About Ítalía heillar - hlaðvarp fyrir ferðalanga um Ítalíu
Ferðalög til Ítalíu og ferðatilboð þangað hafa aukist verulega á undanförnum árum. Hlaðvarpið ”Ítalía heillar” er tileinkað þér sem hefur nú þegar ferðast um landið eða hefur Ítalíu á óskalistanum.
Ég heiti Magga — ég er menntaður tónmenntakennari og upplýsingafræðingur. Í hlaðvarpinu ætla ég að deila fróðleiksmolum fyrir ferðalanga um Ítalíu, Ítali, ítalska menningu, borgir og bæi, eyjar, héruð, fegurðina, sérviskuna og ótalmargt fleira en líka litlu augnablikunum sem sjaldnar eru dregin fram.
Ítalía hefur verið hluti af lífi mínu í áratugi. Ég bjó þar fyrst sem skiptinemi, eignaðist fjölskyldu og vini fyrir lífstíð og leiðin hefur legið aftur og aftur til þessa fallega lands. Meðfram starfi mínu sem upplýsingafræðingur, varði ég mörgum sumarleyfum sem fararstjóri íslenskra ferðahópa á Ítalíu, þar sem nánast hver vegur, hvert stræti leiðir mann að einhverju ógleymanlegu.
Heimildir fyrir efni þáttanna eru fengnar víða. Ég vitna í eigin reynslu, reynslusögur annarra, leiðbeiningar virtra ferðafrömuða og margt fleira.
Njótið – ciao ciao.
Í þriðja og síðasta þættinum um Napólí er komið að hagnýtu hliðinni. Hvernig er best að komast til borgarinnar, hvar er gott að gista, hvernig ferðast maður um – og er Napólí í raun eins hættuleg og orðsporið gefur stundum til kynna? Við skoðum samgöngur, leigubíla, neðanjarðarlestir og Circumvesuviana-lestina og ræðum hvað ferðamenn þurfa helst að varast. Vespurnar koma þar óhjákvæmilega við sögu. Síðan förum við í gönguferð um hjarta Napólí og heimsækjum meðal annars Spaccanapoli, Santa Chi...
14 Oct 2026
12. Napólí II - Hjátrúin, tónlistin, fótboltinn og pizza
Í öðrum þætti um Napólí kynnumst við litríkri menningu borgarinnar þar sem trú og hjátrú, tónlist, fótbolti og matur fléttast saman á einstakan hátt. Við kynnumst scaramanzia, napólískri hjátrú, rauða verndargripnum cornicello, Pulcinella og San Gennaro, verndardýrlingi borgarinnar. Við heyrum líka af þeirri óvenjulegu hefð að „ættleiða“ höfuðkúpur látinna og biðja þær um vernd. Síðan tekur tónlistin við. Napólí gaf heiminum meðal annars 'O sole mio og Funiculì, Funiculà, auk stórstjarna á bo...
7 Oct 2026
11. Napólí I – Meira en bara pizza og Vesúvíus
Napólí er borg sem erfitt er að lýsa í fáum orðum. Hún er hávær, litrík, óreiðukennd, söguleg – og umfram allt full af lífi. Í þessum fyrsta þætti um Napólí förum við í ferðalag um meira en 2.500 ára sögu borgarinnar. Við byrjum hjá Grikkjum og sírenunni Parthenope, kynnumst Rómverjum, Normönnum, Spánverjum og Bourbon-konungum og komum við sögu hjá byltingarmanninum Masaniello og þjóðhetjunni Giuseppe Garibaldi. Við rifjum einnig upp hina dramatísku fjóra daga Napólí í síðari heimsstyrjöldinn...
9 Sept 2026
10. Með lest um Ítalíu – Buon viaggio!
Í þessum þætti af Ítalía heillar er haldið “á teinana” og farið yfir allt það helsta sem gott er að vita áður en ferðast er með lest á Ítalíu. Lestir eru ein þægilegasta leiðin til að komast á milli stórborga eins og Rómar, Flórens, Bologna, Mílanó og Napólí, en ítalska lestarkerfið getur virst dálítið ruglingslegt í fyrstu. Fjallað er um helstu gerðir lesta, allt frá hraðskreiðum og þægilegum Frecciarossa-lestum til Intercity- og héraðslesta sem stoppa á fleiri stöðum og gefa ferðalanginum t...
2 Sept 2026
9. Á fjórum hjólum um Ítalíu – allt sem þú þarft að vita um bílaleigu
Að leigja bíl á Ítalíu getur verið bæði spennandi og svolítið stressandi. Í stórborgum eins og Róm, Flórens, Mílanó og Napólí er oft mun skynsamlegra að treysta á lestir og almenningssamgöngur. En þegar ferðinni er heitið út í sveitirnar, til lítilla þorpa, vínekranna í Piemonte, fjallanna, strandbæjanna eða svæða þar sem lestir og rútur eru af skornum skammti, getur bílaleigubíllinn orðið lykillinn að allt annarri Ítalíu. Í þessum þætti af Ítalía heillar förum við yfir það helsta sem gott er...
26 Aug 2026
8. Róm III - Skemmtileg torg, götur, söfn og frægir staðir í Róm. Hvernig forðastu langar biðraðir?
Í þessum þriðja og síðasta þætti um Róm, beinum við sjónum að borginni sjálfri – frægustu stöðunum, torgunum, götunum, mörkuðunum og matarmenningunni. Við heimsækjum meðal annars Colosseum, Forum Romanum, Pantheon, Vatíkanið, Péturskirkjuna og Trevi-gosbrunninn og fáum hagnýt ráð um miðakaup, biðraðir og hvernig best er að skipuleggja heimsóknir á vinsælustu staðina. En Róm er miklu meira en frægustu kennileitin. Við röltum um Piazza Navona, Campo de’ Fiori og Piazza di Spagna, skoðum f...
19 Aug 2026
7. Róm II - “Ekkert stress”– samgöngur, hverfi og góð ráð
Í þessum öðrum þætti um Róm færðu hagnýt ráð sem geta gert Rómarferðina einfaldari, öruggari og ánægjulegri. Þú færð að heyra um leiðir til að komast frá Fiumicino-flugvelli inn í borgina, meðal annars með Leonardo Express, FL1-lestinni, rútu eða leigubíl, og hvaða kostur hentar eftir staðsetningu gististaðar og fjölda ferðafélaga. Þú þarft sérstaklega að passa þig á reglum um lestarmiða sem geta leitt til sekta ef ekki er rétt staðið að málum. Við skoðum ólík hverfi Rómar og kosti þeir...
12 Aug 2026
6. Róm I - Marglaga, mótsagnakennd og lifandi borg
Í þessum fyrsta þætti af þremur um Róm er farið í svolítið óhefðbundið ferðalag um sögu borgarinnar, allt frá goðsögninni um Rómúlus og Remus til Rómar nútímans. Frá því að vera upphaflega einungis fáeinir kofar stækkaði Róm og varð miðja eins voldugasta heimsveldis sögunna. Borgin hnignaði eftir fall þess en reis aftur til vegs og virðingar á endurreisnartímanum. Í dag búa nærri þrjár milljónir manna innan um tæplega þrjú þúsund ára sögu. Við kynnumst borginni þar sem Colosseum, Forum...
5 Aug 2026
5. Hvað er til ráða ef þú veikist á Ítalíu?
Í þessum þætti er farið yfir hvernig þú getur fengið aðstoð á Ítalíu, hvort sem um er að ræða væga kvilla eða neyðrartilvik. Fyrir brottför ættir þú að sækja um Evrópska sjúkratryggingakortið (EHIC) hjá Sjúkratryggingum Íslands, skoða þær tryggingar sem fylgja kreditkortinu þínu og mögulega fá þér góða ferðatryggingu. Fyrsti viðkomustaður fyrir minni háttar veikindi ætti oftast að vera apótek (Farmacia). Ítalskir lyfjafræðingar geta ráðlagt um lausasölulyf og vísað áfram til læknis ef þörf kr...
29 Jul 2026
4. Lago di Garda – Gardavatnið og töfrar þess sem heilla ferðalanga
Lago di Garda – Lake Garda – Gardavatnið Gardavatn (Lago di Garda), stærsta vatn Ítalíu. Lýst er einstakri fegurð vatnsins, þar sem snævi þaktir Alpatoppar mæta pálmatrjám, ólífutrjálundum og Miðjarðarhafsgróðri og skapa landslag sem á sér engan líka annars staðar í Evrópu. Komið er víða við og m.a. fjallað um bæina Sirmione, Malcesine, Limone sul Garda og Riva del Garda. Gardavatn er miklu meira en fallegur áfangastaður: það er staður þar sem náttúra, saga, menning og daglegt líf renna saman...
22 Jul 2026
3. Ítalía III – Þekkirðu götubrellur vasaþjófanna?
Hér færðu að kynnast helstu mistökum sem ferðamenn gera á Ítalíu og hvernig þú getur forðast þau til að njóta ferðarinnar betur. Nokkrar óvæntar reglur geta komið þér á óvart. Til dæmis geturðu fengið háa sekt ef þú borðar hjá frægum minnismerkjum, dýfir fótum í gosbrunna eða gengur í óviðeigandi skóm á gönguleiðum Cinque Terre. Einnig er mikilvægt að bera alltaf vegabréf eða önnur gild skilríki á sér. Þátturinn varar við algengum ferðamannabrellum, svo sem „ókeypis“ armböndum, undirskr...
2. Ítalía II - Væntingar og veruleiki. Af hverju heillast ferðalangar af Ítalíu?
Ítalía heillar - hlaðvarp fyrir ferðalanga um Ítalíu Í þessum þætti er farið yfir það sem gott er fyrir þig að vita áður en lagt er af stað til Ítalíu. Fjallað er um muninn á væntingum og veruleika og hvernig þú getur notið landsins betur með smá undirbúningi og réttu hugarfari. Þú kynnist ítalskri matarmenningu, þar sem einfaldleiki og gæðahráefni ráða ríkjum, og kaffivenjum sem geta komið ferðamönnum á óvart. Einnig er rætt um akstur á Ítalíu, ZTL-umferðarsvæði, bílaleigur og hvers vegna le...
14 Jul 2026
1. Ítalía I - Ertu að skipuleggja ferð til Ítalíu?
Ítalía heillar – hlaðvarp fyrir ferðalanga um Ítalíu. Í þessum fyrsta þætti Ítalía heillar segir Magga frá því hvernig áhugi hennar á Ítalíu kviknaði þegar hún fór sautján ára gömul sem skiptinemi til landsins. Hún deilir eigin reynslu með þér og gefur hagnýt ráð fyrir þig sem ert mögulega að skipuleggja Ítalíuferð. Fjallað er um hvernig velja megi áfangastaði, kosti þess að ferðast utan mesta sumarhitans og hvers vegna „slow travel“ getur veitt þér meiri upplifun. Einnig er þér bent á að for...
Contact Ítalía heillar - hlaðvarp fyrir ferðalanga um Ítalíu
Guest appearances
Does not typically book guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Host of Ítalía heillar - hlaðvarp fyrir ferðalanga um Ítalíu?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine