31. Þórdís Kjartansdóttir. Fædd 19. júní og þurfti að æxla ábyrgð
Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir á Læknahúsinu Dea Medica er ein af þessum kláru og skemmtilegu konum sem lætur ekkert stoppa sig. Hún byrjaði að vinna þegar hún var 12 ára og hefur síðan þá verið með mörg járn í eldinum. Hún fæddist 19. júní og mamma hennar sagði henni að hún yrði að taka mið af því. Þegar Þórdís var tvítug snarbreyttist tilveran þegar foreldrar hennar fóru hvort í sína áttina. Hún eignaðist tvö börn á meðan hún var í læknisfræði og þegar hún var 48 ára eignaðist hún dóttur. Þórdís vill ekki sjá eftir neinu í lífinu og lætur drauma sína rætast. Það er kannski þess vegna sem hún gaf út plötu á dögunum.
5 Oct 2026
30. Dorrit Moussaieff: „Heimurinn minn var fullkominn"
Dorrit Moussaieff viðskiptakona og fyrrverandi eiginkona Ólafs Ragnars Grímssonar hefur átt ævintýralegt lífshlaup og er nú á tímamótum. Í þættinum ræddu þær þegar hún hitti Ólaf Ragnar fyrst, hvernig samband þeirra þróaðist og endaði fyrr á þessu ári. Hún varð ástfangin af Íslandi þegar hún kom fyrst til landsins og er alls ekki skilin við þjóðina þótt hjónabandinu sé lokið.
Þessi þáttur er í boði Icelandair, SKINCARELAB í Smáralind, Blue Lagoon Skin Science, Fjallakofinn og Mathilda.
28 Sept 2026
29. Lukka Pálsdóttir: Við getum valið að vaxa
Lukka Pálsdóttir sjúkraþjálfari og einn af eigendum Greenfit býr yfir ákveðinni seiglu sem hefur komið henni á þann stað sem hún er í dag. Lukka hefur átt ótrúlegt lífshlaup en þegar hún fæddist höfðu foreldrar hennar gegnið í gegnum mikinn harm þegar faðir hennar lenti í flugslysi. Í þættinum ræðir Lukka um ástina, ævintýrin, myndkörfulán og fitubrennslupúls en líka Zone 2 sem er það sem flestir eru að tala um þessa dagana. En mæla snjallúrin og hringirnir þetta rétt?
Þátturinn er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SKINCARELAB í Smáralind, Fjallakofans og Mathilda í Kringlunni og Smáralind.
Reach and audience
Public platform figures. Ratings count people who left a rating, not total listeners.
Spotify
4.9 / 5
34 ratings
Contact Marta María býður heim
Guest appearances
Books guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine