Í flæði ræða systurnar Auja og Birta um sköpunarkraftinn, andleg mál, myndlist, ritlist, bækur og allt það sem því tengist. Báðar eru þær sjálfstætt starfandi í listinni, Auja er rit -og myndhöfundur en Birta er rithöfundur og þýðandi og rekur Skriðu bókaútgáfu og prentverkstæði. Þá fá þær einnig til sín góða gesti til þess að ræða uppsprettu sköpunarinnar, andlegu málin og innblásturinn.
Í þættinum segja systurnar Auja og Birta frá sveppatýnsluferð og sultugerð, spá í bolla og ráða í draum.
5 Sept 2026
Viðtal við skáldið Ásdísi Óla og fl.
Í þættinum fá systurnar Auja og Birta góðan gest í þáttinn, skáldið Ásdísi Óladóttur, sem ræðir um skáldskapinn, andleg veikindi og líf sitt með geðklofa.
Einnig ræða systurnar hvað er á döfinni hjá Skriðu í haust, draga spil, ræða ljóðabókina Rifsberjadalinn eftir Ásdísi og hvernig bókmenntirnar geta víkkað sýn okkar og gefið okkur innsýn í það sem við þekkjum ekki.
29 Aug 2026
Draumar II
Í þættinum fá systurnar Auja og Birta loksins aftur um að ræða sitt uppáhalds umræðuefni, draumana. Auja segir frá snákadraumi sem hana dreymdi nóttina áður og Birta les upp úr draumadagbókinni sinni, þar sem m.a. koma líka fram snákar, eyðihús og thermos kaffibrúsi. Þær ræða svo og ráða í einstaklega fyndinn og furðulegan draum sem þær fengu sendan.
22 Aug 2026
Þráðurinn tekinn upp að nýju
Í þættinum taka systurnar Auja og Birta upp þráðinn þar sem frá var horfið síðan síðast. Þær segja frá breyttum venjum eftir að þær hættu snjallsímanotkun, ræða bækur sem þær hafa verið að lesa, draga spil, spjalla um innsæið og það að treysta því, áskoranir sem andlegan þroska, ný verkefni í listinni og fleira.
11 Apr 2026
Annar þáttur frá Argyroupoli og viðtal við Dimitris
Annar þáttur sendur út frá fjallaþorpinu Argyroupoli á Krít. Auja og Birta ræða við kaffihúsaeigandann Dimitris, sem er fæddur í þorpinu og rekur þar æðislegt kaffihús. Einnig ræða þær um krefjandi fjallgöngur, bollaspá, grískt kaffi, hið illa auga í þjóðtrú grikkja og fleira.
3 Apr 2026
Fyrsti þáttur frá Argyroupoli
Þátturinn er sendur út frá litla fjallaþorpinu Argyroupoli á Krít. Í þættinum ræða Auja og Birta um þorpslífið, bækur sem þær hafa verið að lesa, segja frá húslestrinum og Auja les upp splunkunýja smásögu um fjárhirði.
18 Mar 2026
Rabb um álfa og huldufólk
Hér rabba Auja og Birta um álfatrúna sem virðist lifa góðu lífi, Birta les álfasögu og þær velta fyrir sér uppruna huldufólks.
10 Mar 2026
Vísbendingar
Í þættinum ræða Auja og Birta um vísbendingar og það að fylgja vísbendingum. Þær ræða líka um bækur sem þær hafa verið að lesa nýlega og segja frá verkefnum í Skriðu og Birta les upp tvö ljóð.
3 Mar 2026
Móheiður Hlíf í Kanínuholunni
Gestur þáttarins og jafnframt fyrsti gestur hlaðvarpsins er Móheiður Hlíf Geirlaugsdótttir, skáld, þýðandi og bóksali í Kanínuholunni. Við ræðum við hana um bókaveröldina Kanínuholuna, skáldskapinn, þýðingar, andleg mál og fleira.
24 Feb 2026
Draumar
Auju dreymir mikinn rottugang og Birta reynir að ráða í það. Þær ræða síðan um drauma, draumskyggni og hvernig draumar geta veitt innblástur í listinni og Birta les upp örsögu byggða á draumi.
Tæknin var aðeins að stríða og því eru hljóðgæðin í 1.-3. þætti ekki uppá það besta en reynt verður að kippa því í liðinn í síðari þáttum.
17 Feb 2026
Barnabækur og áhrif bóka á ímyndunaraflið
Í þættinum ræða Auja og Birta um barnabækur sem höfðu áhrif á þær í æsku og mikilvægi þess að gefa sér stund til lesturs en einnig hvernig bækur geta haft áhrif á ímyndaraflið.
Tæknin var aðeins að stríða og því eru hljóðgæðin í 1.-3. þætti ekki uppá það besta en reynt verður að kippa því í liðinn í síðari þáttum.
17 Feb 2026
Flæði
Í þættinum ræða systurnar Auja og Birta um hvað það er að vera í flæði, hvernig er hægt að komast í flæði og virkja þannig sköpunarkraftinn. Auja segir frá barnabók sem kom til hennar í flæði og Birta les upp örsögu.
Tæknin var aðeins að stríða og því eru hljóðgæðin í 1.-3. þætti ekki uppá það besta en reynt verður að kippa því í liðinn í síðari þáttum.
Reach and audience
Public platform figures. Ratings count people who left a rating, not total listeners.
Spotify
5.0 / 5
1 ratings
Contact í flæði
Guest appearances
Books guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Host of í flæði?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine