Nátthrafnar er hlaðvarp fyrir svefnvana næturdýr og er stýrt af Elísabetu og Brynhildi, stelpukonum sem kalla ekki allt ömmu sína. Umræðuefni verða uppfull af fróðleik, húmor og hryllingi þegar sá gállinn er á okkur. Verið við öllu búin! Við erum mjög ófilteraðar og djúpsteiktar.
Publisher
Elisabet Drofn Kristjansdottir and Brynhildur Yrsa Valkyrja
Í gegnum tíðina hefur það verið þekkt að börnum hafi verið víxlað við fæðingu og þau alist upp hjá öðrum foreldrum. Þessi þáttur fjallar um nokkur slík tilfelli, hvert öðru áhugaverðara.
29 Jun 2023
Konan mín er alltaf á gægjum
Þátturinn fjallar um undarlegt háttarlag eiginkonu sem sífellt er á gægjum. Meira verður ekki sagt hér, þið verðið bara að hlusta á þennan óhugnað.
22 Jun 2023
Momo
Við ræðum um Momo, hver er hún? Hvers vegna dúkkaði hún upp í barnaþáttum og skipaði börnum að framkvæma ótrúlegustu hluti? Við förum djúpt ofan í þessa Momoholu sem leiðir okkur inn í japanskar þjóðsögur og siðafár. Þessi þáttur er alls ekki við hæfi barna.
15 Jun 2023
Hræðileg afmæli
Brynhildur á afmæli i dag og er því fagnað með afmælisþemaþætti.
8 Jun 2023
Barnið sem ólst upp hjá öpum - 2. hluti
Marina Chapman hefur upplifað margt um ævina. Henni var rænt þegar hún var 4ja ára og skilin eftir úti í regnskógum Kólumbíu. Þar ólst hún upp meðal apa næstu 5 árin. Þetta er seinni hluti af þættinum.
1 Jun 2023
Barnið sem ólst upp hjá öpum - 1. hluti
Marina Chapman hefur upplifað margt um ævina. Henni var rænt þegar hún var 4 ára og skilin eftir úti í regnskógum Kolumbíu. Þar ólst hún upp meðal apa næstu 5 árin. Þetta er fyrri hlutinn af tveimur.
25 May 2023
Radínstúlkurnar
Þessi þáttur fjallar um radín, allt frá uppgötvun Marie Curie á frumefninu, hrifningu heimsins á glóandi fegurð þess og hræðileg örlög verksmiðjustúlkna sem unnu við að mála radíni á ýmsar vörur og búnað.
18 May 2023
Fyrirboðar
Árið 1966 átti sér stað hræðilegt slys í Aberfan í Wales. Eftir slysið kom í ljós að margir höfðu fengið fyrirboða um slysið.
11 May 2023
Minningar um fyrra líf
Indverska stúlkan Shanti Devi byrjaði ung að árum að tala um líf sitt sem fullorðin, gift og barnshafandi kona. Fljótlega kom í ljós að hún virtist eiga sér minningar frá öðru lífi.
4 May 2023
Ruslstreymi
Við vörum við þessum þætti en hann fjallar um rússneskan internetskúrk (Stas Reeflay) sem gerði garðinn frægan þarlendis með því að streyma frá lífi sínu og þiggja greiðslu fyrir að gera allskyns ómerkilega, óhugnanlega og viðjóðslega hluti. Auðvitað fór það á versta veg. Ekki hlusta á þennan þátt því hann er viðbjóður.
27 Apr 2023
Tvífarar/Doppelgängers
Þetta er tvískiptur þáttur um tvífara. Við fjöllum um undarlegar tilviljanir í lífi fólks sem líkist mjög mikið og þjóðsagnaverurnar doppelgängers og hvaða afleiðingar það getur haft í för með sér að sjá þessar verur.
20 Apr 2023
Bölvun
Brynhildur fjallar um nokkra hluti, listaverk og múmíu sem hvílir bölvun á. Hlustið ef þið þorið.
13 Apr 2023
Svefndauði Hmong flóttafólksins
Elísabet kafar ofan í dularfullt mál um svefndauða Hmong flóttafólksins. Á 9. áratug síðustu aldar dó fjöldinn allur af ungum og hraustum asískum karlmönnum í svefni og fáar útskýringar voru að fá aðrar en að þeir dóu úr hjartsláttaóreglu í miklu hræðsluástandi. Við mælum með að þið hlustið á þátt nr. 2 áður en þið hlustið á þennan.
6 Apr 2023
Tvíburar
Í þessum þætti verður fjallað um tvíbura og hverskyns furðulegheit og tilviljanir er þeim tengjast.
31 Mar 2023
Maran
Þær skríða upp í rúm til þín, fylla þig ólýsanlegri hræðslu, angist og reyna að kæfa þig. Við könnum vísindin á bakvið svefnrofalömun og þjóðfræðina í kringum fyrirbærið ásamt því að lesa upp sögur fólks sem upplifað hafa þennan óhugnað.
30 Mar 2023
Kynningarþáttur
Örstutt kynning á þáttunum. Heilastormur á 9 mínútum.
Reach and audience
Public platform figures. Ratings count people who left a rating, not total listeners.
Apple Podcasts (US)
5.0 / 5
1 ratings
Contact Nátthrafnar
Guest appearances
Does not typically book guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Host of Nátthrafnar?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine