Hún er hlaðvarpssería um konur sem hafa farið sínar eigin leiðir í íslensku atvinnulífi. Þær koma úr ólíkum áttum en eiga það sameiginlegt að hafa byggt upp sterkan feril og tekist á við krefjandi ákvarðanir á leiðinni. Í þáttunum segja þær frá ferðalaginu, áskorunum og ákvörðunum sem hafa mótað þær. Markmiðið er að veita innsýn og innblástur og skapa rými fyrir umræðu um konur sem vilja ná langt, taka pláss og skapa sér sterkan sess í atvinnulífinu, læra hver af annarri og miðla reynslu og þekkingu.
Gestur þáttarins er Erla Ósk Ásgeirsdóttir, formaður Jafnvægisvogarráðs FKA, stjórnarformaður Festu – miðstöðvar um sjálfbærni og stjórnarkona í Bláa lóninu.
Í dag ætlum við að tala um tengslanetið, bæði sem hnútinn og lausnina. Um formannsstóla sem konur hurfu úr og ráðningar sem fara fram í gegnum símtöl, um fyrsta stjórnarsætið og muninn á því að mæta á viðburð og að byggja raunverulegt samband, og um það hvernig konur lyfta hver annarri upp í stað þess að keppa um eitt sæti.
hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur , Elko, Nespresso og Mango.
Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir
Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir
hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó
29 Oct 2026
hún hlaðvarp #21 Þórunn Inga Ingjaldsdóttir
Gestur þáttarins er Þórunn Inga Ingjaldsdóttir, forstöðumaður Trygginga hjá Landsbankanum, formaður stjórnar Votlendissjóðs og kennari í Executive MBA-námi Háskóla Íslands.
Í dag ætlum við að tala um að skipta alveg um geira, ekki einu sinni heldur þrisvar. Um Nike, skipaflutninga og banka, um að leiða sérfræðinga þegar maður er sjálf nýja manneskjan, um móðurhlutverkið samhliða vaxandi ferli, um menntun sem breytir lífi kvenna, og um það hvernig tryggingar geta eflt konur.
hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur , Elko, Nespresso og Mango.
Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir
Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir
hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó
22 Oct 2026
hún hlaðvarp #20 Ásdís Kristjánsdóttir
Gestur þáttarins er Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, iðnaðarverkfræðingur og hagfræðingur.
Í dag ætlum við að tala um konuna á bak við embættið. Um stelpuna úr Breiðholti sem ætlaði að verða læknir, um móðurhlutverkið samhliða stjórnendastöðu, um samning um eldhúsið, og um það hvernig maður stígur enn lengra inn í sviðsljósið þegar maður þarf þess ekki.
hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur , Elko, Nespresso og Mango.
Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir
Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir
hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó
Reach and audience
Public platform figures. Ratings count people who left a rating, not total listeners.
Apple Podcasts (US)
5.0 / 5
1 ratings
Spotify
5.0 / 5
3 ratings
Contact hún hlaðvarp
Guest appearances
Books guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine