Ræðum um uppáhalds hljómsveitina okkar, Metallica. Við erum ekki sérfræðingar, bara tveir gaurar sem hafa brennandi áhuga á öllu því sem þessi hljómsveit gerir.
Í þessum þætti förum við yfir fyrri hlutann af plötunni Garage inc. sem er einmitt plata eingöngu með cover lögum sem fjórmenningarnir tóku upp haustið 1998. Útúrdúrar, fróðleiksmolar og grín á sínum stað.
2 Dec 2021
15. þáttur - Cliff Burton
Í þessum þætti fjöllum við um Cliff Burton, hvernig áhrif hann hafði á hina MEÐLIMI bandsins ásamt ýmsum bransasögum um hann. Útúrdúrar, fróðleiksmolar og grín á sínum stað.
28 Oct 2021
14. þáttur - Topp 10 sóló
Í þessum þætti fáum við í fyrsta sinn til okkar gest. Það er hann Bóas Gunnarsson, tónlistarmaður og erkisnillingur! Við settumst allir sveittir yfir öll sóló sem hafa endað á Metallica stúdíóplötum og gerðum þrjá (að einhverju leyti) mismunandi topp 10 lista yfir þau. Fróðleiksmolar, útúrdúrar og lélegir brandarar að sjálfsögðu á sínum stað.
20 Sept 2021
13. þáttur - Loudwire listinn víðfrægi
Öðruvísi þáttur að þessu sinni. Við tökum fyrir Loudwire listann yfir öll furmsömdu MetallicA lögin og gefum okkar álit á stöðu hvers lags á listanum.
Útúrdúrar, fróðleiksmolar og grín á sínum stað.
17 Aug 2021
12. þáttur. Topp 10 "Deep Cuts"
Í þessum þætti tölum við í fyrsta sinn um eitthvað annað en heila plötu. Við tókum saman lista yfir okkar uppáhalds lög sem fá minni spilun en okkur finnst þau eiga skilið. Bæði í útvarpi, á Spotify/Apple/YouTube (o.s.frv.) og í lifandi flutningi.
9 Aug 2021
11. þáttur - Hardwired... To Self-Destruct
Ellefta og nýjasta plata Metallica. Við förum yfir lögin, upptökuferlið og rýnum í textana. Útúrdúrar eru að sjálfsögðu á sínum stað.
3 Jul 2021
10. þáttur - Lulu
10 stúdíóplata Metallica var tekin upp í samstarfi með Lou Reed. Furðuleg plata, svo ekki sé meira sagt. Við tækluðum þetta eins vel og við gátum þó platan sé vissulega erfið til meltingar. Upptökuferli, Útúrdúrar og sögur eru á sínum stað. P.s. That'll be fine!
13 Jun 2021
9. þáttur - Death Magnetic (2008)
Death Magnetic er níunda stúdíó plata Metallica. Jafnframt er hún sú fyrsta með Rob Trujillo á bassa og sú fyrsta án Bob Rock í 17 ár. Við yfir lögin, upptökuferlið ásamt fróðleiksmolum og útúrdúrum.
30 May 2021
8. þáttur - St. Anger (2003)
St. Anger...úff... það er margt sem þarf að meðtaka með þessari plötu. Án efa sú umdeildasta sem þeir hafa gefið út. Við ræðum um lögin, upptökuferlið ásamt ýmsum fróðleiksmolum og útúrdúrum.
23 May 2021
7. þáttur "ReLoad" (1997)
ReLoad er 7. stúdíóplata MetallicA og jafnframt sú síðasta sem Jason tók upp með hljómsveitinni. Við förum yfir lögin og upptökuferlið ásamt því að henda inn alls kyns fróðleiksmolum og útúrdúrum.
16 May 2021
6. þáttur - Load (1996)
Load er sjötta stúdíó plata Metallica (af frumsömdu efni). Við ræðum söguna í kringum plötuna, lagasmíða- og upptökuferlið ásamt alls kyns fróðleiksmolum og útúrdúrum.
9 May 2021
Metallica (1991) "Black Album"
Fimmta plata Metallica og sú lang vinsælasta. Platan sem ýtti þeim upp á hærri stall og varð til þess að þeir urðu stærsta metal band sögunnar. Við ræðum upptökuferlið og gefum okkar álit á plötunni og hverju lagi fyrir sig að ógleymdum fróðleiksmolum og útúrdúrum.
P.S. Mikið rætt um Bob Rock ;)
5 May 2021
4. þáttur - ...And Justice For All (1988)
...And Justice For All kom út árið 1988 og er sú fyrsta (af frumsömdu efni) sem Jason Newsted tók upp með bandinu. Við ræðum upptökuferlið, sem fór fram í Bandaríkjunum í þetta skipti. Stóra bassamálið er gegnumgangandi í þessum þætti. Að sjálfsögðu eru þó nokkrir fróðleiksmolar og útúrdúrar á sínum stað.
1 May 2021
3. þáttur - Master of Puppets (1986)
Master of Puppets er þriðja plata þeirra félaga og jafnframt sú síðasta sem Cliff Burton tók upp. Við ræðum upptökuferlið, tónleikaferðalagið með Ozzy Osbourne auk fróðleiksmola og útúrdúra.
28 Apr 2021
2. þáttur - Ride the Lightning (1984)
Ride the Lightning kom út árið 1984. Þar fengu Cliff Burton og Kirk Hammett að leggja meira af mörkum í lagasmíðum. Við förum yfir upptökuferlið, ræðum öll lögin og að sjálfsögðu koma einstaka fróðleiksmolar og útúrdúrar.
25 Apr 2021
1.þáttur - Kill 'em all (1983)
Kill 'em all kom út árið 1983 og er frumraun þeirra félaga í stúdíóinu. Við ræðum lögin á plötunni, forsögu bandsins ásamt ýmsum öðrum fróðleiksmolum og útúrdúrum.
Contact Ktúlú Kallar
Guest appearances
Books guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Host of Ktúlú Kallar?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine