NÚ Kastið er hlaðvarp í umsjón grunnskólans NÚ. Þar sem rætt er um íþróttir, heilsu og menntun barna og unglinga. Þættirnir fjalla um uppeldi, þjálfun, nám og velferð með áherslu á þekkingu, reynslu og innsýn kennara, þjálfara og sérfræðinga. Markmiðið er að efla umræðu um heildræna menntun, íþróttaiðkun og heilbrigðan lífsstíl ungs fólks. Hægt er að nálgast upplýsingar um hugmyndafræði NÚ á vefsíðunni: www.framsynmenntun.is
Í þessum þætti er gestur okkar Hilmar Rafn Emilsson, menntastjóri NÚ, fyrrum knattspyrnumaður og þjálfari. Maður sem hefur svo sannarlega lært margt af lífinu.
Við ræðum við Hilmar um íþróttirnar, þjálfunina, menntakerfið, lífið og allt þar á milli.
Einlægt og skemmtilegt spjall um reynslu, fólk, ákvarðanir, mistök og það sem skiptir máli þegar upp er staðið.
18 Sept 2026
4. Þáttur - Kristján Ómar Björnsson
Í þessum þætti ræðum við við Kristján Ómar Björnsson, annan af stofnendum NÚ í Hafnarfirði. Kristján á óhefðbundinn bakgrunn. Hann er menntaður í tónlistarfræðum en hefur um árabil starfað við kennslu, íþróttaþjálfun og þróun nýrra leiða í menntun.
Við förum yfir sögu hans, hvað varð til þess að hann ákvað að ráðast í að stofna nýjan grunnskóla og hugmyndafræðina á bak við NÚ, skóla þar sem áhersla hefur verið lögð á einstaklingsmiðað nám, áhugasvið nemenda, íþróttir og sveigjanlegra námsumhverfi.
25 Sept 2025
3. Þáttur - Magni Grétarsson
Magni Grétarsson er þjálfari í Primal. Í þessu spjalli förum við yfir hans vegferð í gegnum íþróttir og stanslausa leit að bættum lífsgæðum í gegnum hreyfingu, öndun, kuldaþjálfun og fleira. Við förum um víðan völl í þessum þætti og erum viss um að allir sem hlusta hafi gaman af.
11 Sept 2025
2. Þáttur - Gísli Rúnar Guðmundsson
Í þessum þætti ræðum við við Gísla Rúnar Guðmundsson, annan af stofnendum NÚ. Hann segir frá bakgrunni sínum, persónulegri vegferð og hvaða hugmyndir og reynsla mótuðu hann sem kennara og frumkvöðul. Við förum yfir stofnun skólans, hugmyndafræðina sem liggur að baki og hvernig hún snýr að því að styrkja nemendur bæði í námi og lífi.
22 Aug 2025
1. Þáttur - Vilhjálmur Steinarsson
Í fyrsta þætti NÚ Kastsins ræðir Helgi Rafn Guðmundsson, kennari við NÚ, við Vilhjálm Steinarsson, einnig kennara við NÚ. Samræðurnar snúast um menntaumhverfið, styrktarþjálfun íþróttafólks og tengd málefni.
Contact NÚ Kastið
Guest appearances
Books guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Host of NÚ Kastið?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine