Gestur Kokkaflakks að þessu sinni er Georg Leite sem á meðal mjög stórs hóps fólks er betur þekktur sem Goggi á Kalda. Við ræðum bransann, Covid lokanir og að þó þær séu erfiðar fyrir veitingabransann leynist kannski eitthvað jákvætt í þeim. Við ræðum ljósmyndarann Georg, leikarann Georg Brasilíumanninn Georg og alla þá ólíku hatta sem hann ber. Mjög skemmtilegt!
Þessi þáttur er síðasti þáttuinn í fyrstu seríu af Kokkaflakki í eyrun og við það tilefni vil ég þakka kærlega frábær viðbrögð og hlakka til að koma aftur síðar með aðra seríu.
20 Apr 2021
#32 Anna Sigríður Ólafsdóttir - Um matvendni
Gestur þáttarins í þetta sinn er næringarfræðingurinn og vísindakonan Anna Sigríður Ólafsdóttir. Við áttum afar áhugavert spjall um matvendni barna og tengsl matvendni við ADHD og einhverfu sem hún hefur verið að rannsaka í dálítinn tíma. Hún stóð fyrir bragðlaukaþjálfun fyrir matvönd börn, námskeið sem ég fór á með son minn og var frábært! Við ræddum þetta allt sem og auðvitað líka nýju sjónvarpsþáttaröðina sem hún er að gera fyrir RÚV og heitir Nærumst og njótum.
Mjög áhugavert og skemmtilegt.
13 Apr 2021
#31 Óli og Alba - Forsetaspjall um vín
Við Alba erum mætt aftur eins og lofað var með þátt um vín sem heitir „Forsetaspjall um vín“ vegna þess að jú, Alba er eins og frægt er orðið forseti Vínþjónasamtaka Íslands og ég fyrrverandi. Spjallið fór út um víðan völl að vanda. Við ræðum um Bordeaux og vín sem hefur ferðast út í geim. Við tölum einnig um Austurríki, ensk freyðivín og svo miklu miklu fleira. Mjög gaman að vanda.
Reach and audience
Public platform figures. Ratings count people who left a rating, not total listeners.
Apple Podcasts (US)
4.7 / 5
6 ratings
Contact Kokkaflakk í eyrun
Guest appearances
Books guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Host of Kokkaflakk í eyrun?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine