Hlaðvarp þar sem fjallað er um það helsta úr heimi tölvuleikja. Umsjónarmenn þáttar eru þeir Bjarki Þór Jónsson, Daníel Rósinkrans og Sveinn Aðalsteinn.
Leikjavarpið #74 – Spennandi leikjaútgáfa í nóvember og gervigreind part 2
Sveinn, Bjarki og Daníel fara yfir það helsta úr heimi tölvuleikja og ræða komandi leikjamánuð. Nóvember mun bjóða upp á svakalega leikjaútgáfu en í þeim mánuði koma þrír risaleikir: The Legend of Zelda: Ocarina of Time endurgerðin, Grand Theft Auto VI og World of Warcraft: Forever.
Stóra umræðuefnið er - aftur - gervigreindin. Í síðasta þætti Leikjavarpsins var rætt um fjölbreytt áhrif gervigreindar á heim tölvuleikja og höldum við þeirri umræðu áfram í þessum þætti. Margir Steam-notendur kvörtuðu yfir gríðarlegu magni AI-leikja á Steam Next Fest og spurning hvort það þurfi ekki að herða gæðaeftirlit eða merkja AI-leiki með einhverjum hætti. Og hvar drögum við línuna hvaða leikir flokkast sem AI-leikir og hverjir ekki?
Daníel kláraði The Blood of Dawnwalker og Bjarki er að spila Star Wars: Galactic Racer þessa dagana. Fjallað stuttlega um leikina tvo í þættinum. Einnig er rætt er um fjölbreytt fréttaefni, þar á meðal lokun BioWare leikjafyrirtæksins, Sýndarvík og væntanlega afmælisveislu Tölvuleikjaspjallsins.
Umsjónarmenn eru Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór
12 Oct 2026
Gervigreind, leikjaútgáfan og meira af Control Resonant
Farið er yfir leikjaútgáfuna í nýjasta þætti Leikjavarpsins en leikir á borð við Hellraiser og Star Wars: Galactic Racer komu út fyrir skemmstu. Fleiri og fleiri leikjafyrirtæki nota gervigreind í auknum mæli, nýverið tilkynnti Capcom að þeir ætla að nota gervigreind í auknum mæli og það sama má segja um Google og Unity. Er þetta jákvæð eða neikvæð þróun? Fjallað er nánar um Control Resonant og tekið fram hvað stóð upp úr og hvað hefði mátt fara betur.
Allt þetta og fleira í nýjasta þætti Leikjavarpisins!
Umsjónarmenn eru Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór
28 Sept 2026
Leikjavarpið #72 – Wolverine, Control Resonant og Resident Evil bíómyndin
Sveinn, Daníel og Bjarki ræða um það helsta úr heimi tölvuleikja. Sveinn rýnir í nýja Wolverine leikinn og segir að leikurinn sé töluvert betri en margir vilja meina og að sum gagnrýni sem leikurinn hefur fengið sé að hluta til ósanngjörn. Bjarki er byrjaður á Control Resonant og segir frá fyrstu hughrifum sínum á leiknum eftir að hafa spilað fyrstu tvo klukkutímana. Daníel er í skýjunum - eða öllu heldur geimnum - eftir að hafa klárað Outer Wilds og aukapakkann.
Nýlegar leikjafréttir eru einnig til umræðu. Má þar nefna nýjan heim í Minecraft, breytingar hjá Bungie, stöðuna hjá Microsoft og Halo svo eitthvað sé nefnt.
Í lok þáttar fjöllum við um nýju Resident Evil bíómyndina en þeir Sveinn og Daníel mættu á sérstaka forsýningu í boði GameTíví.
Reach and audience
Public platform figures. Ratings count people who left a rating, not total listeners.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine