Költ er hlaðvarp sem fjallar um allt sem fellur undir hattinn “költ”; sértrúarsöfnuði í öllum sínum birtingarmyndum, kvikmyndir, tónlist og allt annað sem lauslega fellur undir hugtakið. Þáttarstjórnendur eru Helgi Jónsson og Salómon Smári, þeir eru ekki sérfræðingar, en þeir eru að reyna sitt besta, fjandinn hafi það.
Heyrið í okkur með því að senda tölvupóst á koltpodcast@gmail.com,
eða komið í Discord-grúppuna okkar: https://discord.gg/Z2N3VudxtY
eða lækið Facebook-síðuna: https://www.facebook.com/profile.php?id=100090690127776
Þá er komið að seinni hluta þáttsins okkar um Modern Mystery School, þar sem heimsendi, gullpíramýdar og kynsvall koma við sögu. Heyrið næsta hluta í sögunni um Guðna Guðnason, og hinn ótrúlega feril hans sem költleiðtogi, DJ, sölumaður og kvikmyndaframleiðandi.
9 Jun 2023
Modern Mystery School - 1. hluti
Við erum komnir aftur eftir nokkurra vikna pásu! Í þetta sinn er fjallað um hinn gríðarstóra galdraskóla Modern Mystery School, og leiðtogann Guðna Guðnason. Já, þið lásuð rétt, þetta er fyrsti þátturinn þar sem við fjöllum um rammíslenskan költ-leiðtoga. Í þessum fyrsta hluta er fjallað um allskonar brask á yngri árum Guðna, aðkast hans við lögin vegna ólöglegrar bardagakeppni, og flótta hans til Ameríku þar sem hann stofnaði forvera Modern Mystery School.
Myndbandið af Guðna sem er spilað í þættinum: https://www.youtube.com/watch?v=K6O808GSq7I
Munið að skella like á Facebook-síðuna okkar: https://www.facebook.com/profile.php?id=100090690127776
Og komið í Discord-umræðuhópinn! https://discord.gg/Z2N3VudxtY
24 Mar 2023
House of David
Hér ræðir Salómon um House of David, sérlega skeggjaðan sértrúarsöfnuð í Michigan-fylki Bandaríkjanna sem af einhverjum ástæðum átti eitt besta hafnaboltalið heims á fyrri hluta 20.aldar.
18 Feb 2023
Dulspekileg saga Nasistaflokksins
Atlantis! Dularfullir tíbetskir meistarar! Rasismi!
Í þessum þætti er kafað í sögu dulspeki í Þýskalandi og Austurríki á 19.og 20.öld, og hvers konar áhrif nokkrir kuklarar höfðu á lítinn stjórnmálaflokk sem átti fljótlega eftir að steypa heiminum í stærsta stríð sögunnar. Það er rétt, við ætlum að tala um nasista.
31 Jan 2023
Cosmic People of Light Powers
Geimverur! Örflögur! Eðlufólk! Grófur titringur! Salómon hefur kafað djúpt í kanínuholuna og fundið SANNLEIKANN um alheiminn (allavega samkvæmt litlum samsæriskenningasöfnuði í Tékklandi), og miðlar þekkingunni áfram til ykkar! Verið viðbúin.
9 Jan 2023
The Room - Hamfaralist í háklassa
Í þetta skipti er umfjöllunarefnið ekki sértrúarsöfnuður, heldur költ-kvikmynd. The Room (2003) hefur oft verið nefnd versta mynd allra tíma, en engu að síður hefur hún stóran aðdáendahóp um allan heim. Í þættinum kafar Helgi í líf hins dularfulla Tommy Wiseau, sem er leikstjóri, aðalleikari, framleiðandi og handritshöfundur The Room.
ATH: þátturinn inniheldur spoilera úr The Room.
16 Dec 2022
Aum Shinrikyo
Salómon fjallar um dómsdagsköltið Aum Shinrikyo, sem framleiddu efnavopn og eiturlyf, og framkvæmdu hryðjuverk og morð í Japan. Hugsanlega rosalegasti þátturinn hingað til
2 Dec 2022
Breatharianism - Að lifa á loftinu
Breatharianism gæti annaðhvort verið lausnin við hungursneyð heimsins eða heimskulegasta mataræði allra tíma. Líklegast það síðarnefnda.
Í þessum þætti fer Helgi yfir sögu þessa stórfurðulega sértrúarsöfnuðar, sem trúir því að matur sé ónauðsynlegur.
Þessi megrunarkúr verður þinn síðasti.
22 Nov 2022
Satanismi
Satanismi er ekki bara fyrir edgy unglinga og norska black metal-brennuvarga. Salómon fræðir Helga um Anton Lavey, stofnanda Church of Satan, heitasta kynlífsköltinu í San Francisco.
5 Nov 2022
Vísindakirkjan
Í fyrsta þætti Költs dregur dregur Helgi vin sinn Salómon með sér djúpt inn í heim Vísindakirkjunnar: költið sem tók yfir Hollywood og miðjarðarhafið
Contact Költ
Guest appearances
Does not typically book guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Host of Költ?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine