Raunheimakastið mun beina sjónum sínum að tveimur meginþemum: áhrifum skjánotkunar á börn og unglinga ásamt mikilvægi hinna “þriðju staða” í samfélaginu.
Þáttastjórnendur eru Anna Laufey tölvunarfræðingur og Kristín mannfræðingur og verkefnastjóri. Þær eru báðar mæður sem hafa fundið mikið fyrir áhrifum skjánotkunar og skorti á sjálfstæði barna.
ATH! Raunheimakastið hét áður Kvíðakynslóðin hlaðvarp.
#32 Hvað hefur áhrif á svefninn okkar? Erla Björnsdóttir hjá Betri Svefn
Erla Björnsdóttir stofnandi og ráðgjafi hjá Betri Svefn kemur til okkar og fræðir okkar um mikilvægi svefns; hversu víðtæk áhrif svefninn hefur á okkur og börnin okkar, og hvað er margt í okkar umhverfi sem hefur áhrif á svefninn.
13 Oct 2026
#31 Erum við að búa til spilafíkla? Alma Hafsteins og Anný Aðalsteinsdóttir
Spilavandi er vaxandi vandamál hjá börnum og ungmennum. Veðmálasíður hafa aldrei verið aðgengilegri og árið 2023 var velta viðskiptavina Íslandsbanki undir 18 ára aldri á erlendum veðmálasíðum um 10 milljónir. Árið 2024 var sú tala komin í 50 milljónir. Tölvuleikir í dag hafa breyst töluvert frá því sem áður var og nú eru framleiðendur farnir að láta leikina líkja meira eftir veðmálasíðum og spilakössum. Við fáum til okkar þær Ölmu Hafsteinsdóttur spilafíklaráðgjafa og fjölskyldumarkþjálfa ásamt Anný Aðalsteinsdóttur sem er viðskiptafræðingur og verkefnastjóri.
Þátturinn er í boði:
NOVA: https://www.nova.is
Balance Phone: https://balancephone.is/
Stafræn velferð: https://www.stafraenvelferd.is/
Eero hjá Nova hér: https://www.nova.is/einstaklingar/eero
3 Oct 2026
#30 Lífið án snjallsíma - Magnea og Ármann
Magnea og Ármann eru hjón, kennarar og foreldrar tveggja barna. Auk kennaramenntunar eru þau vel menntuð á sviði barna og uppeldis, með háskólapróf í félagsráðgjöf, uppeldis- og menntunarfræði og tómstunda- og félagsmálafræði.
Fyrir 6 árum ákváðu hjónin að losa sig við snjallsímana. Þau fengu sér takkasíma, eiga ekkert sjónvarp og deila einni fartölvu sem tengist netinu bara þegar þarf.
Í þættinum segja þau frá því hvernig þau tóku þessa ákvörðun, hvernig hversdagurinn gengur upp í samfélagi sem verður sífellt stafrænna, og frá því hæglætislífi sem þau fá í staðinn til baka.
Við ræðum líka skjánotkun í skólastarfi. iPad-væðingu, PISA-niðurstöður, muninn á menntatækni og upplýsingatækni og hvað gæti verið skynsamleg lending í tækni í grunnskólanum.
Þátturinn er í boði:
NOVA: https://www.nova.is
Balance Phone: https://balancephone.is/
Stafræn Velferð: https://stafraenvelferd.is/
Joybox.is: https://joybox.is
Reach and audience
Public platform figures. Ratings count people who left a rating, not total listeners.
Spotify
5.0 / 5
9 ratings
Contact Kvíðakynslóðin hlaðvarp
Guest appearances
Books guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine