Ýmsar breytingar gætu verið í farvatninu hjá ÁTVR á borð við heimsendingarþjónustu. Í Kastljósi var rætt við forstjóra ÁTVR um erfiðan rekstur og breytingar. Hún vill að ríkisstjórnin skýri þá lagalegu óvissu sem umlykur málaflokkinn í ljósi fjölda vefverslana með áfengi. Þá var Kastljós í beinni útsendingu frá Airwaves og í þættinum var líka heimsótt sýning sjötíu myndhöggvara.
Þú getur horft á Kastljós í heild sinni í spilara RÚV.
5 Nov 2026
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra, kosningar í Bandaríkjunum.
Rætt við Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur, dómsmálaráðherra um dómsmál, lögreglumál, útlendingamál og innri mál flokks hennar, Viðreisnar. Fjallað um úrslit kosninga í Bandaríkjunum 3. nóvember þar sem kosið var til bæði fulltrúadeildar og öldungadeildar, auk annarra embætta víða um landið.Þú getur horft á Kastljós í spilara RÚV.
4 Nov 2026
Almannavarnabæklingur og bændur á Barðaströnd
Almannavarnabæklingur, bændur á Barðaströnd og sýningin Í skugga átaka.
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra gaf í dag út bækling þar sem landsmenn eru beðnir að vera viðbúnir. En viðbúnir hverju nákvæmlega og af hverju núna? Runólfur Þórhallsson, sviðstjóri almannavarnasviðs Ríkislögreglustjóra sat fyrir svörum.
Kastljós tók hús á bændum á Barðaströnd sem eru almennt frekar vel undirbúin, enda oft þurft að takast á við ófærð og rafmagnsleysi. Býlið er ekki afskekktara en gengur og gerist á Vestfjörðum, en það er þó um fjallveg að fara til þess að komast í næsta þéttbýli.
--Í þættinum var einnig litið inn á listasýninguna Í skugga átaka, sem nú stendur yfir á Listasafni Akureyrar. Hernaður og stríðsátök í Evrópu eru þar til umfjöllunar.Þú getur horft á Kastljós í heild sinni inn á ruv.is og í spilara RÚV.
Contact Kastljós
Guest appearances
Books guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Host of Kastljós?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine