Myndasögur eru tjáningarform sem hefur lifað með manninum gegnum aldirnar. Við erum hér til þess að eflast, þroskast, sjást og heyrast. Þess vegna er þetta hlaðvarp hér. Til að ljá röddu við listform sem hefur svo margar.
Björn Heimir Önundarson er myndlistarmaður, tónlistarmaður, teiknari, málari, teiknimyndagerðamaður og meira. Þekktur m.a. sem Inferrno ostur og forsprakki hljómseitarinnar Captain Syrup en gefur út tónlist sem Bobby Sands þessa dagana.
Lífstíll listamannsins veldur því að það þarf að fórna ýmsum þægindum úr praktískara lífi. Að læra að sleppa hlutum frá sér og komast að því hvaða miðill það er sem að hentar hverri hugmynd.
Hér er hægt að hlusta á Bobby Sands í allri sinni dýrð.
https://open.spotify.com/album/6ZhYBF7rdi3oruQUvaPvuI?si=KxH2foXzQw-tFXuVwWn02A (https://open.spotify.com/album/6ZhYBF7rdi3oruQUvaPvuI?si=KxH2foXzQw-tFXuVwWn02A)
Hér inni er hægt að lesa pdf útgáfur af öllum myndasögunum
https://bjornheimir.com (https://bjornheimir.com)
15 Feb 2024
Liam Cobb - Michelin maður og matur fyrir hugmyndir
Liam Cobb er teiknari sem kemur frá London.
Hann hefur verið að fást við myndasöguútgáfu ( þegar hann hefur tíma til) eftir að hafa lært teikningu . Nú stendur hann fyrir upplestri 16.febrúar af myndasögu ásamt listahópi sem kemur honum til aðstoðar. Er framtíð myndasögunnar á sviði?
Hér er vefsíðan hans
https://liamcobb.com/ (https://liamcobb.com/)
https://www.instagram.com/_liamcobb_/ (https://www.instagram.com/_liamcobb_/)
https://www.breakdownpress.com/store/what-awaits-them-by-liam-cobb-2 (https://www.breakdownpress.com/store/what-awaits-them-by-liam-cobb-2)
3 Nov 2023
Hlíf Una - Erótísk í eldhúsinu
Káputeikningar geta verið viðkvæmt umræðuefni, en við gerum okkur kápuna úr því klæðinu. Við snertum á málefnum líkt og því að vera sinn eigin kynningarfulltrúi. Skoðum launamál teiknara, virði, vinnuumhverfi, ánægjuna af því að teikna persónuleg lítil verkefni og nýútkomna ljóðabók unna í samstarfi við Melkorku Ólafsdóttur.
Við ræðum hvernig það hefur verið að sitja í nefnd um erótískar bókmenntir og útskriftarverkefnið Erótísk í eldhúsinu (https://www.instagram.com/p/B6GCXz8AToW/?hl=en&img_index=1) og tölum um þroskann og mismunandi sýn á hvað þarf að sýna mikið til að lífið fái að njóta sín.
Bókin Flagsól (https://www.forlagid.is/vara/flagsol/) eftir Melkorku Ólafsdóttur og Hlíf Unu Bárudóttur (https://www.honnunarmidstod.is/honnudirogarkitektar/520)
28 Oct 2023
J.J. Mancho - Feministinn frá Tenerife
Að flytja frá Madrid til Tenerife voru ákveðin viðbrigði fyrir átta ára José, en að flytja núna fyrir rúmum tveimur árum á fullorðins aldri til Íslands, það held ég nú.
Eitt af hans stærstu verkum kemur frá umfjöllun um feminíska karlmenn í gegnum söguna sem hann vann með rithöfundinum Alicia Parker. Sem svo leiddi til stórrar bókar um feminíska menn í dag.
Við ræðum um áhrifin, hvernig það er að ráfa um lífið sem skapandi einstaklingur með engan skýran endapunkt og hvernig hrunið 2008 snerti líf heillar kynslóðar spænskra ungmenna sem þá voru að stíga sín fyrstu skref á atvinnumarkaðinn.
Hérna er myndasagan sem við tölum um
Femínískir menn - teiknað af J.J. Mancho (https://issuu.com/schooloffeminism/docs/el-viaje-hombres-feministas-a-web-c )
Hér er kvikmyndin sem hann minnist á
Zorba the Greek (https://www.imdb.com/title/tt0057831/)
Hér eru spæjaramyndasögurnar sem hann las í æsku
Mortadelo y Filemón (https://en.wikipedia.org/wiki/Mort_%26_Phil)-
19 Oct 2023
Fannar Gilbertsson - Ofurhetja í myndasögum
Icecomics (https://www.instagram.com/icecomics/)- Sonur, maður, hetja. Hann hefur nú gefið út núna sína fyrstu stóru myndasögu Gen -01 (https://www.aha.is/gen-01)
Í þessum þætti fjöllum við um ferlið að gefa út þetta verk sem tók 8 ár í framleiðslu. Í millitíðinni tóku Landverðirnir (https://www.forlagid.is/vara/landverdirnir-2-ira/) og lífið yfir, við fjöllum um framtíðina, verkefnin, kostnaðinn, erfiðleikana og hvað það þýðir að vera í myndasögum á Íslandi. Við ræðum um helstu áhrifavalda og hvernig það er að vera áhrifavaldur í teikningu í dag meðan listamenn glíma við ai algoritmann sem keppnisaðila.
Kaupið alvöru myndasögur!
17 Oct 2023
Þórey Mjallhvít og leyndarmálin
Þórey Mjallhvít er ekki stöng heldur myndhreyfill eða nei hvað kallast það. Hún er teiknari, teiknimyndagerari, rithöfundur, framleiðandi, leikstjóri og eiginlega bara allt sem þarf, sameinað í einn dúndurpakka. Hún er nú að vinna í ofurleynilegu verkefni sem ekkert má tala um. Svo við tölum ekkert um það og margt annað í þessum æsispennandi fyrsta þætti af Myndarsögum: Hlaðvarpinu
Finnið sögu eftir hana í Myndarsögur: Annað blað (https://www.karolinafund.com/project/view/6082)
Fáið eintak á Karolinafund núna! Aðeins nokkrir dagar til stefnu...
https://www.karolinafund.com/project/view/6082 (https://www.karolinafund.com/project/view/6082)
https://www.karolinafund.com/project/view/6082 (https://www.karolinafund.com/project/view/6082)
https://www.karolinafund.com/project/view/6082 (https://www.karolinafund.com/project/view/6082)
https://www.karolinafund.com/project/view/6082 (https://www.karolinafund.com/project/view/6082)
Reach and audience
Public platform figures. Ratings count people who left a rating, not total listeners.
Spotify
5.0 / 5
3 ratings
Contact Myndarsögur
Guest appearances
Books guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Host of Myndarsögur?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine