Hér fjöllum við um breytta stjórnunarhætti sem eru að eiga sér stað í íslensku atvinnulífi og allt í kringum okkur. Við segjum meðal annars frá stjórnendum sem eru að ryðja brautina og leiða fyrirtæki í áttina að sjálfbærara og vistvænna samfélagi.
Í þessum þætti spjöllum við við Emilíu Borgþórsdóttir, Verkefnastjóra umhverfis- og samfélagsmála hjá Húsasmiðjunni, um vegferð fyrirtækisins í sjálfbærni, fræðslu og framtíðarsýn.
Emilía deilir reynslu af að byggja upp sjálfbærnisteymi, þróa stefnu og vinna markvisst að breytingum í rekstri og virðiskeðju. Við ræðum nýrra laga sem taka gildi 1. sept. 2025, áskoranir hjá fyrirtækjum, mikilvægi þátttöku starfsfólks og fleira og fleira. Áhugaverður þáttur fyrir alla sem vinna í byggingargeiranum.
22 Dec 2022
Iðan fræðslusetur - Heimsmarkmiðin eru grunnurinn
Ásgeir Valur Einarsson, leiðtogi sjálfbærni hjá Iðunni fræðslusetri, segir okkur frá vegferð vinnustaðarins í átt að sjálfbærni og af hverju ákveðið var að breyta áherslum innan Iðunnar. Í kjölfar þess að greint var hvaða heimsmarkmið ætti að leggja áherslu á innan Iðunnar voru úrgangsmál tekin í gegn, kolefnisspor fræðslusetursins skoðað og bæði hefur verið boðið upp á námskeið um sjálfbærni og græn námskeið, sem geta fjallað um aðra færni en uppsetning þeirra er á sem bestan hátt fyrir umhverfið. Í þokkabót hélt Iðan Bransadaga í fyrsta skiptið í nóvember síðastliðnum, þar sem áherslan var á sjálfbærni, þar sem öllum gafst tækifæri á að sækja vefnámskeið og viðburði með sjálfbærniívafi
28 Jul 2022
BYKO - Umhverfisvitund frá upphafi
Byggingavöruverslun Kópavogs, betur þekkt sem BYKO, fagnar 60 ára starfsafmæli árið 2022. Við fengum Berglindi Ósk Ólafsdóttur, sérfræðing í sjálfbærni, til að segja okkur frá sögu BYKO sem á rætur að rekja í garð-, matvæla- og skógrækt en segja má að BYKO hafi verið í miklum tengslum við náttúruna allt frá stofnun. Við spjöllum um þau tvö skógræktarsvæði sem BYKO á og hefur átt og og hvernig skógur verslunarinnar að Drumboddsstöðum í Bláskógabyggð bindir um 1.200 tonn af CO2 á ári. Við ræðum einnig þær breytingar sem hafa orðið á kröfum markaðarins varðandi umhverfisvæn byggingarefni og hvernig BYKO hefur svarað þeirri þörf með því að merkja þær vörur á skilvirkan hátt og veita ráðgjöf til viðskiptavina varðandi vistvæn byggingarefni og vistvottunarkerfi. Við stiklum einnig á stóru varðandi vistvottunarkerfi bygginga og hvernig BYKO hefur áttað sig á sinni ábyrgðarstöðu í virðiskeðjunni. Fyrirtækið leggur sitt af mörkum m.a. með því að fara í greiningu á vöruframboði sínu og afla þeirra gagna sem þarf fyrir hverju vöru svo hægt sé að nýta hana í BREEAM vottaða byggingu og fá stig fyrir. Þetta er mjög stórt framfaraskref fyrir alla sem byggja eftir vistvottunarkerfi og mun auðvelda ferlið til muna. Okkur langar að benda hlustendum á að þau geta kynnt sér umhverfisvæn byggingarefni í BYKO á þessari vefslóð
21 Jul 2022
Vörður - Horft til framtíðar
Gestir þáttarins eru þau Hildur Grétarsdóttir, gæðastjóri og Ágúst Mogensen, sérfræðingur í forvörnum en bæði sitja þau í sjálfbærniteymi Varðar. Þau segja okkur frá þeirri sjálfbærnivegferð sem Vörður hefur verið í síðasta rúma áratuginn. Við spjöllum um hvernig vegferðin hófst með grasrótarstarfi innan Varðar og hvernig hún þróaðist fljótt í að vera stór hluti af stefnumótun fyrirtækisins. Fyrirtækið áttaði sig fljótt á mikilvægi þess að einblína ekki einungis á umhverfið heldur sjálfbærni í víðara samhengi, með áherslu á samfélagslega ábyrgð. Að því sögðu fékk Vörður jafnlaunavottun fyrst fjármálafyrirtækja árið 2014 og setti sér stefnu um samfélagslega ábyrgð árið 2015. Eins og Ágúst kemst svo vel að orði er mikilvægt að fyrirtæki hafi það í huga að þegar kemur að sjálfbærnimálum er ekki tjaldað til einnar nætur. Vinnan skuli unnin af myndarskap með öryggi, heilsu og sjálfbærni að leiðarljósi
12 Jul 2022
Matís og Landvernd - Plast, plast allsstaðar
Vissir þú að hvert okkar innbyrðir 5 grömm - ígildi eins greiðslukorts - af örplasti á VIKU? Allt sem þú vissir ekki um plast með Sophie Jensen, sérfræðingi hjá Matís, og Margréti Hugadóttur, verkefnastjóra hjá Landvernd! Hér segja þær frá hversdagslegum hlutum sem þú vissir ekki að innihéldu plast, hvernig plastið hjálpaði okkur að kortleggja heimshöfin, hvernig á að segja nei við einnota plasti og hvaða fimm hluti er nauðsynlegt að hafa með sér í fríið til að taka þátt í plastlausum júlímánuði. Allt um plastlausan júli á https://www.plasticfreejuly.org Bók Margrétar: Hreint haf: Plast á norðurslóðum er einstaklega aðgengileg og inniheldur skemmtilegan og valdeflandi fróðleik fyrir bæði börn og fullorðna. Hana má nálgast hér: https://vefir.mms.is/flettibaekur/namsefni/hreint_haf_plast_a_nordurslodum/43
7 Jul 2022
Atmonia - Ammoníak fyrir atvinnulífið
Atmonia er lítið íslenskt rannsóknarfyrirtæki með stórtæk áform sem gæti umbylt heilum atvinnugreinum; landbúnaði, flutningum, iðnaði og skilað margþættum ávinningi fyrir lífríki, loftslag og heimsbyggðina á næstu árum. Við fengum Guðbjörgu Rist framkvæmdastjóra og Helgu Dögg Flosadóttur rannsóknarstjóra til segja frá því hvernig er að vinna við djúptækni á Íslandi og við lærum hvernig nálgun Atmoniu á ammoníakframleiðslu gæti stuðlað að friði í heiminum. Atmonia hefur fengið styrki frá Rannsóknarsjóði og Tækniþróunarsjóði, Markáætlunarsjóði, orkurannsóknarsjóði Landsvirkjunar og Nýsköpunarsjóði námsmanna til þess að fjármagna starfið.
23 Jun 2022
Samkaup - Samvinna og samfélag
Starfsfólkið er kjarni fyrirtækis og gegnir lykilhlutverki þegar kemur að umhverfismálum og sjálfbærni. Gunnur Líf Gunnarsdóttir hjá Samkaupum segir okkur frá áherslum Samkaupa þegar kemur að samfélagslegri ábyrgð og hvað allir stjórnendur, ráðgjafar og sjálfbærniteymi þurfa að hafa hugfast vilji þeir láta til sín taka á þessu sviði. Við förum vítt og breitt yfir starfsemi félagsins og fáum fjölbreyttar hugmyndir að umbótum og nýjungum, svosem nýsköpunarkeppni Samkaupa og námsáherslur, áhrif á nærsamfélagið, um matarsóun og lífrænt grænmeti og margt fleira!
22 Jun 2022
Mannvit - Hvers vegna sjálfbærni?
Hvers vegna skiptir sjálbærni máli fyrir fyrirtæki og af hverju ættu fyrirtæki að láta sig umhverfis- og samfélagsmál mikið varða. Laufið fékk Maríu Stefánsdóttur og Söndru Rán Ásgrímsdóttur, sérfræðinga hjá Mannviti til að fjalla um sjálfbærni í fyrirtækjarekstri og hvers vegna það er orðið mikilvægara en nokkru sinni fyrr. Við tökum fyrir grænar fjárfestingar, umhverfisvænar byggingar, Heimsmarkmið SÞ og fyrstu skrefin í umhverfisrekstri.
Podcast Authority Score: 5 / 100
A composite of feed quality, social presence, YouTube performance and engagement. Read the methodology.
Quality
10
Social presence
0
YouTube
0
Engagement
0
Contact Laufið - Hlaðvarp
Guest appearances
Books guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Host of Laufið - Hlaðvarp?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine