Gagnrýnið og kynjað sjónarhorn á völd og viðmið.
Bakhjarlar fjármagna meðal annars hlaðvarpið Karlmennskan. Þú getur verið eitt þeirra:
https://www.karlmennskan.is/styrkja (https://www.karlmennskan.is/styrkja)
Birta Blanco lýsir samskiptum við þekktan mann sem hún síðar kærði fyrir kynferðisbrot. Hún hefur aldrei opnað sig né nafngreint hann, nema óbeint, þótt hún hafi lýst reynslu sinni lítillega á TikTok fyrir nokkrum mánuðum. Í þessu spjalli lýsir hún aðdraganda þess að hún hitti manninn, samskiptum þeirra og hvernig það er að sjá samfélagið taka algjöra afstöðu með þeim sem hún kærði. Eftir reynslu sína af réttarkerfinu segist Birta hafa misst algjöra trú á því og að hún muni aldrei kæra neitt aftur.
Við spjöllum líka um skyggnigáfur, onlyfans, berskjöldun og leyndarmál sem hún er að plana sem tengist heimilislausum mæðrum.
Þátturinn er EKKI í boði Nings, Heitirpottar.is eða Mama.is og ég hvet ykkur til að beina viðskiptum ykkar annað.
Þú getur stuðlað að fleiri þáttum frá Karlmennskunni með því að tipsa fyrir hlustunina: tipsa 390 krónur
16 Jul 2026
3.18: SUÐ – Svandís Anna Sigurðardóttir (Stígamót)
„Við eigum svo erfitt með að horfa á einhvern sem okkur þykir vænt um og segja: Þessi manneskja hefur beitt ofbeldi eða verið að meiða einhvern. Við erum enn svo léleg í þessu,“ segir Svandís Anna Sigurðardóttir, sérfræðingur hjá Stígamótum.
Stígamót standa árlega fyrir átaksverkefninu Sjúk ást, sem er ætlað ungu fólki. Kveikjan að verkefninu er hversu algengt kynferðisofbeldi er meðal ungs fólks og hversu oft hefði mátt koma í veg fyrir skaða með fræðslu.
Svandís Anna segir að fræðsluefnið nýtist ekki síður eldra fólki, sem hafi oft fengið mun minni fræðslu en tíðkast í dag. Ungt fólk sé almennt upplýst, þekki mörkin sín og sé meðvitað. Suð sé hins vegar algengt þar sem gengið sé á mörkin aftur og aftur þar til þau gefa sig. Sá sem suðaði upplifir að samþykki hafi fengist. Sú sem gaf sig og brotið var á situr hins vegar oft eftir með sjálfsásakanir. Þessi mál séu flókin í úrvinnslu. Þess vegna var áhersla Sjúk ást í ár á suð.
Efnistök: Suð, karlmennska og kvenleiki, kynlífshandrit, kynferðisofbeldi, Sjúk ást, klám og viðhorf til kynlífs.
Viðmælandi: Svandís Anna Sigurðardóttir, sérfræðingur hjá Stígamótum. [Tekið upp í mars 2026]
14 Jun 2026
3.17: Íslenzka – Iris Edda Nowenstein
Iris Edda Nowenstein er lektor í íslenskri málfræði og máltækni við Háskóla Íslands og talmeinafræðingur á Landspítalanum. Iris er innflytjandi sem kom sex ára gömul til Íslands og ólst upp við að tala frönsku við mömmu sína og spænsku við pabba sinn. Reynsluna af því að læra íslensku sem annað mál nýtir Iris í rannsóknum sínum og telur það ekki íslenskri tungu til framdráttar að líta á fjöltyngi eða önnur tungumál sem ógn.
Við ræðum íslenskuna sem lifandi, breytilegt og pólitískt fyrirbæri, stafsetningarskömm, málfarslöggur, kynjað og kynhlutlaust tungumál, rapp og málfærnina sem það krefst, enskuáhyggjur, TikTok, innflytjendur, útilokun, inngildingu og þá furðulegu hugmynd að tungumál þurfi helst að verja með stríði og sótthreinsun. Þetta er þáttur um íslenska tungu en ekki síður um vald og viðmið. Iris varpar ljósi á hvernig við getum ræktað íslenskuna án þess að nota hana sem vopn gegn fólki.
Viðmælandi: Iris Edda Nowenstein, lektor í íslenskri málfræði og máltækni við HÍ og talmeinafræðingur á Landspítalanum.
Tekið upp í mars 2026.
Reach and audience
Public platform figures. Ratings count people who left a rating, not total listeners.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine