Þættir sem ræða móðurhlutverkið á fræðandi og heiðarlegan hátt, óritskoðað og í sinni raunverulegustu mynd. Farið verður yfir rannsóknir sem snerta á því hvaða áhrif það hefur á einstakling að verða móðir og jafnvel tekin viðtöl við sérfræðinga hvað það varðar.
Hugtök á borð við móðurmótunarskeið (e. matrescence) verður sett undir smásjána sem og önnur áhugaverð hugtök á borð við sjálfsmyndarkrísu, mömmuskömm og mömmukulnun. Mýtur á borð við bleika skýið og "góðu mömmuna" verða skoðuð út frá akademískum rannsóknum til þess að kanna hvort þetta séu mýtur eða möguleiki.
Hér er leitast við að fræða frekar en að hræða og valdefla mæður og verðandi mæður með því að ræða hlutina óhikað.
Stjórnandi Elín Ásbjarnardóttir Strandberg.
Í þættinum skoðum við mýtuna um hina fullkomnu móður. Mýtu sem er gamalgróin og er gjarnan nýtt til innvortissamanburðar á erfiðum stundum.
Í þættinum er vitnað í:
Reddy, N. (2025). The Good Mother Myth.
Sacks, A. (2022). The Startup Parent Podcast, þáttur #110: The Myth of the Perfect Mother — And Why You’re Not A “Bad Mom”.
instagram: raddirmaedra
raddirmaedra@gmail.com
28 Mar 2025
6. Líkamsmynd eftir barnsburð - Spjall með Alexöndru Sif Herleifsdóttur íþróttafræðingi
Viðtal við Alexöndru Sif Herleifsdóttur, íþróttafræðing um líkamsmynd, líkamsvirðingu og lífið eftir barnsburð.
raddirmaedra@gmail.com
14 Mar 2025
5. ósýnilega mamman
Í þættinum verður farið í það hvernig mæður geta upplifað sig ósýnilegar, hvernig það getur hafa komið til og hvað er til bragðs að taka varðandi þá þróun.
Í þættinum er vitnað í eftirfarandi greinar:
Fischer, S. Becoming bovine.
Benson, & Wolf. Where did I go? The invisible postpartum mother.
Símonardóttir, S., & Guðmundsdóttir, (2023). „Manni líður eins og maður sé alltaf að stara í ginið á ljóninu“: Viðhorf ungra kvenna til barneigna. Tímarit um félagsvísindi, 2023.
raddirmaedra@gmail.com
Instagram @raddirmaedra
7 Mar 2025
4. Matrescence // Móðurmótunarskeiðið - seinni hluti
Sjálfstætt framhald af síðasta þætti, en í þetta skiptið aðeins meir um hvaða áhrif þetta skeið getur haft á einstaklinginn. Í þættinum verður farið yfir 5 áhrifaþætti sem móðurmótunarskeiðið getur haft þau sem ganga í gegnum það. Breytta sjálfsmynd, hormónabreytingar, sálfræðileg áhrif, félagsleg áhrif og mögulega tilvistarkreppu.
Endilega hafið samband ef þið viljið koma einhverju til skila varðandi þættina hér: raddirmaedra@gmail.com
21 Feb 2025
3. Matrescence // Móðurmótunarskeiðið
Í þessum þætti verður farið í fræðilega hluta hugtaksins matrescence eða móðurmótunarskeiðsins eins og ég og mínir leiðbeinendur hafa kosið að þýða það á íslensku. Stutt ágrip á hvað skeiðið hefur í för með sér og nokkrar nýlegar rannsóknir og heimildir ræddar.
Heimildir: Raphael, D. (1975). Being Female: Reproduction, Power, and Change. Academic Press.
Sacks, A. (2017). "Why We Need the Word Matrescence." Medium.
Orchard, E. R., et al. (2023). "Matrescence: Lifetime Impact of Motherhood on Cognition and the Brain." Trends in Cognitive Sciences, 215-230.
Jones, L. (2024). "'It felt shameful': the profound loneliness of modern motherhood." The Guardian.
Jones, L. (2023). Matrescence: On the Metamorphosis of Pregnancy, Childbirth, and Motherhood. New York: Pantheon Books.
Blaskey, Z. (2024). "We need to tell the truth about what motherhood does to women." The Times.
14 Feb 2025
2. Að hlúa að sér í móðurhlutverkinu
Í þættinum fer ég yfir nokkur atriði varðandi það hvernig við getum best mætt okkur að mildi í móðurhlutverkinu og hlúð að okkur þegar við erum jafnvel hvergi finnanlegar sjálfar á forgangslistanum.
Þessi atriði eru alls ekki tæmandi og hver veit nema ég hendi í framhaldsþátt af þessu umræðuefni síðar.
Ef þú hefur einhverjar hugleiðingar varðandi efnið eða vilt koma einhverju á framfæri geturðu haft samband við mig í gegnum raddirmaedra@gmail.com
14 Feb 2025
Kynningarþáttur
Þessi fyrsti þáttur er ætlaður sem stutt kynning á hugmyndinni bakvið podcastið, kynningu á mér, Elínu Ásbjarnardóttur Strandberg, og því helsta sem verður tekið fyrir í seríunni.
Endilega hafið samband ef þið hafið einhverjar vangaveltur eða viljið koma einhverju sérstöku á framfæri á raddirmaedra@gmail.com
Contact Raddir mæðra
Guest appearances
Does not typically book guests
Based on episode analysis; this does not confirm that the show is currently accepting guests.
Host of Raddir mæðra?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine