Hlaðvarp um íslenska fornleifafræði. Fornleifafræðingarnir Arthur Knut Farestveit og Snædís Sunna Thorlacius fjalla vítt og breitt um íslenskar fornleifar, minjar og menningarsögu. Í hverjum þætti er ákveðið viðfangsefni tekið fyrir og sett í samhengi við samtímann, bæði fornleifanna og fornleifafræðinganna.
Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði.
Upptökur og hljóðvinnsla: Sindri Snær Thorlacius
Þemalag: Gísli Magnús Torfason og Helga Ágústsdóttir
Logo: Sigtýr Ægir Kárason
Hljóðbrot: Safn RÚV
Í þessum seinni hluta umfjöllunar okkar um minjar réttarkerfisins skoðum við nokkur dæmi um afleiðingar dóms og laga í fornleifum. Hvað skilur útilegumannahelli frá öðrum hellum? Hvað voru margir teknir af lífi á Íslandi og fyrir hvað? Og hvað í andskotanum var Erfðahyllingin?
Arthur segir frá sniðugum útlaga í Eldvörpum og Snædís fjallar um 18. aldar morðmál sem tengist bæði Árbæjarsafni og Kópavogslæk. Útilegumenn, afturgöngur, sifjaspell og aftökur - hvað er hægt að biðja um meira?
Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði
Þetta er síðasti þáttur Moldvarpsins í bili. Við þökkum fyrir samfylgdina - þangað til næst!
19 Feb 2026
20. Lög og regla I
Hvers vegna eru lög og regla? Þessi fyrri hluti umfjöllunar okkar um minjar réttarkerfisins fjallar um þing og þingminjar. Við lærðum flest í grunnskóla að örfáir karlar úr efri stétt hittust á þingum til að semja lög og fella dóma sem síðan rötuðu á skinnhandrit sem mörg eru enn varðveitt í dag. En fyrir utan handritin, hvaða minjar skilja þessir fundir eftir sig? Hvað er dómhringur? Og hvar í ósköpunum var Lögberg??
Arthur fer yfir hvernig goðorð virkuðu og hvernig kerfið var dauðadæmt frá byrjun en Snædís talar um dularfullt samband vatns og þingstaða. Þau fá síðan bæði hausverk við að reyna að greiða úr ráðgátu um sérstaklega dularfullan hól á Þingvöllum.
Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði
12 Feb 2026
19. þáttur_klaustur
Í þessum seinni hluta umfjöllunar okkar um klaustur á Íslandi kíkjum við austur í Fljótsdal og förum yfir rannsóknina á Skriðuklaustri sem er eina klaustrið sem grafið hefur verið upp og rannsakað í heild sinni. Hvað fannst í rústum klaustursins? Hvað segja fornleifarnar okkur um starfsemi klaustra á Íslandi? Hvað fannst í klausturgarðinum sem kom öllum á óvart?
Snædís fjallar um fornar lækningaraðferðir sem innihalda refagall, töfrasteina og að sleikja tær. Arthur tjáir sig um vonbrigðin sem fylgja því að finna reiknimyntir. Rætt um fjölbreytt notagildi kvikasilfurs, kapellu á móti álverinu í Straumsvík og besta hlaðborð landsins.
ATH! Fyrir viðkvæma: smá grafísk umræða um líkamsleifar, sjúkdóma, áverka og beinagrindur frá 37:53 - 59:34
Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði
Reach and audience
Public platform figures. Ratings count people who left a rating, not total listeners.
Spotify
5.0 / 5
46 ratings
Podcast Authority Score: 22 / 100
A composite of feed quality, social presence, YouTube performance and engagement. Read the methodology.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine