10. Lögmenn og peningaþvætti (Ingvar Smári Birgisson)
Ingvar Smári Birgisson, lögmaður, setur fram áleitnar spurningar um núgildandi regluverk peningaþvættisvarna hér á landi.
Við lítum einnig á hið ótrúlega magn illa fengins fés sem flæðir um fjármálakerfi heimsins, þann mannlega skaða sem hlýst af peningaþvætti og stofnun nýrrar peningaþvættisskrifstofu Evrópsambandsins.
Þessi þáttur er styrktur af Rapyd (https://www.rapyd.net/is/). Söluaðilar velja lausnir Rapyd til að einfalda greiðslur og auka sölu.
Katrín Ýr Árnadóttir, lögreglufulltrúi hjá Ríkislögreglustjóra, fer yfir nýútgefið áhættumat vegna peningaþvættis og fjármögnunar hryðjuverka.
Við lítum einnig á skýrslu FATF um misnotkun í tengslum við kaup og sölu á ríkisborgararétti og umfangsmikla aðgerð Europol sem leiddi til handtöku meira en eitt þúsund burðardýra í peningaþvætti.
Þessi þáttur er styrktur af Rapyd (https://www.rapyd.net/is/). Söluaðilar velja lausnir Rapyd til að einfalda greiðslur og auka sölu.
7 Dec 2023
8. Milljarðasekt Binance og barátta fjármálafyrirtækja gegn peningaþvætti
Í þessu fyrsta fréttahorni Hvítþvottar förum við yfir milljarðasekt Binance og fall rafmyntakóngsins Sam Bankman-Fried með Kjartani Ragnars, regluverði Myntkaupa.
Auk þess veltum við upp þeirri spurningu hvort barátta fjármálafyrirtækja snúi fremur að því að verjast eftirlitsaðilum heldur en glæpamönnum.
Þessi þáttur er styrktur af Rapyd (https://www.rapyd.net/is/). Söluaðilar velja lausnir Rapyd til að einfalda greiðslur og auka sölu.
1 May 2023
7. Lucinity, tæknilausnir og peningaþvætti (Guðmundur Kristjánsson)
Guðmundur Kristjánsson, stofnandi og forstjóri Lucinity (https://lucinity.com/), segir frá mikilvægi tæknilausna og gervigreindar í baráttunni gegn peningaþvætti.
Guðmundur líkir þeirri byltingu sem er að eiga sér stað í gervigreind við tilkomu rafmagnsins og segist vera hræddari við það hvernig fólk nýtir tæknina heldur en tæknina sjálfa.
Þessi þáttur er styrktur af Rapyd (https://www.rapyd.net/is/). Söluaðilar velja lausnir Rapyd til að einfalda greiðslur og auka sölu.
7 Mar 2023
6. Grunsamleg viðskipti og Skrifstofa fjármálagreininga lögreglu (Guðmundur Halldórsson)
Guðmundur Halldórsson, lögreglufulltrúi hjá Skrifstofu fjármálagreininga lögreglu (https://www.hersak.is/verkefnin/peningathvaettisskrifstofa), segir frá því hvers vegna tilteknum aðilum er skylt að tilkynna um grunsamleg viðskipti, hvað verður um slíkar tilkynningar og hvort aukinn fjöldi tilkynninga sé af hinu góða.
Guðmundur fer einnig yfir það hvað felst í góðri tilkynningu, mikilvægi þess að tilkynningarskyldir aðilar sinni rannsóknarskyldu sinni og hvernig mæla má árangur í baráttunni gegn peningaþvætti.
Viðtalið var tekið upp undir lok ársins 2022 .
Þessi þáttur er styrktur af Rapyd (https://www.rapyd.net/is/). Söluaðilar velja lausnir Rapyd til að einfalda greiðslur og auka sölu.
27 Jan 2023
5. Fjársvik og fjármálafyrirtæki (Brynja María Ólafsdóttir)
Brynja María Ólafsdóttir, sérfræðingur í regluvörslu Landsbankans, segir frá ólíkum tegundum fjársvika, allt frá ástarsvikum til fjárfestasvika, hvernig þau fara fram hér á landi og hvernig má varast þau.
Brynja ræðir einnig um hlutverk fjármálafyrirtækja í baráttunni gegn peningaþvætti, hvernig peningaþvætti og varnir gegn því hafa þróast á síðustu árum og hvað felst í áhættumiðaðri nálgun.
Þessi þáttur er styrktur af Rapyd (https://www.rapyd.net/is/). Söluaðilar velja lausnir Rapyd til að einfalda greiðslur og auka sölu.
20 Jan 2023
4. UK Special (Ray Blake)
Ray Blake, podcaster, author and financial crime expert from The Dark Money Files (https://www.thedarkmoneyfiles.com/) discusses the state of anti-money laundering in the UK, the Natwest case and the difference between financial crime risk and financial crime compliance risk.
This show is sponsored by Rapyd (http://www.rapyd.net). Rapyd simplifies payments so you can focus on building your business.
9 Dec 2022
3. Vernd uppljóstrara, Panamaskjölin og hlutverk blaðamanna (Helgi Seljan)
Blaðamaðurinn Helgi Seljan ræðir um vernd uppljóstrara, Panamaskjölin, tengsl siðferðis og laga og meintar mútugreiðslur Samherja.
Helgi segir einnig frá áreitni í garð blaðamanna, falli þýsku greiðslumiðlunarinnar Wirecard og heimildum blaðamanna til þess að taka á móti gögnum sem eru fengin með ólögmætum hætti.
Þessi þáttur er styrktur af Rapyd (https://www.rapyd.net/is/). Söluaðilar velja lausnir Rapyd til að einfalda greiðslur og auka sölu.
2 Dec 2022
2. Lögreglan, peningaþvætti og Encrochat (Grímur Grímsson)
Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn, segir frá því hvernig peningaþvætti fer fram hér á landi, rannsókn lögreglu á Encrochat-málinu og tíma sínum hjá Europol. Grímur greinir einnig frá efasemdum sínum um hvort heimildir lögreglu í baráttunni gegn peningaþvætti séu fullnægjandi.
Í þættinum kemur fram að áætlað sé að um 64 milljarðar íslenskra króna séu þvættaðir hérlendis á ári hverju. Þessar upplýsingar koma úr greiningu breska öryggisfyrirtækisins Credas (https://credas.co.uk/news/oecd-money-laundering-leader-board/), byggðri á gögnum OECD, frá því fyrr á þessu ári.
Þeim hlustendum sem vilja fræðast meira um skipulagða brotastarfsemi er bent á SOCTA (Serious and Organised Crime Threat Assessment) skýrslu Europol (https://www.europol.europa.eu/publications-events/main-reports/socta-report) frá 2021 sem vísað er til í þættinum.
Þessi þáttur er styrktur af Rapyd (https://www.rapyd.net/is/). Söluaðilar velja lausnir Rapyd til að einfalda greiðslur og auka sölu.
25 Nov 2022
1. FTX, rafmyntir og peningaþvætti (Kjartan Ragnars)
Regluvörður Myntkaupa ræðir um fall einnar stærstu rafmyntakauphallar heims, hvernig peningaþvætti fer fram með rafmyntum og hvers vegna hann telur rafmyntir ekki áhættusamari en aðra greiðslumiðla þegar kemur að peningaþvætti.
Þessi þáttur er styrktur af Rapyd (https://www.rapyd.net/is/). Söluaðilar velja lausnir Rapyd til að einfalda greiðslur og auka sölu.
Reach and audience
Public platform figures. Ratings count people who left a rating, not total listeners.
Apple Podcasts (US)
5.0 / 5
1 ratings
Spotify
4.8 / 5
27 ratings
Contact Hvítþvottur
Guest appearances
Books guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Host of Hvítþvottur?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine