Heimsglugginn, rafmagnsbílar og orkuskipti, hraunvarnargarðar í Grindavík
Í Heimsglugganum sagði Bogi Ágústsson okkur meðal annars frá nýútkominni bók Liz Truss, skammlífasta forsætisráðherra Bretlands. Í bókinni fer Truss yfir dagana 49 í Downingstræti 10 og segir flest ef ekki allt sem miður fór vera öðrum að kenna. Ósiðleg og ólögleg framganga bresku götublaðanna var líka á dagskrá, sem og stutt umfjöllun um brunann í Kaupmannahöfn.
Svo töluðum við um hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla. Bílunum fjölgar en fjölgar stöðvunum nóg? Fjöldi fólks mátti bíða svo tímunum skipti eftir að koma bílnum í samband í Staðarskála um páskana. Ófremdarástand skapaðist, var sagt. Bilun var um að kenna. Ýmir Örn Finnbogason, framkvæmdastjóri N1, kom til okkar og ræddi um mikilvægi þéttara og áreiðanlegra hleðslustöðvanets og orkuskipti í samgöngum vítt og breitt.
Flest höfum við fylgst með eldsumbrotunum á Reykjanesskaga síðustu misseri, og mörg dáðst að þeim sem vinna hin ýmsu verk til að lágmarka skaðann sem af þeim hlýst eins og hægt er. Við ræddum um þau mál í síðasta hluta þáttarins, þegar við forvitnuðumst um vinnuna við hönnun hraunvarnargarðanna við Svartsengi og Grindavík. Hörn Hrafnsdóttir, vatnsauðlindaverkfræðingur hjá Verkís og aðjúnkt við Háskóla Íslands, sagði okkur frá.
Tónlist:
Í Reykjavíkurborg - Kristjana Stefánsdóttir, Ástvaldur Traustason.
Langomman = Ég langömmu á - Jógvan Hansen.
Tu vuò fà l'americano – Hetty and the Jazzato Band
Running - Jones, Norah.
17 Apr 2024
Dómur mannréttindadómstólsins, Bolungarvík og umdeildur geðlæknir
Við ræddum um dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í talningarmálinu í Norðvestur 2021. Hann féll í gærmorgun og er íslenska ríkinu í óhag. Þingmennirnir Berglind Ósk Guðmundsdóttir Sjálfstæðisflokki og Björn Leví Gunnarsson Pírötum voru gestir okkar. Við heyrðum þeirra skoðun á málinu og því sem mögulega þarf að gera. Við ræddum líka um vantrauststillöguna sem verður lögð fram í dag og um fjármálaáætlun.
Þegar stjórnvöld tilkynntu fyrir fimm árum síðan að stefnt skyldi að því að lágmarksstærð sveitarfélaga miðaðist við þúsund íbúa ákváðu Bolvíkingar að þeir vildu ekki sameinast öðrum sveitarfélögum - heldur koma fjölda bæjarbúa upp fyrir þúsund. Í fyrra tókst það. En hvernig var farið að, hvað gekk vel og hverju er hægt að læra af? Jón Páll Hreinsson bæjarstjóri í Bolungarvík sagði okkur frá þessu, en hann ræðir málið á ársfundi Byggðastofnunar í dag.
Bandarískur geðlæknir, Bennett Braun, lést í mars síðastliðnum. Á níunda áratug síðustu aldar sérhæfði Braun sig í meðhöndlun sjúklinga sem hann taldi vera með margfaldan eða klofinn persónuleika, og varð sannfærður um að flestir skjólstæðinga hans hefðu sætt hræðilegri misnotkun í helgiathöfnum djöfladýrkenda - eða sjálf tekið þátt í slíkum athöfnum. Kenningar Braun vöktu mikla athygli á tíma þegar margir Bandaríkjamenn óttuðust satanista í hverju horni, en hann var síðar lögsóttur af fjölda fyrrverandi sjúklinga. Vera Illugadóttir rakti sögu þessa manns.
Tónlist:
Larsen, Kim - De smukke unge mennesker.
Rolling Stones, The - Tell me.
Larsen, Kim - Susan himmelblå.
16 Apr 2024
Salan á TM til Landsbankans, þungunarrof, þýskir skógar og tónleikar fyrir Grindvíkinga
Við fjölluðum um Landsbanka/TM málið með Þórði Snæ Júlíussyni, ritstjóra Heimildarinnar. Nýr kafli var skrifaður í þá sögu á dögunum þegar stjórn Bankasýslunnar blés á skýringar stjórnar Landsbankans um kaupin á TM. Við ræddum einnig um Donald Trump forsetaframbjóðanda og peningavandræði hans.
Arthúr Björgvin Bollason var með okkur eftir Morgunfréttirnar klukkan átta. Berlínarspjall á sínum stað og að þessu sinni var Arthur hjá okkur í hljóðstofu. Þungunarrof og þýski herinn var á dagskrá rabbs okkar og undir lokin gengum við um þýska skóga.
Í síðasta hluta þáttarins kom Gísli Helgason tónlistarmaður til okkar. Á laugardaginn efnir hann til tónleika í Salnum í Kópavogi fyrir Grindvíkinga. Á efnisskránni eru Eyjalögin dásamlegu og brot úr Eyjapistlunum sem Gísli og fleiri héldu úti hér í Útvarpinu meðan á gosinu í Heimaey stóð fyrir 51 ári.
Liebesfreud - Bell, Joshua.
Blues before sunrise - Charles, Ray.
Medley of Armstrong hits - Armstrong, Louis and his Orchestra.
Hoch auf dem gelben Wagen – Walter Scheel
Dagur - Gísli Helgason.
Contact Morgunvaktin
Guest appearances
Does not typically book guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Host of Morgunvaktin?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine