Nemendur í 10. bekk eru þessar vikurnar að sækja um framhaldsskólavist fyrir næsta vetur og möguleikarnir eru margir á þessum kaflaskilum í skólagöngu þeirra. Um leið er ekki sjálfgefið að fá inngöngu í skólann sem er efstur á óskalistanum – nema að nemandinn sé með annaðhvort A eða B plús í öllu. Og er A í einum skóla það sama og A í öðrum?
Ef nemandi er með fötlun eða erlendan bakgrunn er síðan alls ekki víst að skólinn sem viðkomandi hugnast best geti tekið á móti honum og framhaldsskólarnir eru misvinsælir. Því skipta lokaeinkunnir úr grunnskóla sköpum ef sótt er um vinsælustu framhaldsskólana. Í þáttaröðinni Kaflaskil er rætt við fólk sem þekkir vel til í völundarhúsi menntakerfisins á Íslandi.
Þáttaröðin Kaflaskil er framleidd af Rás 1.
Umsjón og dagskrárgerð: Guðrún Hálfdánardóttir.
Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy (https://acast.com/privacy) for more information.
Framhaldsskólar landsins eru yfir 30 talsins og flestir þeirra geta tekið á móti flestum þeirra sem sækja um skólavist að loknum grunnskóla. Nemendur með erlendan bakgrunn er fjölbreyttur hópur með svipaðar væntingar til framhaldsskólans og aðrir nemendur í íslenska skólakerfinu. Aftur á móti efast þau oft um kunnáttu sína í íslensku. Flestir framhaldsskólar eru með áfangakerfi en skólastjórnendur hvetja ungmenni til að horfa á styrkleika sína og velja skóla í samræmi við þá. Viðmælendur í sjötta þætti eru: Eva Dögg Sigurðardóttir, Fríða Bjarney Jónsdóttir, Guðrún Inga Sívertsen, Jón Páll Haraldsson, Kristjana Stella Blöndal, Linda Heiðarsdóttir, Ómar Örn Magnússon, Meyvant Þórólfsson, Steinn Jóhannsson og nemendur í Hagaskóla og Laugalækjarskóla.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy (https://acast.com/privacy) for more information.
14 May 2025
5. þáttur: Samstarf á milli skólastiga
Mjög gott samstarf er á milli stærstu grunnskóla Austurlands og tveggja framhaldsskóla á svæðinu, Menntaskólans á Egilsstöðum og Verkmenntaskóla Austurlands í Neskaupstað. Þetta hefur gefið góða raun og lögð er áhersla á að hverjum nemanda sé fylgt úr hlaði með upplýsingum um viðkomandi. Mikill meirihluti þeirra sem ljúka grunnskólanámi velur bóknám þegar kemur að framhaldsskólanum en verknám hefur unnið á. Bakgrunnur skiptir máli þegar kemur að vali á framhaldsskóla. Viðmælendur í fimmta þætti Kaflaskila eru: Árni Ólason, Berglind Rós Magnúsdóttir, Birgir Jónsson, Elsa Eiríksdóttir, Sigrún Blöndal, Sæberg Sigurðsson og nemendur í Egilsstaðaskóla.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy (https://acast.com/privacy) for more information.
14 May 2025
4. þáttur: Hvað ef þú passar ekki í boxið?
Við komumst ekki í gegnum lífið án stuðnings. Sumir þurfa meiri stuðning en aðrir. Íslenska skólakerfið á að vera án aðgreiningar, en er það svo? Ungmenni með fatlanir þurfa að sækja um framhaldsskóla í febrúar, sem sagt ekki á sama tíma og önnur ungmenni. Og það eru ekki óskir þeirra sem hafa mest um það að segja í hvaða skóla þau fá inngöngu í heldur er það fötlunin. Hvort þau passa inn í boxið sem skólinn getur boðið þeim upp á. Í þættinum er einnig fjallað um fjölbreytt námsmat. Viðmælendur í fjórða þætti Kaflaskila eru: Anna Björk Sverrisdóttir, Anna Kristín Sigurðardóttir, Gunnar Gíslason, Ívar Rafn Jónsson, Jón Páll Haraldsson, Linda Heiðarsdóttir, Ómar Örn Magnússon og nemendur í tíunda bekk Laugalækjarskóla.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy (https://acast.com/privacy) for more information.
11 May 2025
3. þáttur: Góður kennari er gulli betri
Góður kennari skiptir miklu máli og kennsla er gefandi starf en um leið erfitt. Það vantar fagmenntað fólk til starfa í grunnskólum landsins og ekki síst í greinum eins og íslensku og stærðfræði. Það er ekki nóg að fjölga fagfólki heldur vantar líka nýtt og betra námsefni. Eins má ekki gleyma mikilvægi læsis og lesskilnings á öllum stigum grunnskólans. Viðmælendur í þættinum eru: Gunnar Gíslason, Hjalti Halldórsson, Ívar Rafn Jónsson, Jóhann Örn Sigurjónsson, Jón Páll Haraldsson, Linda Heiðarsdóttir, Oddur Ingi Guðmundsson, Ómar Örn Magnússon, Sigurgrímur Skúlason og nemendur í tíunda bekk Hagaskóla og Laugalækjarskóla.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy (https://acast.com/privacy) for more information.
4 May 2025
2. þáttur: Samræmt námsmat og einkunnaverðbólga
Nýtt samræmt námsmat verður lagt fyrir í grunnskólum landsins vorið 2026. Prófað verður í stærðfræði og lesskilningi en ekkert samræmt námsmat hefur verið í grunnskólum undanfarin ár. Einkunnaverðbólga er staðreynd en Ísland er ekkert eyland þar. Viðmælendur í öðrum þætti Kaflaskila eru: Brynhildur Sigurðardóttir, Freyja Birgisdóttir, Linda Heiðarsdóttir, Meyvant Þórólfsson, Sigrún Blöndal, Sigurgrímur Skúlason og nemendur í Egilsstaðaskóla og Laugalækjarskóla.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy (https://acast.com/privacy) for more information.
27 Apr 2025
1. þáttur: Aðalnámskrá og hæfniviðmið
Undanfarin ár hefur verið unnið að endurbótum á aðalnámskrá grunnskóla enda fékk hún falleinkunn í úttekt sem unnin var fyrir sex árum. Endurskoðuð aðalnámskrá tekur gildi næsta haust og þar hafa greinasvið og hæfni- og matsviðmið þeirra verið endurbætt og einfölduð. Í fyrsta þætti Kaflaskila er fjallað um aðalnámskrá og hæfni- og matsviðmið. Viðmælendur eru: Auður Bára Ólafsdóttir, Brynhildur Sigurðardóttir, Gunnar Gíslason, Ívar Rafn Jónsson, Jóhann Örn Sigurjónsson, Jón Páll Haraldsson, Linda Heiðarsdóttir, Meyvant Þórólfsson, Ómar Örn Magnússon, Sigrún Blöndal og nokkrir nemendur í Hagaskóla.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy (https://acast.com/privacy) for more information.
Contact Kaflaskil
Guest appearances
Does not typically book guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Host of Kaflaskil?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine