Ráfað um rófið 05 02 - Góð fjölmiðlaumfjöllun um einhverfu (TW, sjálfsvíg)
Þær Eva Ágústa og Guðlaug Svala ráfa í dag um síður fjölmiðlanna, þar sem undanfarið hefur birst góð og vönduð umfjöllun um einhverfu. Hæst ber leiðara Erlu Hlynsdóttur í Heimildinni, sem dregur saman marga góða punkta. Forsíðuviðtal blaðsins við Gerði Ósk, móður hins einhverfa Hjalta Snæs Árnasonar sem lést fyrir aldur fram eftir erfiða glímu við kerfið sem mætti ekki hans þörfum.
Nýleg og væntanleg lokaverkefni í háskólum landsins ber einnig á góma, sem og styrki Virk til rannsókna og verkefna á sviði einhverfu.
Þetta og margt fleira, eins og gerist og gengur þegar Ráfið er annars vegar.
16 Apr 2025
Heilsutrúnó, Janus endurhæfing og fleira
Ráfið í dag liggur um lendur heilsu, heilsuleysis, þjónustu eða ekki þjónustu sem býðst einhverfu fólki - og ýmislegt annað. Eva Ágústa og Guðlaug Svala hafa báðar verið að glíma við sitthvað heilsutengt, sem skýrir langt hlé frá síðasta þætti. Heyrum erindi sem Eva flutti á málþingi ÖBÍ nýlega.
12 Jul 2024
Ráfað um rófið 04 04 - Sara Rós, glimmer og fleira
Ráf dagsins liggur um víðan völl, enda þrjár AuDHD konur við borðið. Sara Rós Kristinsdóttir, sem heldur úti fræðslu um einhverfu og fleira á fleiri en einum vettvangi (Lífsstefna á Instagram, hlaðvarpið 4 vaktin, Skólamálin okkar á fb, audhdsara á tiktok) er gestur þáttarins. Eva Ágústa er með hugleiðingu um glimmer og hrifnæmi.
Meðal stoppistöðva í ráfinu eru stimmhittingar (ættum við að starta svoleiðis?), monotropismi, nokkur plögg á góðu einhverfu-efni á vefnum, námsfýsi einhverfra og fleira og fleira.
Reach and audience
Public platform figures. Ratings count people who left a rating, not total listeners.
Apple Podcasts (US)
5.0 / 5
1 ratings
Spotify
4.9 / 5
31 ratings
Host of Ráfað um rófið?
Claim your podcast to manage its listing and keep your show details accurate.
Pod Engine is an independent podcast discovery and analytics service and is not affiliated with or endorsed by this podcast. Artwork and show content belong to their owners. Full legal notice.
Explore this show Podcast research with Pod Engine