

- 6
- Episodes
- 1
- Ratings
- 2020
- First episode
About Lífsreynslusögur Vikunnar
Lífsreynslusögur með Guðrúnu Óla Guðrún Óla blaðamaður hjá Vikunni, les upp lífsreynslusögur sem sendar hafa verið inn í blaðið í gegnum tíðina, en hér er sannleikurinn lyginni líkastur! Ekkert er gefið eftir og sögurnar eru jafn ólíkar og þær eru margar. www.vikan.is Hosted on Acast. See acast.com/privacy (https://acast.com/privacy) for more information.
- Publisher
- Birtingur Utgafufelag
- Category
- comedy · history · kids & family
- Language
- is
- Explicit
- Yes
- First episode
- 1 Mar 2020
- Latest episode
- 26 Dec 2021
Latest episodes
6 episodes in the feed.

26 Dec 2021
Lífsreynslusögur Vikunnar
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - Fátæka konan: „Eitt sinn vann ég með konu sem bar sig illa í vinnunni vegna fátæktar og tókst að hafa gott af fyrirtækinu fyrir vikið. Löngu síðar lenti ég í því sjálf að vera ranglega ásökuð um svipað en öllu verra athæf.“ - Skelfilegur stjúpi: „Ég var að verða fimm ára þegar móðir mín fór að búa með manni. Frá upphafi var honum illa við mig og sýndi það á allan hátt. Hann hefur ekki bara eyðilagt samband mitt við mömmu, heldur líka við föður minn.“ - Allt betra en sannleikurinn?: „Hjónaband mitt var sérlega gott, hélt ég, en ef ekki hefði verið fyrir frétt sem ég sá í sjónvarpinu lifði ég kannski enn í þeirri blekkingu.“ - Samþykki ömmu: „Þegar ég kynnti ungan mann fyrir ömmu beið ég spennt eftir samþykki hennar en fékk það ekki þótt ég vissi að henni líkaði ágætlega við hann. Amma var eins konar véfrétt í fjölskyldunni og mér fannst álit hennar skipta öllu máli.“ - Lærdómsrík vinátta: „Eitt sinn átti ég vinkonu sem ég umgekkst talsvert mikið. Hún hafði mikla þörf fyrir að sýna yfirburði sína á flestum sviðum sem var í lagi mín vegna því ég hafði yfirleitt bara gaman að þessu. Óvænt eyðilagði þessi þörf hennar þó vináttu okkar.“ Hosted on Acast. See acast.com/privacy (https://acast.com/privacy) for more information.

3 Oct 2021
Lífsreynslusögur Vikuknnar
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - Tíu daga martröð: „Fyrir löngu síðan kynntist ég manni sem ég varð afskaplega hrifin af, svo hrifin að ég þáði með þökkum boð hans um að fara með honum í sumarbústað.“ - Yfirgangssamir vinir: „Foreldrar mínir keyptu sér sumarbústað og þá bauðst mér og fjölskyldu minni að nota hann þegar hann var laus sem var mjög oft. Ég átti þó alls ekki von á því að vinafólk mitt myndi smám saman nánast leggja undir sig bústaðinn og okkur fjölskylduna.“ - Óvænt vinslit: „Þegar tvær góðar vinkonur mínar eignuðust maka með stuttu millibili breyttist framkoma þeirra í minn garð og innan árs voru þær hættar að tala við mig.“ - Bíræfinn bóndi: „Þegar ég var um tvítugt vissi ég ekki hvað mig langaði að gera við líf mitt. Mér fannst ég þurfa að breyta algjörlega til og í einhverju bríaríi svaraði ég auglýsingu um ráðskonustarf í sveit.“ - Þó andvarans söngrödd sé þögnuð …: „Ég átti kærasta í tæpt ár og var mjög hrifin af honum. Hann var sérlega náinn fjölskyldu sinni sem mér fannst kostur en fyrir rest var mér farið að finnast það stór galli.“ Hosted on Acast. See acast.com/privacy (https://acast.com/privacy) for more information.

12 Apr 2021
Lífsreynlsusögur Vikunnar
- Eitrað samband: „Ég hef aldrei skilið hjónaband foreldra minna, sérstaklega í ljósi þess að það varði í tuttugu og fimm ár. Þetta var eitrað samband þar sem báðir aðilar niðurlægðu hvorn annan og reyndu á allan máta að gera hinum lífið leitt. Hvað hélt þeim saman veit ég ekki en hitt veit ég að þessar aðstæður í uppvextinum höfðu vond áhrif á okkur öll systkinin.“ - Manninum mínum fannst ég löt: „Í tuttugu og tvö ár var ég í hjónabandi með manni sem fannst ég lítið leggja til sameiginlegs heimilis okkar á öllum sviðum. Hann lét mig finna þetta leynt og ljóst. Mér leið því stöðugt illa og var ávallt að leita leiða til að sanna að mitt framlag væri einhvers virði. Að lokum gafst ég upp og nýlega hitti ég mann sem hefur sýnt mér hve rangt mat míns fyrrverandi var.“ - Ég lét reiðina stjórna mér: „Ég skipulagði líf mitt í þaula þegar ég var átján ára. Þá var ég í sambandi með yndislegum strák sem seinna varð maðurinn minn. Við ákváðum að ljúka námi, koma okkur upp einbýlishúsi, góðum bíl og fallegu innbúi. Síðan ætluðum við að eignast börn. Frá fyrstu tíð unnum við mikið og það átti eftir að koma okkur í koll.“ - Stundum er ástin ekki nóg: „Það var mér áfall þegar Gísli sló mig í fyrsta sinn. Ég stirðnaði upp og stóð bara með hönd á kinn og starði á hann. Það tók mig smástund að átta mig á hvað hefði gerst. Mér fannst líða heil eilífð en eflaust voru það ekki nema nokkrar sekúndur. Nokkru áður en höggið reið af höfðum við setið á kaffihúsi og spjallað í rólegheitum.“ - Slapp með skrekkinn en samt sár: „Ég varð fyrir óskemmtilegri lífsreynslu aðeins þrettán ára gömul. Þetta var í lok sjötta áratugar síðustu aldar og umræða um kynferðislegt ofbeldi var engin nema það sem hvíslað var á milli kvenna í eldhúskrókum. Að minnsta kosti náði slíkt aldrei til mín á þessum tíma. Ég var þar að auki afskaplega saklaus um allt sem tengdist nánu sambandi kynjanna. Það má segja að ég hafi lifað í rósrauðum heimi þar sem flestir voru bara nokkuð góðir.“ Hosted on Acast. See acast.com/privacy (https://acast.com/privacy) for more information.

28 Mar 2021
Lífsreynslusaga Vikunnar
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - Mér var útskúfað: „Ég missti móður mína þegar ég var tæpra fjögurra ára gömul. Ég man lítið eftir henni en á einhverjar óljósar minningar sem ég held að séu tengdar henni. Í tvö ár eftir að hún dó bjuggum við pabbi ein en ég var mikið í pössun hjá ömmu. Pabbi kynntist stjúpmóður minni þegar ég var nýbyrjuð í skóla og hún flutti inn til okkar nokkrum mánuðum síðar. Ég átti ákaflega erfitt með að sætta mig við hana fyrst í stað og tók upp á ýmsu til að láta vanþóknun mína í ljós. Smátt og smátt jafnaði ég mig þó og friður ríkti á heimilinu.“ - Nú lifi ég fyrir mig en ekki aðra: „Ég ólst upp hjá mjög ströngum foreldrum. Mamma mín var mjög kröfuhörð á okkur systkinin. Við áttum að vera kurteis og prúð, standa okkur vel í skóla og vera heimilinu til sóma. Systkinum mínum tókst þetta ágætlega en ég var svarti sauðurinn sem alltaf var að lenda í vandræðum. Ekki tók betra við þegar ég varð fullorðin því ómögulegt reyndist að gera svo eiginmanni mínum líkaði.“ - Veikindin gerbreyttu fjölskyldulífinu: „Þegar ég var tíu ára greindist yngri bróðir minn með erfiðan sjúkdóm. Fram að því höfðum við verið hamingjusöm og samheldin fjölskylda. Smátt og smátt náðu veikindin hins vegar að gerbreyta öllum samskiptum okkar. Mér fannst ég fjarlægjast foreldra mína og sú gjá sem varð á milli okkar lokaðist aldrei.“ - Ríka systirin: „Ég var lengi sár út í stóru systur mína sem vildi sem minnst við mig og systkini okkar tala. Við héldum að hún væri svona snobbuð þar sem hún bjó við ríkidæmi, öfugt við okkur. Löngu síðar opinberaði hún leyndarmál sitt.“ - Systir mín rústaði heimili mínu: „Ég flutti að heiman tvítug og stofnaði heimili með kærasta mínum. Við eignuðumst ári síðar okkar fyrsta barn og giftum okkur. Þótt okkur gengi mjög vel fann ég fyrir fæðingarþunglyndi og átti töluvert erfitt fyrsta árið sem dóttir mín lifði. Á sama tíma var systir mín að taka saman við mann sinn og þegar þau fengu að dvelja í minni íbúð mánaðartíma gerðust hlutir sem særðu mig djúpt.“ Hosted on Acast. See acast.com/privacy (https://acast.com/privacy) for more information.

12 Apr 2020
Lífsreynsusögur Vikunnar
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - Óvæntir gleðigjafar: „Ég hélt að ég yrði ekki eldri þegar ég komst að því að ég, fertug konan, væri orðin ófrísk, þrátt fyrir árangurslausar tilraunir til þess í tuttugu ár. Í kjölfarið fékk ég að heyra ótal sögur um svipuð tilfelli og eina mögnuðustu söguna sagði mér nágrannakona mín og ein besta vinkona mín í dag.“ - Skemmtun sem varð að martröð: „Ég bjó í Kaupmannahöfn í nokkur ár með kærasta mínum og var í hljómsveit með honum og þremur vinum okkar, einnig íslenskum. Eftir vel heppnaða æfingu ákváðum við að kíkja út á lífið. Það hafði heldur betur afdrifaríkar afleiðingar.“ - Fylgdi hjartanu: „Vinkona mín á nokkur ástarsambönd að baki, yfirleitt við svokallaða „plastpokakarla“ sem voru fljótlega fluttir inn til hennar með pokann sinn. Hún hefur alltaf verið harðdugleg og góð manneskja og þessir menn kunnu að nýta sér það. Það var ekki fyrr en hún kynntist Aroni að allt breyttist.“ - Ástin spyr stundum ekki um kyn: „Ég kynntist Steina á sveitaballi þegar ég var tvítug. Hann var svo sannarlega maður drauma minna. Við höfum átt yndisleg ár saman. Tíu árum eftir að samband okkar hófst stóð ég frammi fyrir erfiðustu ákvörðun lífs míns. Ég þurfti að gera mér grein fyrir því hvað ást er. Er hægt að elska manneskju fyrir að vera hún? Sama í hvaða líkama hún er?“ - Fann aðra konu meðan mamma var á fæðingardeildinni: „Ég er alin upp hjá móður minni og stjúpföður og var alltaf í litlu sambandi við líffræðilegan föður minn. Mamma talaði aldrei um samband sitt við hann og það var ekki fyrr en nýlega að ég fékk að heyra alla sólarsöguna.“ Hosted on Acast. See acast.com/privacy (https://acast.com/privacy) for more information.

1 Mar 2020
Lífreynslusögur Vikunnar
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - Ég var með búlimíu: „Ég býst við að fröken Svínka í Prúðuleikurunum sé hetjan mín. Hún er þybbin, brjóstamikil, með stór, blá augu og óbilandi sjálfstraust. Þannig vildi ég vera. Fyrir nokkru fór ég að vinna markvisst að því að auka sjálfstraustið og breyta viðhorfi mínu til lífsins. Kannski mun ég einhvern tíma verða jafnánægð með mig og fröken Svínka og hver veit nema einhver lítill, grænn froskur verði þá ástfanginn af mér. Leiðin að því marki mun hins vegar verða löng og ströng.“ - Fyrirlitin vegna fjárhagsörðugleika: „Á Íslandi er börnum kennt að ef þau vinni vel og séu dugleg þá uppskeri þau í samræmi við erfiðið sem þau leggja á sig. Allir geta eignast einbýlishús og bíl og þeir sem ekki geta það eru fyrirlitnir, enda telja allir að eyðslusemi eða annarri óreglu sé um að kenna. Ég varð fyrir því að missa allt mitt í botnlausa hít vaxta og dráttarvaxta og tel mig ekki verri manneskju fyrir það.“ - Skelfilegur brúðkaupsdagur: „Fyrir mörgum árum gifti frænka mín sig og brúðkaupið hennar var vægast sagt eftirminnilegt!“ - „Hún var svo góð“: „Vinkona mín var um tvítugt þegar hún missti mömmu sína. Við þekktumst ekki á þeim tíma og ekki löngu eftir að við kynntumst sagði hún mér frá erfiðu lífi mömmu sinnar, að fjölskyldan hefði mátt horfa upp á hana drepa sig hægt og rólega án þess að geta hjálpað henni.“ - Lækning að handan: „Ég er jarðbundin manneskja og á mjög erfitt með að trúa einhverju yfirnáttúrulegu. Tvisvar hefur þó hent mig, með löngu millibili, eitthvað sem ég get ekki fundið neina eðlilega skýringu á.“ Hosted on Acast. See acast.com/privacy (https://acast.com/privacy) for more information.
Reach and audience
Public platform figures. Ratings count people who left a rating, not total listeners.
- Apple Podcasts (US)
- 5.0 / 5
- 1 ratings
Shows with a similar audience
Host of Lífsreynslusögur Vikunnar?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show
Podcast research with Pod Engine





