusambandið í fyrri hluta oddvitakappræðna Morgunblaðsins og mbl.is fyrir sveitarstjórnarkosningarnar á laugardag.Þátttakendur voru Ingimar Þór Friðriksson fyrir Góðan daginn framboðið, Guðmundur Ingi Þóroddsson fyrir Flokk fólksins, Sigfús Aðalsteinsson fyrir Okkar borg, Silja Sóley Birgisdóttir fyrir Sósíalistaflokkinn og Kristinn Jón Ólafsson fyrir Pírata.
14 May 2026
X26 - Kópavogur: Oddvitaslagur
Fjármál Kópavogsbæjar, Kópavogsmódelið í leikskólamálum og samgöngusáttmálinn eru á meðal helstu átakapunkta í Kópavogi. Oddvitar fimm stærstu framboðanna í Kópavogi takast á í myndveri Morgunblaðsins í Hádegismóum.
Orri Vignir Hlöðversson, oddviti Framsóknarflokksins, María Ellen Steingrímsdóttir, oddviti Viðreisnar, Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins, Jónas Már Torfason, oddviti Samfylkingarinnar, og Einar Jóhannes Guðnason, oddviti Miðflokksins takast á um stóru málin en þeir Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson stýra umræðunum.
Reach and audience
Public platform figures. Ratings count people who left a rating, not total listeners.
Spotify
5.0 / 5
7 ratings
Contact Hringferðin
Guest appearances
Books guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Host of Hringferðin?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine