Árið 2011 lést tónlistarmaðurinn Sigurjón Brink aðeins 36 ára gamall. Sigurjón, eða Sjonni eins og hann var yfirleitt kallaður, var þjóðþekktur og vinsæll söngvari. Sjonni var þó ekki aðeins vinsæll tónlistarmaður heldur einnig fjögurra barna faðir sem elskaði fátt meira en að vera með börnunum sínum. Elstur þeirra er Aron Brink, sem var fimmtán ára þegar faðir hans lést.
22 Feb 2020
Missir - Áslaug Arna og Magnús
Þegar þau Áslaug Arna og Magnús Sigurbjörnsbörn voru bæði í kringum tvítugsaldurinn lentu þau í því að foreldrar þeirra greindust með erfiða sjúkdóma með stuttu millibili. Móðir þeirra, Kristín Steinarsdóttir, lést árið 2012.
15 Feb 2020
Missir - Kristín Sif Björgvinsdóttir
Kristín Sif Björgvinsdóttir missti Brynjar Berg Guðmundsson, unnusta sinn og barnsföður, í október árið 2018. Brynjar framdi sjálfsvíg eftir baráttu við andleg veikindi og fíkn sem Kristín segir hann ekki hafa séð leiðina út úr.
8 Feb 2020
Missir - Þórdís Valsdóttir
Þórdís Valsdóttir, útvarpskona og lögfræðingur, lenti í tveimur áföllum sem mótuðu líf hennar til frambúðar þegar hún var á unglingsaldri. Þegar hún var nýbúin að missa systur sína varð hún óvænt ólétt aðeins fimmtán ára gömul. Eftir að hafa tekið nýtt hlutverk í sátt tók lífið enn og aftur óvænta stefnu.
1 Feb 2020
Missir - Arnar Sveinn Geirsson
Missti mömmu sína og um leið sinn besta vin -- Arnar Sveinn Geirsson missti móður sína Guðrúnu Helgu Arnarsdóttur árið 2003. Hann segist ekki hafa tæklað sorgina fyrst um sinn heldur hafi hann haldið áfram með lífið, staðið sig vel í öllu sem hann tók sér fyrir hendur og reynt halda öllu í föstum skorðum. Í þáttunum Missir er rætt við fólk sem hefur upplifað missi á einn eða annan hátt. Viðtölin birtast á Vísi á laugardögum.
25 Jan 2020
Missir - Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir
Heimurinn hrundi þegar Orri lést -- Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir missti son sinn Orra Ómarsson úr sjálfsvígi í janúarmánuði árið 2010. Hún segir mikilvægt að fólk ræði sorgina og sinn missi og nýti sér þau úrræði sem eru í boði.
18 Jan 2020
Missir - Brynja Bjarnadóttir
Ef pabbi hafði trú á mér þá hafði ég trú á mér -- Brynja Bjarnadóttir segir ekkert hafa mótað sig eins mikið og það að hafa misst föður sinn úr sjálfsvígi árið 2017. Í þáttunum Missir er rætt við fólk sem hefur upplifað missi á einn eða annan hátt. Viðtölin birtast á Vísi á laugardögum.
11 Jan 2020
Missir - Vigfús Bjarni Albertsson
Vigfús Bjarni Albertsson hefur starfað sem sjúkrahússprestur í fimmtán ár og má því segja að hann starfi með sorginni á hverjum degi. Sjálfur segist hann vinna á landamærum lífs og dauða og hefur því meiri innsýn en margur inn í þessi óhjákvæmilegu tímamót sem verða í lífi hvers einstaklings. Í þáttunum Missir er rætt við fólk sem hefur upplifað missi á einn eða annan hátt. Viðtölin birtast á Vísi á laugardögum.
Reach and audience
Public platform figures. Ratings count people who left a rating, not total listeners.
Apple Podcasts (US)
5.0 / 5
5 ratings
Contact Missir hlaðvarp
Guest appearances
Books guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Host of Missir hlaðvarp?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine